Morgunblaðið - 24.01.1990, Síða 36
36
MORGUNBI-AÐH) MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAlt 1990
fclk í
fréttum
Lee Remick, hraustleg á ný, ásamt eiginmanninum William
Gowans.
KRAFTAVERK
Lee Remick sigraðist
á krabbameini
Gervöll Holly wood-borg talar
nú um fátt annað en glímu
leik kon unnar Lee Remick við
lungna- og nýrnakrabbamein.
Herma fregnir að Remick sé al-
bata eftir að hafa reynt nýja
meðferð sem enn er á til rauna-
stigi. Læknar greindu krabbamein
í Remick snemma á síðasta ári
og þá var umfang sjúkdómsins
með þeim hætti að læknar áæt-
luðu að leikkonan ætti í mesta
lagi þijá mánuði ólifaða. Henni
var sagt frá meðferðinni, en vöruð
við því að hún gæti stytt líf henn-
ar auk þess að vera afar kvala-
full. Þá fylgdu meðferðinni ýmsar
hliðarverkanir, sem sumar gátu
dregið langt leiddan sjúkling til
dauða. Remick taldi það áhæt-
tunnar virði og nú hafa læknar
hennar staðfest að krabbameinið
sé horfið úr líkama hennar.
Meðferðin tók verulega á
Remick, hún léttist um tíu kíló
og var þó grönn fyrir, og auka-
verkanir léku hana svo grátt að
dögum saman titraði hún eins og
hrísla í vindi og hélt engri nær-
ingu niðri. Þá þurfti að fjarlægja
annað nýrað þar sem því varð
ekki bjargað. En læknar urðu vitni
að undursamlegum hlut, lungun,
sem voru útsteypt í krabbaæxlum,
hreinsuðust smám saman, uns
ekkert var eftir. Ben Benjamin,
umboðsmaður Lee Remick síðustu
20 árin, sagði að meðferðin væri
góðra gjalda verð og merkilegt
spor í baráttunni gegn krabba-
meini, en hún væri engu að síður
slík að ekki væri heiglum hent
að standast hana, lífsgleði og
harka leikkonunnar hefðu fleytt
henni yfir hjalla sem margur hefði
strandað á. Nú er Remick í örum
bata, bætir á sig kílóunum sem
hurfu, og er farin að svipast um
eftir góðu hlutverki. Mun varla
standa á þeim, því Lee Remick
hefur löngum þótt úrvalsleikkona.
KÓNGAFÓLK
Anna prinsessa vill skilnað sem fyrst
Bresk dagblöð hafa skýrt frá
því að Anna Bretaprinsessa
og eiginmaður hennar, Mark
Filippus, hyggist sækja um skiln-
að. Blöðin greinir hins vegar á um
hvenær hjónin ætli að láta til skar-
ar skríða og hvort Elísabet Breta-
drottning hafi gefið dóttur sinni
leyfi til að skilja við Mark. Tals-
menn drottningar hafa ekki viljað
tjá sig um málið. Dagblaðið Daily
Express skýrði frá því í frétt með
fyrirsögninni „Anna: Ég vil skjót-
an skilnað“ að prinsessan vildi
binda enda á hjónabandið, sem
varað hefur í fimmtán ár, þótt
Mark væri því andvígur.
Hjónin skildu nýlega af borði
og sæng og ýmsir blaðamenn hafa
spáð því að þau slíti ekki hjóna-
bandinu fyrr en eftir tvö ár. Ef
þau sækja um skilnað fyrir þann
tíma þurfa þau að greina frá mein-
bugum á ráði hvor annars og slíkt
myndi efalaust valda miklu uppn-
ámi í breskum fjölmiðlum og yrði
mikill álitshnekkir fyrir bresku
konungsfjolskylduna.
Dagblaðið Daily Mirror skýrði
frá því að Elísabet drottning hefði
gefið Önnu leyfi til að skilja við
Mark. Hins vegar legði drottningin
að Önnu að ana ekki að neinu.
Hjónin eiga tvö börn, 12 ára son
og átta ára dóttur, sem bæði eru
í heimavistarskóla. Fregnir herma
að Anna sé í tygjum við Timothy
Lawrence, fyrrum yfirhestavörð
drottningar. Hann skrifaði prins-
essunni bréf, sem síðar voru tekin
ófijálsri hendi og birt í dagblöðum.
Daily Mirror segir að drottningin
taki ekki í mál að prinsessan gift-
ist á ný.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Frá afhendingu styrkjanna. Talið frá vinstri: Magnús Jónasson, Stefán Sigurjónsson, Húnbogi Þor-
kelsson, Kristjana Þorfinnsdóttir og Haraldur Guðnason.
VESTMANNAEYJAR
Sparisjóðurinn úthlutar styrkjum
Sparisjóður Vestmannaeyja úthlutaði fyrir
skömmu styrkjum úr Styrktar- og menningar
sjóði sínum. Að þessu sinni var styrknum skipt milli
Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Félags eldri borgara
og komu 75 þúsund í hlut hvors félags.
Styrktar- og menningarsjóðurinn var stofnaður
til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson, fyrsta
sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Vestmannaeyja, og var
nú úthlutað úr sjóðnum í annað sinn. Sigurgeir
Kristjánsson, formaður stjórnar Sparisjóðsins, af-
henti fulltrúum Lúðrasveitarinnar og Félags eldri
borgara styrkinn. Lúðrasveitin sem var 50 ára á
síðasta ári hefði haldið uppi öflugri menningarstarf-
semi í bænum í hálfa öld og Félag eldri borgara
gert stór átak í félagsstarfi eldri borgara í Eyjum.
Magnús Jónasson, formaður Lúðrasveitarinnar,
og Kristjana Þorfinnsdóttir, Formaður félags eldri
borgara, þökkuðu stjórn Sparisjóðsins fyrir þennan
höfðinglega styrk.
Grímur I
SJÓNVARPS-
ÞÁTTARÖÐ
\
Leikur
Hopkins
Gorbatsjov
í ævisögu
Sovétleið-
togans?
Iundirbúningi er nú að gera
sjónvarpsþáttaröð um ævi,
störf og ástir Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga. Er ætl-
að að þættimir verði þrír eða
fjórir, alls um 4 klukkustundir.
Þótt framleiðslan sé bandarísk,
era þrír þekktir breskir leikarar
um hituna er valið verður í
aðalhlutverkið. Það eru Bob
Hoskins, Albert Finney
og Anthony Hopkins,
en sá síðastnefndi er
talinn standa nær hlut-
verkinu en hinir, því
hann er eigi ólíkur
Gorbatsjov. Engum
nöfnum hefur verið
fleygt um hver eigi að
leika Raisu, hina málg-
löðu eiginkonu Gorb-
atsjovs, sem haft hefur
svo mikil áhrif á leið-
togann.
Framieiðendumir
hafa ráðið Bretann Ian Curtais
til þess að rita handritið og er
hann þegar vel á veg kominn,
auk þess sem hann heldur til
Sovétríkjanna í febrúar í
gagnasöfnun. Spáir Curtais því
að verkið verði tilbúið eftir eitt
ár eða svo. Áætlað er
að veija 7 milljónum
dollara í verkið og hefur
verið sótt um að taka
stóran hluta þess upp i
Sovétríkjunum. Leyfi
hefur ekki fengist, en
framleiðendur eru von-
góðir um að það fáist,
að öðrum kosti verði
tekið upp í Austur-
Evrópu, líklega í Ung-
verjalandi. Curtais þessi
hefur samið mörg sjón-
varpshandrit og þekkja
íslendingar kannski hvað best
þáttaröðina um Onedin-skipa-
félagið sem sýnd var í ríkissjón-
varpinu fyrir mörgum áram.
Anna Bretaprinsessa ásamt Mark og börnum þeirra.
Anthony Hopkins
Míkhaíl Gorbatsjov