Morgunblaðið - 24.01.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ M'IÐVIKUDAGUR 24. JANUAR 1990
35
Minning:
Baldur Karlsson
Fæddur 21. maí 1953
Dáinn 13. janúar 1990
Mig langar með örfáum orðum
að minnat frænda okkar sem svo
skyndilega var kvaddur úr þessum
heimi vegna sjúkdóms sem hann
hafði þjáðst af frá fæðingu.
Efst í huga mér eru minnin-
garnar frá þeim tíma þegar við
hittumst öll hjá ömmu og afa í
Grindavík. Þá var Baldur alltaf
fyrstur að hefja leik og allskyns
sprell við okkur krakkana, enda
var hann einstaklega barngóður.
Eftir að afi dó og amma flutti
inn á Hrafnistu í Hafnarfirði fór
samverustundun okkar fækkandi,
en þegar við hittumst voru þær
stundir alltaf jafn indælar.
Baldur var fæddur í Skálateigi
í Norðfirði og bjó hann í sveitinni
hjá ömmu og afa þar til þau flutt-
usttil Grindavíkur 1975. Hann var
yngstur barna þeirra Karls Mar-
teinssonar og Dagmar Óskars-
dóttur en eldri systkini eru Óskar
Karlsson, Marteinn Karlsson,
Björg Karlsdóttir, Gerður Karls-
dóttir og fóstursystir, Þórarna
Hansdóttir.
Þegar Baldur var um tvítugt
kom hann og bjó hjá mömmu og
pabba á Akranesi, þar sem hann
hóLtónlistarnám hjá Hauki Guð-
laugssyni. Þaðan lá leið hans til
Reykjavíkur þar sem hann byijaði
söngnám og var hann einn af
stofnendum söngskóla Garðars
Cortes. Með námi stundaði hann
hin ýmsu störf. Söngurinn var
honum kærast í lífinu, og eignað-
ist hann marga af sínum bestu
vinum í tengslum við sönginn. .
Baldur kvæntist aldrei og var
því einhleypur þennan stutta tíma
sem hann fékk að vera með okkur.
Um leið og við kveðjum frænda
Kveðjuorð:
Sigfus B. Sig-
mundsson kennari
Fæddur 11. apríl 1905
Dáinn 14. janúar 1990
Sigfús B. Sigmundsson var
kennari við Miðbæjarskólann frá
1935-1969, er skólinn var lagður
niður sem grunnskóli. Síðan við
Austurbæjarskólann til 1975, en
þá lét hann af störfum vegna ald-
urs. Með Sigfúsi er horfinn mikil-
hæfur kennari. Hann starfaði á
því tímabili er miklar sviptingar
voru í skólamálum. Nýir straumar
í kennslu- og uppeldismálum að
berast til landsins, en gömul við-
horf að víkja. Sigfús hafði mótast
af starfsháttum Miðbæjarskólans
og frá þeim haggaðist hann ekki.
Sigfús var stjórnsamur kennari og
nemendur báru mikla virðingu fyr-
ir honum. Hann var ljúfur og mild-
ur við þá nemendur er minna
máttu sín og myndaðist innilegt
samband milli hans og nemend-
anna. Hann vandi nemendur á
prúða framkomu við alla sem
störfuðu við skólann og raðimar
voru til fyrirmyndar á göngum og
á leiksvæði.
Marga vetur höfðum við umsjón
á leiksvæði í löngu frímínútunum.
Við áttum að sjá um að nemendur
léku sér á leiksvæðinu, en hlypu
ekki í burtu eða klifruðu yfir grind-
verk. Sigfús þurfti ekki annað en
líta til þeirra sem það höfðu í huga
og var þá strax horfið frá þeirri
fyrirætlun.
Sigfús B. Sigmundsson var
fæddur 11. apríl 1905 í Gunn-
hildargerði í Hróarstungu, Norð-
ur-Múlasýslu. Foreldrar hans voru
merkishjónin Sigmundur Jónsson
og Guðrún Ingibjörg Sigfúsdóttir
er þar bjuggu. Þau eignuðust þar
níu börn. Sigfús stundaði nám í
Alþýðuskólanum á Eiðum í tvo
vetur. Tók kennarapróf frá Kenn-
araskóla íslands vorið 1934. Vet-
urinn 1934-35 tók hann að sér að
kenna börnum á vegum barna-
verndarnefndar Reykjavíkur.
Sigfús kvæntist 1938 Önnu
Guðrúnu Frímannsdóttur frá Efst-
alandi í Öxnadal. Þau eignuðust
þijá syni. Þeir eru: Baldur
Frímann, yfirlæknir hjá Krabba-
meinsfélagi íslands, kvæntur
Halldóru Þ. Halldórsdóttur, Sig-
mundur, yfírlæknir geðdeildar
Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar,
kvæntur Ingibjörgu Benedikts-
dóttur, Rúnar Ingimar, rafmagns-
verkfræðingur, forstöðumaður
tölvudeildar Borgarspítalans,
kvæntur Björgu Östrup Hauks-
dóttur. Barnabörnin eru níu.
Til Sigfúsar og Önnu var gott
að koma. Þar ríkti samhugur og
á móti gestum var tekið með virð-
ingu og hlýhug.
Sigfús sinnti ýmsum störfum
fyrir utan kennsluna. Var m.a.
bókavörður við bókasafn Kennara-
félags Miðbæjarskólans og Mort-
ens Hansen skólastjóri. Þegar
grunnskóli Miðbæjarskólans var
lagður niður 1969 hafði safnið
verið fært Reykjavíkurborg til
varðveislu, en þá fannst ekkert
heppilegt húsrými fyrir það. Flutt-
ist það fyrst í Austurbæjarskól-
Kveðja
Sverrir Garðarsson
Fæddur 19. desember 1989
Dáinn 16. janúar 1990
„Guð, ég fel þér bamið mitt
sem gengið hefur um dauðans dyr.
Ég bið þig um að hugsa um það,
eins og ég hefði viljað gera.
Haltu á því,
i föðurörmum þínum.
Barnið mitt mun aldrei
kynnast unglings né fullorðinsámm.
í huga mínum verður það
barn að eilífu.
Guð, ég fel þér bamið mitt.“
(Úr ritlingi Bamaspítala Hringsins)
Kveðja frá pabba og mömmu
Vegna þess að kveðjan brengl-
aðist í blaðinu í gær, er hún birt
hér á ný. Um leið er beðist vel-
virðingar á mistökunum.
okkar viljum við senda ömmu inni-
legustu samúðarkveðjur og biðjum
Guð að veita henni styrk í hennar
miklu sorg.
Fyrir hönd okkar frændsystkin-
anna,
Dagmar Ósk Helgadóttir
ann, þaðan aftur í Miðbæjarskól-
ann og nú er það til húsa í kjall-
ara Tjamargötu 12, Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur. Sigfúsi var
mjög annt um safnið. Eyddi mörg-
um stundum í þágu þess, handlék
oft gamalar og merkar bækur
m.a. til að fullvissa sig um að þær
væru enn á sínum stað.
Sigfús gekk ekki heill til skóg-
ar, því eftir þriggja ára legu á
Landspítalanum kom hann þaðan
með skekkt bak. Það voru árin
1941-44. Þrátt fyrir það var elju-
semin óþrjótandi, hann var sístarf-
andi á ýmsum sviðum. Hann átti
fallegan garð, batt inn bækur og
átti mikið og gott bókasafn. Safn-
aði örnefnum frá æskuslóðum, rit-
aði um gamla bæinn í Gunnhildar-
gerði, grein um foreldra sína í
Gunnhildargerðisætt o.m.fl. mætti
upp telja.
Sigfús var glaðsinna og átti til
kímni, sem kom mörgum í gott
skap, en særði þó engan. Sigfús
var mjög greindur maður og var
því gott að leita til hans ráða.
Hann var einnig tilfinninganæmur
og þeir sem bágt áttu höfðu sam-
úð hans og hjálpsemi. Hann vann
öll sín störf af skyldurækni og
vandvirkni. Við sem störfuðum
með Sigfúsi við Miðbæjarskólann
eigum honum mikið að þakka. Við
geymum það í minningunni um
vammlausan mann sem var trygg-
ur í lund og góðviljaður.
Við vottum Önnu, sonum og
öðrum vandamönnum okkar inni-
legustu samúð.
Iljálniar Guðmundsson
t
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og
tengdadóttir,
SIGRÚN HELGA LANGE,
sem lést í Landspítalanum þann 19.
janúar síðastliðinn verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju 26. janúar kl. 13.30.
Sveinn Jónsson,
JóhannesLange,
Ásgeir Jón Jóhannsson,
Jóhann Ólafur Sveinsson,
Auður Ágústsdóttir,
Sigurbjörg Sveinsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Brautarlandi í Víðidal,
V.Hún.,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 26. janúar kl.
15.00.
Þórunn Steindórsdóttir, Tryggvi Kristjánsson,
Benedikt Steindórsson, Þórey Eyjólfsdóttir,
Ingólfur Steindórsson, Inga Þyri Kjartansdóttir,
Dýrunn Steindórsdóttir, Sverrir Halldórsson
og barnabörn.
t
Kærar þakkir færum við öllum, sem heiðruðu minningu
GRÍMS M. HELGASONAR
og sýndu okkur vinarþel og samkennd við fráfall hans.
Hólmfríður Sigurðardóttir,
Vigdis Grímsdóttir,
Sigurður Grímsson,
Anna Þrúður Grímsdóttir,
Helgi Grímsson,
Grímur Grímsson,
Hólmfríður Grfmsdóttir,
Kristján Grímsson,
Vigdís M. Grímsdóttir,
Birna Þórunn Pálsdóttir,
Sigurþór Hallbjörnsson,
Ása Magnúsdóttir,
Birgir Hákonarson,
Lára Helen Óladóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR ELÍASAR BJARNASONAR
járnsmiðs,
frá Túni,
Bólstaðarhlíð 68.
Guðfinna Guðmundsdóttir,
Valgerður Guðmundsdóttir, Bjarni Dagsson,
Guðjón Guðmundsson, Guðrún Ellertsdóttir,
Unnur M. Guðmundsdóttir, Örn Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS JÓNSSONAR,
Aðalstræti 87,
Patreksfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Björg Sæmundsdóttir,
Frfða Valdimars, Örn Sigfússon,
Kristján Jóhannsson, Jenný Oladóttir,
Sæmundur Jóhannsson, Hraf nhildur Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför ástkærs sonar okkar og bróður,
ÓLAFS BARKAR BARKARSONAR,
er lést 13. janúar sl., fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, miðvikudaginn 24. janú-
ar, kl. 13.30.
Börkur S. Óiafsson,
Sigrún S. Óskarsdóttir,
Guðrún Ó. Barkardóttir,
Óskar S. Barkarson
og systkini hins látna.
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóii íslands
S: 67 14 66