Frjáls verslun - 01.10.1946, Blaðsíða 25
önnur og jafnari og árangurinn kannske betri,
að því er viðskiptin snertir. Þetta er ekki sagt
til ámælis slíkum tilraunum, sem þessum, heldur
til ábendingar þeim, sem hafa lík áform í huga.
í Simpsons-verzluninni við Piccadilly í Lond-
on er að finna fluorescent-lýsingu, sem er alveg
gagnstæð þessari (sjá mynd). Þar eru ljósastæðin
fremur lágt yfir söluborðunum, og lýsingunni
er þannig háttað, að ljósin beinast niður á borð-
in og kastast þaðan upp í vöruhillurnar á bak
við, í stað þess að skella framan í viðskiptamenn-
ina. Þetta er einkar heppileg lýsing, vegna þess
að hin skæra birta yfir söluborðunum laðar alla
búðargesti að sjálfu „viðskiptasvæðinu".
Hinn eini verulegi ókostur við þessa lýsingar-
aðferð er sá, að möguleikarnir til ljósbrigða hag-
nýtast ekki út í æsar, þar sem söluborðin eru
aðallega notuð til afgreiðslu en að litlu leyti til
útstillinga. Fallega niðurraðaðar verzlunarvörur
mundu vera miklu rneira aðlaðandi í þessu hríf-
andi ljósi heldur en fegurstu afgreiðslustúlkur
á bak við auð borð!
Upplýstir sýningarstaðir annarsstaðar í verzl-
uninni mundu líka auka á hin þægilegu ljósá-
hrif og gefa birtunni skennntilegt misræmis-
jafnvægi, og býst ég við að lýsingin verði endur-
bætt þannig innan skannns. Þessi lýsing er í al-
gjörri mótsögn við aðrar, þar sem lamparnir
hanga óskyggðir yfir búðarborðunum og valda
óþægindum og truflunum, og er augljóst að
verkið hefur kostað mikla vandvirkni og ná-
kvæma athugun. Þetta er því til áherzlu vís-
bendingum þeim, sem gefnar voru hér að frarn-
an, að æskilegt sé að liafa samvinnu við ljósa-
sérfræðing um allt. það, er varðar afbrigðilegan
1 jósaútbúnað.
Hér verður að lokum getið einnar skemmti-
legrar lýsingar enn, sem ég hef rekizt á hjá
Dolcis í Oxford Street í London. Þar inni ríkir
hljóðlátt og róandi andrúmsloft, sem stafar af
hinni óbeinu lýsingu. Reyndar er flestum vel
kunnugt, að óbein lýsing er ekki eins áhrifarík
og hein eða hálfbein lýsing, en árangur hennar
er oft hinn ágætasti og réttlætir iðulega þann
auka-tilkostnað, sent hún útheimtir.
Sá galli er þó á þessari lýsingu, að hún virkar
nokkuð ,,þung“ til loftsins, en ég er viss um að
þetta atriði má lagfæra, með því að setja upp
fáeina bjarta lampa í beinni sjónarhæð. Einnig
má gera þetta með uppljómuðum sýningarköss-
um eða ljósaskiltum.
(Þýtt úr ,,Display“).
1. Kasiljós-lampi.
2. Útstillingarlampar.
3. Hálsbindá„stativ“.
FIUÁLS VERZLUN
185