Morgunblaðið - 19.08.2004, Síða 40
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Finnbogi Sig-marsson fæddist í
Svínavallakoti í Una-
dal 31. október 1916.
Hann lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut, 9. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Sigmar
Þorleifsson, f. að
Hrauni í Unadal í
Skagafirði 15. októ-
ber 1890, d. 27. febr-
úar 1968 og Krist-
jana S. Guðmunds-
dóttir, f. í Svínavalla-
koti í Unadal í Skaga-
firði 14. september 1888, d. 10.
mars 1945.
Bræður Finnboga eru: Guð-
mundur, f. 3. maí 1913, d. 13. júlí
1993, Ingólfur, f. 23. júlí 1914, d.
16. febrúar 1993, Hjálmar, f. 24.
apríl 1919, Sigurbjörn M., f. 2.
apríl 1922, Vilhelm, f. 5. mars
1925, Jakob, f. 25. febrúar 1928, d.
7. apríl 1996, Valgarð Hólm, f. 24.
nóvember 1931.
Finnbogi kvæntist 12. janúar
1946 Hjördísi Gunnarsdóttur, f. 4.
ágúst 1919, d. 2. mars 2004. For-
eldrar hennar voru Gunnar Guð-
mundsson, f. á Hóli í Skagafirði
27. júní 1898, d. 30.
júlí 1976 og Guðrún
Jónsdóttir, f. í
Bakkakoti í Vestur-
dal í Skagafirði 28.
september 1883, d.
11. júlí 1973.
Börn þeirra Hjör-
dísar og Finnboga
eru: 1) Birgir, kenn-
ari og eigandi Súfist-
ans, f. 18. september
1948, kvæntur
Hrafnhildi Blomst-
erberg kórstjóra, f.
22. október 1956.
Börn þeirra eru a)
Valgerður líffræðingur, f. 6. sept-
ember 1976, sambýlismaður Dav-
íð Smári Jóhannsson flugstjóri, f.
7. janúar 1976, og b) Hjördís, f. 20.
janúar 1982. 2) Lilja María kenn-
ari, f. 15. júní 1952, gift Árna
Baldurssyni flugumferðarstjóra,
f. 9. ágúst 1960. Börn þeirra eru
Elva, f. 5. júní 1985 og Finnbogi, f.
14. desember 1988.
Finnbogi og Hjördís bjuggu alla
sína tíð að Garðavegi 15 í Hafn-
arfirði.
Útför Finnboga verður gerð frá
Víðistaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Hann Finnbogi afi minn var alveg
einstakur maður og hef ég alla mína
tíð tekið mér hann til fyrirmyndar
og elskað af öllu mínu hjarta. Hann
var mjög hjartgóður og vildi ávallt
gera vel við alla. Afi var heill hafsjór
af sögum og þótti gaman að fara
með vísur.
Ég naut þess að vera í návist við
hann á hverjum degi þar sem ég bjó
á Garðavegi 15 fyrstu æviárin og
var stutt að skríða upp stigann til
afa og ömmu. Eftir að ég flutti það-
an hef ég haft annan fótinn hjá þeim
og gerðu þau ávallt vel við mig. Allt-
af þegar eitthvað bjátaði á hljóp ég
yfir Víðistaðatúnið heim á Garðó í
stóra fangið hans afa sem læknaði
öll sár. Auðvitað sakaði ekki ef hún
amma lumaði á kanilsnúðum eða
brúntertu. Ég gisti þar margar næt-
ur og bauð oft vinkonum mínum að
koma með mér. Þar var skemmti-
legast að leika sér og minnist ég
margra skemmtilegra atvika. Já,
óhætt er að segja að Garðavegurinn
hafi verið annað heimili mitt.
Eins og þú veist, afi minn, þá hef
ég alla mína ævi haft mikið dálæti á
þér og ömmu og þykir mér erfitt að
kveðja þennan yndislega og ómet-
anlega tíma sem ég naut þess að
vera með ykkur. Mér þykir sárt að
nú sé komið að kveðjustund okkar
og ekki eru nema fimm mánuðir síð-
an við kvöddum hana ömmu saman.
Hún gat greinilega ekki verið án
þín. Það hljóta að finnast tilkomu-
meiri orð en eitt lítið „þakka þér
fyrir“. Það tjáir ekki brot af mínu
þakklæti í þinn garð. Ég finn engin
orð sem geta lýst því hve ótrúlega
þakklát ég er fyrir að hafa haft þig
og ömmu í lífi mínu.
Kæri afi, ég kveð þig með þessum
orðum: Góðar minningar skal varð-
veita.
Allir ættu að eiga sérstaka mann-
eskju sem þeir virða og dá, ein-
hverja sem þeir læra af, einhverja
sem þeir elska.
Þess vegna ættu allir að eiga afa
eins og þig.
Minning þín lifir í hjarta mínu að
eilífu.
Elva Árnadóttir.
FINNBOGI
SIGMARSSON
Ég vil þakka Finnboga fyrir
nærveruna, allt frá því að ég var
unglingur og fékk að kynnast
mannkostum hans. Hann hafði af
miklu að miðla, án þess að mikið
færi fyrir og var drengur góður.
Bjarni S. Ásgeirsson,
Hafnarfirði.
HINSTA KVEÐJA
„Blessaður, afi!“ Ég
hugsa að ég hafi nánast
alltaf heilsað þér svona.
„Hvað segja bændur?“
eða kannski „Er Jökull
ekki vaknaður?“
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að búa í næsta húsi við þig og
ömmu nánast alla barnæskuna. Við
Jökull lékum okkur sem bræður alla
daga hjá ykkur á Esjuvöllum 10 eða
úti í móa ef veðrið var gott. Það er
sérstaklega gaman að hugsa um
ferðirnar í hesthúsið. Fyrst voru þar
bæði kindur og hestar en síðar bara
hestarnir og jú, hesthúskötturinn
Brandur sem við Jökull höfðum mik-
ið gaman af. Ekki höfðum við síður
gaman af því að sjá Magnús á End-
anum borða síldina beint upp úr
tunnunni. Við Jökull fengum hið
virðulega starfsheiti gullagull í hey-
skapnum. Við fengum að sitja upp á
heyvagninum milli stykkisins og
hesthússins og þar kepptust við um
að tína peninga af peningablómum í
heyinu. Minningarnar eru margar
og skemmtilegar. Það var alltaf fjör
þar sem þú varst og ég man ekki eft-
ir þér öðruvísi en að grínast og í góðu
skapi.
Ég veit líka að það var þessi lífs-
SVAVAR
KARLSSON
✝ Svavar Karlssonfæddist á Bæ á
Selströnd í Stranda-
sýslu 30. mars 1935.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Akraness 4.
ágúst síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Akraneskirkju
13. ágúst.
gleði sem gaf þér auka-
ár þegar þér voru gefn-
ar nokkrar vikur
ólifaðar. Þegar ég kom
og heimsótti þig eftir
skurðaðgerðina var
ekki að sjá á þér að þú
hefðir verið í lífshættu-
legri heilaskurðaðgerð.
Fyrir utan saumana á
höfðinu var það helst
smá pirringur út í
hjúkkurnar sem gaf til
kynna að eitthvað
óvenjulegt hefði átt sér
stað. Sá tími sem við
eyddum saman á
sjúkrahúsinu þá er mér nú ómetan-
legur og er ég innilega þakklátur að
þú fékkst tækifæri til að kynnast
dóttir minni, Sigrúnu Freyju, sem
fæddist skömmu síðar. Þú lést þig
svo ekki vanta í 1 árs afmælið hennar
þrátt fyrir að vera orðinn mikið veik-
ur. Núna síðustu dagana þegar lík-
aminn var búinn að gefa sig fann ég
andann enn fjörlifandi í augunum
þegar ég spjallaði við þig og fann að
þú fylgdist vel með þó þú gætir ekki
tekið þátt í umræðunum í kringum
þig.
Hver veit nema þú hafir ósjálfrátt
verið að búa þér til fley yfir móðuna
þegar þú varst að sansa bátinn úti í
skúr. Að minnsta kosti sé ég þig fyrir
mér siglandi í átt að sjónarrönd á
bátnum, glaðan í bragði, með Tinu
Turner í útvarpinu og Brand á dekk-
inu.
Ég mun sakna þín um ókomna tíð
afi minn. Blessaður, afi!
Kveðja,
Hrannar.
Íþróttahús
Baðvörður óskast í kvennaklefa
Starfið krefst þolinmæði, snyrtimennsku og
viðkomandi verður að vera barngóður.
Umsóknir skal senda til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 24. ágúst merktar: „Baðvörður — 15906“
eða á box@mbl.is.
Vanur fisksölumaður
óskast
Óskum eftir sölumanni sem hefur reynslu af
sölu á saltfiskflökum og öðrum fiskflökum.
Þarf helst að vera spænskumælandi. Góð laun.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl., merktar:
„F — 15894“, eða í box@mbl.is fyrir 30. ágúst.Vaktstjóra vantar
Óskum eftir að ráða vaktstjóra til starfa. Starfið
felst meðal annars í því að sjá um uppgjör,
þjálfun starfsfólks, pantanir og afgreiðslu.
Um er að ræða 50% eða 100% starf, dagvinnu
eða vaktavinnu.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Umsóknir á staðnum eða is-mynd@simnet.is .
Nánari upplýsingar í síma 661 6968.
Ís-mynd,
Sunnumörk 2—4, Hveragerði.
Sölumaður fasteigna
Öflug og rótgróin fasteignasala óskar eftir sölu-
manni til starfa. Góð vinnuaðstaða og skemmt-
ilegt starf. Einungis duglegir afkasta-
sölumenn koma til greina. Áhugasamir sendi
inn umsókn fyrir 30.8. 2004 til augldeildar Mbl.
merkta: „Sölumaður 2004 — 15904“.
Lagnamenn/
verkamenn
Óskum eftir vönum mönnum í ofangreind
störf. Reglusemi og stundvísi skilyrði.
Góð laun fyrir góða menn.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Háfells við Hringbraut. Upplýsingar í síma
863 9992 á milli kl. 9.00—19.00.
Lagermaður óskast
Heildverslun í Garðabæ óskar eftir að ráða
starfskraft á lager. Við leitum að röskum, hress-
um, stundvísum og nákvæmum starfsmanni.
Æskilegt að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Umsóknir, ásamt meðmælum, sendist fyrir
31. ágúst til auglýsingadeildar Mbl. eða á
box@mbl.is, merktar: „Lager — 2005.“
Bakarí — afgreiðsla
Okkur vantar duglegan og hressan starfskraft
til afgreiðslustarfa nú þegar. Vinnutími frá
kl. 13.00—18.30 alla virka daga. Framtíðarstarf.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 13.00 og 16.00
(Björg).
Bakarinn á hjólinu,
Álfheimum 6.
Fimmtudagur 19. ágúst
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Ræðumaður Carolyn Arthur.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Föstudagur 20. ágúst
AA Nýliðadeild Hverfisgötu 42.
Fundur kl. 20:00.
Þriðjudagur 24. ágúst
Ungsam í Þríbúðum, Hverfis-
götu 42, kl. 19:00.
Uppbyggilegt starf fyrir ungt
fólk í bata.
www.samhjalp.is
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
mbl.is
ATVINNA