Morgunblaðið - 19.08.2004, Síða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2004 43
Elsku tengdapabbi.
Bros og gleði er
minning mín um þig.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(Valdimar Briem.)
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
ÞRÖSTUR
HELGASON
✝ Þröstur Helgasonfæddist í Hvera-
gerði 20. september
1946. Hann lést 25.
júlí síðastliðinn og var
jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju 3. ágúst.
síðast þegar ég
sofna fer
sitji Guðs englar
yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt
og allt.
(Valdimar Briem.)
Ljós þitt mun skína
yfir okkur.
Þín er sárt saknað.
Marta.
Fallinn er nú frá einn okkar allra
besti fagmaður sem menntastofnun
þessa lands hefur átt í húsgagna-
smíði.
Þröstur Helgason lést 25. júlí síð-
astliðinn eftir langvarandi veikindi.
Samt tók maður lítið eftir því, svo
vel bar hann byrðina út á við.
Verður hans sárt saknað, bæði
fyrir það hversu yndislegur maður
hann var og ekki síður fyrir alla þá
fagmennsku og þekkingu sem hann
hafði að geyma og var svo örlátur að
miðla til nemenda sinna sem og ann-
arra.
Þresti kynntist ég snemma eftir
að ég fór að vinna við húsgagnaiðn-
aðinn, og þá sérstaklega eftir að ég
stofnaði heildverslunina Hegas fyrir
rúmum 16 árum síðan, en það er
heildverslun með hráefnisvörur, vél-
ar og verkfæri fyrir tréiðnaðinn.
Fengum við oft tækifæri til að
halda fyrirlestra og kynningar á nýj-
um vörum í Iðnskólanum í Reykja-
vík þar sem Þröstur starfaði og oft-
ar en ekki fyrir tilstilli hans, því
hann var mjög faglega sinnaður og
afar upplýstur um nýjungar, sem
hann vildi svo gjarnan miðla til nem-
enda sinna. Var hann þá gjarnan
hnitmiðaður í fyrirspurnum, til þess
eins að nemendur hans næðu betri
skilning á því sem verið var að
kynna.
Þröstur hafði miklar skoðanir á
hlutunum og bjó yfir víðtækri þekk-
ingu í faginu, og var því ávallt mjög
gaman og gagnlegt að bera undir
hann nýjar vörur og nýjar lausnir
fyrir iðnaðinn þegar slíkt bar að
garði.
Veit ég að hans og þekkingar hans
er sárt saknað í Iðnskólanum í
Reykjavík sem og húsgagnaiðnaðin-
um öllum.
Vil ég votta fjölskyldu Þrastar,
sem og samstarfsfólki hans hjá Iðn-
skólanum dýpstu samúð mína.
Axel Eyjólfsson.
Elsku stóri bróðir,
fregnirnar um andlát
þitt bar skjótt að, við er-
um öll harmi lostin yfir
því að þú sért farinn yfir
móðuna miklu, já, mað-
ur er bara ekki búinn að
átta sig á því að þú kom-
ir aldrei aftur, en veistu
það að góðar minningar um þig eiga
eftir að streyma um huga minn þann
tíma sem ég á eftir ólifaðan.
Ég er langyngstur í systkinahópn-
um og þú varst fluttur að heiman er
ég kom í þennan heim, þú varst þá
orðinn 24 ára gamall, búinn að finna
þína ástkæru eiginkonu og byrjaður
að búa. Margar af mínum ljúfustu
æskuminningum voru þegar pabbi og
mamma fóru með mig í bíltúr til
Grindavíkur, í Borgarhraunið þar
sem þið bjugguð um margra ára
MAGNÚS KJARTAN
ÁSGEIRSSON
✝ Magnús KjartanÁsgeirsson fædd-
ist 1. apríl 1944. Hann
varð bráðkvaddur
laugardaginn 10. júlí
síðastliðinn og var út-
för hans gerð frá
Garðakirkju 19. júlí.
skeið. Mér fannst svo
spennandi að koma
þangað og fá að kíkja í
bílskúrinn og að skoða
baujurnar og netin sem
þar voru og alls kyns
dót, sem þar var geymt
sem viðkom sjó-
mennsku, og að leika við
börnin ykkar og fá að
horfa á Kanasjónvarpið.
Ég beið alltaf með eft-
irvæntingu eftir að fá að
fara sem fyrst aftur,
enda voruð þið hjónin
alltaf höfðingjar heim
að sækja, já, bróðir
minn þú varst höfðingi
„mikill“. Það hefur verið höggvið
stórt skarð í fjölskylduna með ótíma-
bæru andláti þínu.
Ástkær móðir mín, Sigurbjörg, og
börnin þeirra, Pálmi, Garðar, litli
Kjartan og Dana og fjölskyldur, ég
sendi ykkur mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Bróðir, þú ert farinn að
sigla á vit nýrra ævintýra, en minning
um ljúfan og góðan dreng mun aldrei
slokkna. Blessuð sé minning hans.
Þinn bróðir
Einar.
Volvo V40 07/03. Ekinn 18.000
km. 2000 cc. Beinskiptur. Ásett
verð 2.660.000 kr.
Subaru Legacy 10/99. Ekinn
73.000 km. 2000 cc. 4x4. Bein-
skiptur. Ásett verð 1.420.000 kr.
Subaru Legacy 06/97. Ekinn
125.000 km. 2000 cc. 4x4. Bein-
skiptur Ásett verð 990.000 kr. Til-
boð 770.000 kr. 100% LÁN Í 36
MÁN., MEÐALGR., 27.125 KR.
Staðgreidd milligjöf. Fallegur
Ford Mondeo ´97, sjálfsk., ek. 96
þ. Aðeins 2 eig., í skipt. f. sam-
bæril. bíl yngri en '00, lítið ekinn.
Min. 2000 vél og sjálfsk. Aðeins
reykl., fallegir bílar koma til gr.
Milligj. allt að 800 þ. Tilb. skilað
í netf. mondeoghia97@yahoo.dk.
Skoda Fabia 07/02. Ekinn 19.000
km. 1400 cc. Beinskiptur. Ásett
verð 1.070.000 kr.
Opel Astra 16v STW. 11/02 Ek-
inn 28.000 km. 1600 cc. Sjálfskipt-
ur. Ásett verð 1.860.000 kr.
1.490.000 kr. 100% LÁN Í 60
MÁN., MEÐALGR. 32.725 KR.
Ford Mondeo Ghia 09/03. Ekinn
14.000 km. 2000 cc. 146 Hö. Sjálf-
skiptur. Ásett verð 2.480.000 kr.
Tilboð 2.290.000 kr. 100% LÁN Í
72 MÁN., MEÐALGR., 43.325 KR.
Ford Focus Trend 05/02. Ekinn
60.000 km. 1600 cc. Beinskiptur.
Ásett verð 1.430.000 kr.
Daihatsu Gran Move 08/00. Ek-
inn 50.000 km. 1600 cc. Beinskipt-
ur. Ásett verð 850.000 kr.
Citroen Picasso 04/03. Ekinn
22.000 km. 2000 cc. Sjálfskiptur.
Ásett verð 1.950.000 kr. Tilboð
1.850.000 kr.
Citroen C5 Luxury 04/02. Ekinn
80.000 km. 2000 cc. Beinskiptur.
Ásett verð 1.720.000 km.
Chrysler Town And Country Lxi
ek. 114 þ. 7 manna lúxus fjöl-
skyldubíll. Verð 1.950 Þ. Uppl. í
síma 696 0874.
Hyundai Starex dísel árg. '02,
ek. 45 þús. Starex 4x4, breyttur
f. 32" dekk, mikið af aukahl.: loft-
kæling, dvd, hiti í sætum, kastar-
ar, stigi, tölvukubbur og margt
fleira. Verð 3.100 þ. Uppl. í síma
897 4788.
Euramobil glæsivagn. Fiat Duc-
ato 14, árgerð 2000, 2,8 TDI vél.
Euramobil 585LS hús. Vel með
farinn og vel útbúinn heilsársbíll.
Myndir á www.husbilar.is.
Upplýsingar í síma 899 1175.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Opel Astra árg. '96. Opel Astra
Station til sölu. Nýskoðaður.
Sjálfskiptur. Mjög lipur og þægi-
legur. Ek. 120 þús. km. Verð 300
þúsund. Sími 695 9713 (Eydís) eða
698 5214 (Ingólfur).
Til sölu VW Bora '99. Ekinn 86
þús. Mjög vel með farinn. Drátt-
arkrókur, aukadekk, geislaspilari,
reyklaus. Upplýsingar í síma 894
4272, 894 4200, 461 1888.
Porsche Boxter árg. '00, ek. 29
þús. km. Porsche Boxster S 07/
2000. Blæja + harðt. Einn eigandi
frá upphafi. Rauður. 252 hp. Verð-
tilboð. S. 840 7033.
Jafnframt öll önnur meindýra-
eyðing. Áralöng reynsla í for-
vörnum og eyðingu meindýra. Öll
tilskilin leyfi og réttindi.
mbl.is