Morgunblaðið - 07.11.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2007 27
aðeins að missa móður sína heldur
líka besta vininn. Hún skilur eftir sig
stórt tómarúm í lífi okkar allra.
Það er stundum sagt að þegar
sorgin sé stærst sé hjálpin næst. Sú
mikla og kærleiksríka umönnun sem
mamma naut frá eiginmanni sínum,
börnum og öðrum ættingjum hefur
gert þessa liðsheild enn sterkari og
samstilltari en nokkru sinni fyrr, var
þó samstaðan góð fyrir.
Mamma, þú vildir ekkert hól, þú
vildir láta verkin tala. Þú hefur séð
börnin þín verða fullorðið fólk, börn
þeirra og barnabörn öll heilbrigð og
falleg, þú varðaðir veginn, þetta er
allt gjöf þín til lífsins. Ættartréð þitt
mun blómgast á hverju ári, alltaf
munu koma fleiri og fleiri sprotar,
lífið hér er hluti af stærri tilveru,
sem við öll erum þátttakendur í.
Elsku mamma, nú getum við ekki
lengur haldið í höndina á þér,
kveðjustundin var löng og sár en sá
sem öllu ræður er tíminn, hann var
kominn. Við þökkum þér langa kær-
leiksríka samleið, þar sem heiðar-
leiki og góðvild vörðuðu veginn.
Mamma, þú átt ávallt vísan stað í
hugum okkar allra. Guð blessi þig.
Brynja og Hildur.
Elsku amma mín. Ég vil senda þér
bænina sem þú gafst mér í fallegum
ramma sem er hjá rúminu mínu.
Vertu yfir allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Takk fyrir öll góðu árin, amma
mín. Ég vona að þér líði vel núna. Ég
sakna þín.
Alda Marín Kristjánsdóttir.
Elsku amma Sirrý. Okkur langar
til að þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum með þér
og afa. Það var alltaf svo gott að
koma til þín og sitja að spjalli við eld-
húsborðið, þú varst alltaf svo glöð og
góð við okkur. Á meðan við borð-
uðum kræsingarnar sagðir þú okkur
fréttir af stórfjölskyldunni og minn-
ingar okkar um þig eru allar góðar
og þótt þú hafir átt erfiða daga
kvartaðir þú aldrei. Þær voru ófáar
flíkurnar sem þú bjóst til á barna-
börnin og á fyrstu árunum okkar
klæddumst við oft fötum eftir þig,
hvort sem þau voru saumuð eða
prjónuð.
Það var sárt að sjá hversu veik þú
varðst á svo stuttum tíma og hversu
hratt líf ykkar afa breyttist en elsku
amma Sirrý, við elskum þig og við
skulum passa afa fyrir þig.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Höf.: Ólöf Sigurðardóttir.)
Róbert Ómar og
Telma Kolbrún.
Elsku amma,
Takk fyrir að vera þú og að vera
besta amma sem hugsast getur. Þín
er sárt saknað og við elskum þig
mest.
Þessi orð eru fátækleg í saman-
burði við lífstíð af kærleik og ynd-
islegum minningum, en við erum
þakklát fyrir að hafa haft þig hjá
okkur eins lengi og við gerðum.
Þú varst svo sterk og jákvæð og
hefur gefið okkur mikilvægt vega-
nesti út í lífið sem, eins og þú, mun
fylgja okkur ávallt. Nú tekur nýtt
ævintýri við hjá þér en við sjáumst
aftur seinna.
Við elskum þig og erum stolt að
hafa átt þig sem ömmu.
Sigríður Jónsdóttir
og Jón Gauti Jónsson.
Elsku amma okkar. Við viljum
þakka þér fyrir öll skemmtilegu árin
sem við áttum með þér – þegar við
vorum litlir var ekkert skemmti-
legra en að fara í Sævó á sunnudög-
um og fá vöfflur og kleinur. Þú og afi
tókuð alltaf svo vel á móti okkur. Við
eigum einstakar minningar um þig,
amma mín. Hvíl í friði.
Einar Orri Kristjánsson.
Viktor Ingi Kristjánsson.
Elsku amma langa. Við vorum
mjög sorgmædd þegar mamma
sagði okkur að þú værir farin til
Guðs. En nú líður þér örugglega
mikið betur. Amma, þú varst falleg
og góð kona. Þú varst mjög hlý og
góð amma. Þú varst með svo ofsa-
lega falleg, brosandi augu. Þú áttir
alltaf sleikjó í skúffunni og dót í
leynikörfunni þinni í svefnherberg-
inu. Það var gott að koma í heimsókn
til þín og afa í Sævó.
Hafðu það gott með englunum hjá
Guði.
Þín
Elma Rún og Aron Gauti.
Með þessum fáu línum langar mig
að minnast vinkonu minnar Sigríðar
Kristinsdóttur, Sirrýjar eins og hún
var ætíð kölluð. Þegar einhver fellur
frá, sem hefur verið hluti af tilveru
manns lengi, myndast tómarúm sem
aldrei verður fyllt. Söknuðurinn fyll-
ir hugann og kallar fram svipmyndir
frá liðnum dögum. Kynni okkar Sir-
rýjar hófust er hún giftist góðum
vini okkar hjóna Kristjáni Jóhanns-
syni, til heimilis í næsta húsi við okk-
ur. Við urðum strax góðar vinkonur
og óx vináttan með árunum.
Fjölskyldan skipti Sirrý mestu
máli og hún var mjög stolt af upp-
runa sínum á Suðurnesjum og allri
fjölskyldunni. Hún studdi börnin sín
þéttingsfast í hverju því sem þau
tóku sér fyrir hendur, var tengda-
börnunum afskaplega góð og elskaði
barnabörnin sín.
Hún var glæsileg kona, hlýleg og
alltaf glöð. Einnig var hún bráð-
myndarleg í öllu sem hún tók sér
fyrir hendur.
Sjálf fékk hún því miður alltof oft
á lífsleiðinni að reyna að lífið er ekki
alltaf auðvelt.
En með elskulegum eiginmanni
Kristjáni Jóhannssyni átti hún bjart-
ar stundir. Þau ferðuðust mikið, inn-
anlands sem utan.
Við eigum mörg eftir að sakna
þessarar vinkonu okkar sáran og
skarð er fyrir skildi. En sárastur er
söknuðurinn hjá nánustu ástvinum
hennar. Hjá þeim er hugur minn og
ég bið Guð að gefa að fjársjóður
minninganna sem Sirrý lætur eftir
verði þeim huggun og styrkur í sorg-
inni.
Guð blessi minningu Sigríðar
Kristinsdóttur
Sigrún Þórarinsdóttir.
Í svo mörgum
myndbrotum birtist
elskuleg frænka mín
hún Dilla, er ég hugsa
til baka. Hennar lífsganga var löng,
oftast létt, en oft ströng. Aldurinn
hár og mörg eru að baki ár. Sam-
ferðamenn og vinir flestir farnir,
fjölskyldan stór og kynslóðir
nokkrar.
Dilla hafði einstaka lund, var
ekki allra, en dygg þeim sem hún
unni. Hún gat verið ákveðin og föst
fyrir, eins og einkennir Magnúsar-
ættina. Að sama skapi var hún
hvetjandi og meiningargóð. Skörp
og fljót til svars. Frásagnargáfa og
stíll hennar voru með eindæmum.
Mannlýsingar og atburðir urðu
ljóslifandi. Þar opnuðust aðrir
heimar, nýjar víddir. Og oft var ég
búinn að gleyma mér í spjalli okkar.
Við sátum í dagsbirtunni í notalegri
stofunni hennar í Eskihlíð og spjöll-
uðum. En það rökkvaði og inn um
gluggann skein birta frá gömlum
ljósastaur. Eina tíran í húsinu.
Edda tengdadóttir Dillu bankaði
upp á og vildi vita hvort ekki væri
allt í lagi, „Jú, jú, við Kalli frændi
minn sitjum hér í myrkrinu að
spjalla,“ sagði hún glaðlega þar sem
hún sat í ruggustólnum sínum.
Hlíf Petra
Magnúsdóttir
✝ Hlíf PetraMagnúsdóttir
fæddist á Skrið-
ustekk í Breiðdal
26. september 1908.
Hún lést 22. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Eydala-
kirkju í Breiðdal 3.
nóvember.
Staður og stund
gleymdist í notalegri
nærvera Dillu. Alltaf
var stutt í glettni og
hláturinn. Það skipti
engu þótt kynslóðabil-
ið væri langt á milli
okkar, við náðum
saman sem mestu
mátar.
Dilla var listhneigð
mjög. Natin við það
sem hún tók sér fyrir
hendur. Til margra
ára var hún orgelleik-
ari við Heydalakirkju
í Breiðdal, hélt fallegt heimili af
mikilli gestrisni og heklaði af list.
Hún var stóra systir Stefáns föð-
urafa míns sem er látinn. Þeirra
vinátta bar vott af kærleika og
trausti.
Í minningu daga minna sé ég
Dillu frænku og afa minn Stefán
fyrir mér, þar sem Dilla situr við
orgelið og spilar af hjartans ham-
ingju og afi stendur reistur hjá og
syngur klingjandi bassann. Þau eru
glöð. Ljúfar minningar eru til að
orna sér við og þakka ber fyrir góð-
ar stundir.
Börnum Dillu og ástvinum þeirra
sendi ég samúðarkveðju.
Það blása blíðir vindar
golan strýkst við kinn,
kerti þitt er slökknað
þig kveð í hinsta sinn,
hljóma strengir þýðir,
skyggja fer í sveit,
því sest er sól í sæinn
við þinn fagra reit.
(kep)
Hvíl í friði, elsku frænka,
Karl Emil Pálmason.
Elsku mamma mín.
Nú hefur þú fengið hvíldina góðu
hjá guði, ég efa ekki að þér líður
miklu betur núna hjá Honum. Þú átt-
ir því miður ekki þá gæfu að vera
heilsuhraust meginhluta þinnar ævi.
En þú barst þig alltaf vel þrátt fyrir
það og kvartaðir ekki, allavega ekki
við mig. Ég minnist þess fyrir vestan,
í mínum fæðingarbæ, Bolungarvík,
þar sem þú og pabbi bjuggu og óluð
okkur upp, hversu dugleg þú varst að
hugsa um okkur þó þú hefðir ekki
mikla peninga til að spila úr. En ég
minnist ekki þess að hafa skort neitt
en pabbi hafði ekki svo mikil laun.
Uppeldið á okkur systkinunum lenti
á þér vegna þess að pabbi vann mikið
og var lítið heimavið eins og tíðkaðist
á þessum tíma. En það var ekki síst
nýtni og dugnaði þínum að þakka að
ekkert skorti á heimilið. Þar sem að
nú er frekar stutt til jóla minnist ég
þess að í þá tíð var nú ekki hlaupið út
í búðir til að kaupa föt á okkur systk-
inin. Nei, ekki aldeilis. Í október og
nóvember lást þú meira og minna á
fjórum fótum og varst að sníða jóla-
fötin á okkur öll. Og allar smákök-
urnar sem þú bakaðir, þær voru svo
góðar að þú þurftir oft að minna okk-
ur á að þetta væru nú kökur sem við
ættum að njóta um jólin, ekki fyrr!
En það var oft erfitt að standast
freistinguna. Árin okkar í Bolungar-
víkinni eru mér ofarlega í huga en
það kom þó að því að við þurftum að
flytja suður til Reykjavíkur vegna
þess að þú þurftir oft á læknisaðstoð
að halda. Ég man hvað þú lagðir
áherslu á það við pabba að þetta væri
eina leiðin fyrir þig vegna þess að það
þýddi ekki að standa í sífelldum
ferðalögum á milli Bolungarvíkur og
Reykjavíkur. Þú varst ákveðin og
vissir að þetta var það sem þurfti að
gera þó að pabbi hafi ekki verið tilbú-
inn að fara. En pabbi sá þó að þér var
alvara og vissi að þú þurftir að fara
og setti því húsið á sölu, hann varð þó
eftir fyrir vestan um tíma. Þú fórst á
undan okkur suður til þess að kaupa
íbúð handa okkur og festir kaup á
íbúð á Krosseyrarveginum. Á meðan
var ég að hlaða dótinu okkar í gám til
að koma honum í skip. Síðan kom ég
með krakkana með flugi og þú tókst á
móti okkur en þau yngstu voru mjög
spennt að fara í flugvélina og að flytja
á nýja staðinn.
Eftir að við fluttumst til Hafnar-
fjarðar hefði lífið átt að verða aðeins
auðveldara fyrir þig en sá skæði
fjandi alkóhólismi herjaði á okkar
fjölskyldu eins og svo margar aðrar
fjölskyldur. Því miður þurftir þú að
horfa uppá þína elstu syni, Bæring
og Jónas, falla fyrir þeim skæða sjúk-
dómi. Það tók mjög á þig að horfa á
eftir þeim í gröfina langt fyrir aldur
fram. Og veit ég að þú hefur þurft að
búa við miklar áhyggjur vegna þess.
En nú ertu komin á betri stað,
mamma mín, þar sem engar þrautir
og áhyggjur herja á þig.
Oft voru samskipti okkar ekki eins
og við hefðum viljað hafa þau en
þrátt fyrir allt varstu frábær móðir
og þótti mér afar vænt um þig. Þó að
þetta hafi þróast svona varst þú
ávallt í huga mínum þó ég hafi ekki
endilega sýnt það og harma ég það
mjög.
Það er sárt að kveðja þig en góðu
minningarnar okkar mun ég geyma í
hjarta mér.
Ég kveð með ljóði Jónasar bróður,
Hugarró, úr ljóðabókinni Vængbrot-
in orð.
Hafgrænum augum
horfi ég upp til
himingáttar.
Umvafinn friði
og áhyggjuleysi
andans þáttar.
Óttalaus er ég
í öruggum höndum
æðri máttar.
(Jónas Friðgeir Elíasson)
Megi góður Guð geyma minningu
þína. Hvíl í friði, mamma mín.
Þinn sonur,
Hilmar Elíasson.
Þegar ég hugsa aftur um kynni
okkar, þá man ég að það tók mig svo-
lítið langan tíma að kynnast þér. En
þegar þú sást að ég var komin til að
vera, þá varstu mér virkilega góð.
Þegar sá tími í lífi okkar kom að við
þurftum virkilega á hjálp þinni að
halda, þá hleyptir þú okkur inn á þitt
yndislega heimilli og þó að þú vissir
það ekki þá, þá lærði ég margt af þér
þann vetur, bæði með eldamennsku
og heimilishald.
Þú varst mjög heimakær og best
þótti þér að fólkið þitt kæmi í heim-
sókn til þín en að þú færir á flakk um
bæinn. Það var líka gott að koma í
heimsókn til þín á sunnudegi og fá
gott kaffi og nýbakaðar vöfflur.
Þú hafðir mikil áhrif inn á heimilið
okkar Halldórs, þú varst góð móðir,
tengdamóðir og amma. Það er komið
stórt skarð í fjölskylduna að missa
þig.
Það var alltaf gaman að heyra þína
skoðun á þjóðarsálinni og málefnum
dagsins. Þú varst búin að upplifa
margt á lífsleiðinni og hafðir þess
vegna sterka skoðun á lífinu.
Ég á eftir að minnast þín oft Svan-
hildur mín og þú verður alls ekki
gleymd í huga mínum og hjarta. Mér
er kært að hafa verið hjá þér síðustu
daga þína hér á jörð.
Hvíl þú í friði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín tengdadóttir
Sesselja Guðbjörg
Ragnarsdóttir.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi,
HÖRÐUR HUGI JÓNSSON,
sem lést fimmtudaginn 1. nóvember, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
8. nóvember kl. 13.00.
Jón Þór Harðarson,
Ólafur Jóhann Harðarson,
Anna Sigurbjörg Harðardóttir,
Hugrún Harðardóttir,
Elísabet Jónsdóttir,
Birgir Jónsson,
Lilja Jónsdóttir,
Tómas Jónsson
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BÆRING VALGEIR JÓHANNSSON,
Geitlandi 8,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 31. október, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 9.
nóvember kl. 13.00.
Björgvin Ó. Bæringsson, Guðrún H. Guðmundsdóttir,
Stella G. Bæringsdóttir, Jón Hjartarson,
barnabörn og barnabarnabörn.