Morgunblaðið - 24.01.1990, Síða 41
MORGÍJNBIÍAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2'4. JANÚAR 1990'
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
amsuáMJUÍ
Góð útvarpsstöð
Þórður Agnarsson hringdi:
„Ég vil taka undir orð Valg.
Jónsdóttur um Aðalstöðina. Þar
má heyra virkilega gott afþrey-
ingarefni í þættinum Islenskt fólk
á kvöldin og einnig vil ég þakka
Bjarna Degi fyrir þáttinn A rök-
stólum. Ég er loksins farinn að
hlusta á útvarp á kvöldin aftur
sem maður var alveg hættur að
gera.“
Léleg útsala
Þorbjörg hringdi:
„Ég tel að ekki ætti að vera
leyfilegt að auglýsa útsölu ein og
Mikligarður hefur gert að undan-
fömu. Einungis lítið brot af vörum
versunarinnar er á útsölunni. Mér
finnst þetta vera hálfgert gabb
við kaupendur."
Slæmt ástand í
dagvistunarmálum
Margrét Sæmundsdóttir,
fóstra hringdi:
„Ég vil gera athugasemd við
ræðu borgarstjóra þar sem hann
sagði að gott ástand væri í dag-
vistunarmálum hér í borg. Þetta
er að mínu áliti alrangt. Dæmi:
Skóladagheimili eru aðeins 13 í
allri Reykjavík en samt eru 4500
börn á aldrinum 6-8 ára í
Reykjavík. Það gefur auga leið
að þetta er mjög lélegt, vegna
þess að langflestir foreldrar vinna
utan heimilis og skóla dagur er
mjög stuttur hjá þessum börnum.
Davíð segir að ástandið sé gott
miðað við Kaupmannahöfn. Veit
hann ekki að helmingurinn af
bamaheimilunum hér eru leik-
skólar sem starfa einungis hálfan
daginn. Þetta tíðkast ekki annars
staðar. Hér í Reykjavík eru 30
leikskólar og 20 dagheimili. Leik-
skólamir bjóða langflestir uppá 4
tíma vistun. Þetta er engin lausn
fyrir fólk sem vinnur úti allan
daginn. Mín skoðun ér sú að það
sé síður en svo hægt að hrósa sér
af þeirri þjónustu sem borgin veit-
ir foreldmm lítilla barna.“
Lyklakippa
Stór Iyklakippa með lyklil sem
skreyttur er svörtum steini tapað-
ist fyrir nokkm. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
Guðrúnu í síma 40292.
Svunta
Mosagræn svunta fauk af
barnavagni við Engjasel fyrir
nokkru. Vinsamlegast hringið í
síma
670272 ef hún hefur einhvers
staðar komið í leitirnar.
Vísnabók
Gömul kona saknar vísnabókar
sem hún hefur glatað með ein-
hveijum hætti og getur ómögu-
lega munað hvað af henni varð.
Hafi einhver bókina undir hönd-
um, vinsamlegast hringið í Maríu
í síma 22871.
Lyklakippa
Lyklakippa með svartri leðuról
og mörgum lyklum, m.a bíllykli,
tapaðist fyrir utan Kjötmiðstöðina
í Garðabæ hinn 17. janúar.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 29622 eða
36077.
BARNAKULDASKÓR
úr þykku leðri og
með grófum sóla
St. 23-30 — Póstsendum
smáskór
Skólavörðustíg 6B
sími 622812
Vestmannaeyingar
Munið þorrablót félagsins
sem verður haldið í Skútunni, Dalshrauni
15, Hafnarfirði, laugardaginn 27. janúar.
Miðasala í Skútunni fimmtudaginn 25. janúar
frá kl. 17.00-19.00.
Mætum sem flest.
Stjómin.
Opió hús I
þjónustumióstöö aldruÓu
á Af lagranda 40
Miðvikudaginn 24. janúar verður opið hús fyrir eldri
borgara í Vesturbænum, sunnan Hringbrautar, frá kl.
17.00-19.00 í tilefni af opnun þjónusturýmis þar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar og skoðunarferð um
þjónustumiðstöðina.
Reykjavíkurborg.
Metsölublað á hvetjum degi!
Við höldum glæsilega sýningu á RANK XEROX
Ijósritunarvélum og telefaxtækjum fimmtudaginn 25/1 og
föstudaginn 26/1 í verslun okkar að Nýbýlavegi 16, Kópavogi
kl. 9°0-18°0 báða daga.
Auk tækja frá XEROX sýnum við einnig úrval Ijósritunarvéla og
telefaxtækja frá KONICA.
Við vonum að þið sjáið ykkur fært að líta inn og skoða það
nýjasta og fullkomnasta á markaðnum. Allt á einum stað.
r
A meðan sýningin stendur yfir verða teiefaxtæki
seld með allt að 50% afslætti.
Xerox 5028
SKRIFSTOFUVELAR GÍSLI J. J0HNSEN HF.