Morgunblaðið - 07.11.2007, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Lenti á öðrum hreyflinum
Fokker-flugvél Flugfélags Íslands
sneri við til Egilsstaða á leið sinni til
Reykjavíkur í gærkvöldi eftir að vél-
in missti olíuþrýsting í öðrum
hreyfli. Flugmaðurinn slökkti á
hreyflinum og lenti vélinni heilu og
höldnu. Engin slys urðu á þeim 38
farþegum sem um borð voru.
» Forsíða
Hörð viðbrögð
Tilkynning Kaupþings banka um
breytt kjör við yfirtöku íbúðalána
bankans vekja hörð viðbrögð, bæði
forstjóra Neytendastofu og við-
skiptaráðherra. Þeir telja vandséð
að breytingin standist samningalög.
» Forsíða
Dregið úr öryggi
Slakað hefur verið á öryggis-
kröfum á Keflavíkurflugvelli frá því
að Flugmálastjórn á Keflavík-
urflugvelli tók við vellinum af Varn-
arliðinu, að því er er slökkviðliðs-
menn fullyrða. Fulltrúaráðsfundur
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna hefur lýst yf-
ir áhyggjum af neyðarviðbúnaði á
vellinum. » 2
Rafrænar kannanir
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra telur mjög góðar lík-
ur á að samningar takist milli sam-
keppnisyfirvalda og verslana um
rafrænar verðkannanir. » 8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Undanhald forstjórans
Forystugreinar: Seðlabankinn í
sókn | Mannfall í Írak
Viðhorf: Skilvísi og flumbrugangur
Ljósvaki: Síbyljan um eigin dagskrá
UMRÆÐAN»
Sinnaskipti ritstjórans
Félagsmiðstöð – hangs eða
heilmikill lærdómur?
!3 3 3 3
3 3!
4 #
5'
/ %,
%
6 %$
%%$%&( #/
3
!3 3 3 3 3 3!
!3 . 7 *1 '
!3 3 3 3 3 89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'77<D@;
@9<'77<D@;
'E@'77<D@;
'2=''@F<;@7=
G;A;@'7>G?@
'8<
?2<;
6?@6='2,'=>;:;
Heitast 5 °C | Kaldast 0 °C
Fremur hæg breyti-
leg átt og skýjað með
köflum, A og NA 5-10
m/s og rigning eða
slydda f. sunnan síðdegis. » 10
Ungir myndlist-
armenn sýna alls
konar verk á sýn-
ingum sem bera
stórskemmtilega
titla. » 38
UNGLIST»
Í hringiðu
grasrótar
BÆKUR»
Hundrað snillingar
teknir fyrir. » 39
Balls of Fury fær
aðeins tvær stjörn-
ur. Þó má hafa gam-
an af smávöxnum og
kiðfættum barta-
skegg með strý. » 40
KVIKMYNDIR»
Misheppnuð
grínmynd
AF LISTUM»
Eftirlætislöggurnar
og -bófarnir. » 40
TÓNLIST»
Páll Óskar gefur út
dansplötu. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ísl. hönnuður beðinn að stela …
2. Jólafötin tekin í tollinum
3. Launin þola ekki dagsljós
4. Lýst eftir bílaleigubíl frá Akureyri
VEGAGERÐIN hefur auglýst eftir
tilboðum í gerð mislægra gatnamóta
á Reykjanesbraut við Arnarnesveg,
á mörkum Kópavogs og Garða-
bæjar. Gert er ráð fyrir hringtorgi á
efri hæð gatnamótanna, á Arnar-
nesveginum, og er það í fyrsta skipti
sem hringtorg er byggt þannig hér á
landi.
Framkvæmdinni á að vera lokið
um mitt ár 2009. Vegagerðin telur að
umferðin um Reykjanesbrautina
eigi að geta gengið vel fyrir sig á
meðan á framkvæmdum stendur
vegna þess að nýja hringtorgið verð-
ur á brúm sem byggðar verða yfir
Reykjanesbraut og á jarðvegsfyll-
ingu sem tengir þær saman.
Arnarnesvegur, sem tengja mun
saman syðri og nyrðri byggðir
höfuðborgarsvæðisins, mun verða
lagður frá þessu hringtorgi og að
Breiðholtsbraut á næstu þremur ár-
um. | 16
Hringtorg á
annarri hæð ÞETTA eru vondar verur eins og Nátttröll. Ekkert sér-staklega huggulegar verur. Nátttröllið fer með mig í
hellinn sinn og lokar mig þar inni,“ segir Putti litli,
söguhetjan í barnaleikritinu Skilaboðaskjóðunni. Ver-
ur þessar er að finna í Ævintýraskóginum, þar sem
Putti býr með mömmu sinni, Möddumömmu sauma-
konu. Nátttröllið rænir honum þegar hann laumast eitt
sinn út í skóginn og lendir Putti þá í miklum, og á köfl-
um ógurlegum, ævintýrum. Á myndinni sést Putti með
tveimur vondum verum í Ævintýraskóginum. | 15
Putti glímir við vondar verur
Skilaboðaskjóðan frumsýnd í kvöld í Þjóðleikhúsinu
Morgunblaðið/Eggert
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SAMKVÆMT lögum þurfa lesbísk
pör, sem eignast barn með tækni-
frjóvgun, að skila undirritaðri yfir-
lýsingu til Þjóðskrár þar sem komi
fram að þær báðar samþykki að sú
móðir sem ekki elur barnið sé kjör-
móðir þess. Ekki má fyrr kenna
barnið við báðar mæður sínar. Séu
foreldrarnir sem fara í tæknifrjóvg-
unina hins vegar gagnkynhneigðir er
engrar yfirlýsingar þörf. Staða lesb-
ískra para sem fara í tæknifrjóvgun
er því sú sama og hjá konum sem
eignast barn og eru ekki í hjúskap
eða skráðri sambúð. Þau börn eru
kennd við þær en mæðurnar geta
kennt þau við föður við feðrun sam-
kvæmt barnalögum.
Gjaldtakan mistök
„Á þetta virkilega að vera svona
eða eiga allir að njóta sannmælis?
Hver gefur börnum nafn, eru það
foreldrarnir, eða Þjóðskrá?“ spyr
Ásdís Þórhallsdóttir, en hún og maki
hennar, Þóra Björk Smith, eignuð-
ust son síðsumars. Létu þær skrá
nafn hans, Sigþór Elías Smith, í
Þjóðskrá, en drengurinn er þar engu
að síður skráður Ásdísarson. Þær
fengu síðar þær upplýsingar hjá
Þjóðskrá, eftir að hafa leitað eftir því
sjálfar, að þær þyrftu að skrifa undir
yfirlýsingu um að Þóra Björk væri
kjörmóðir Sigþórs áður en hægt
væri að kenna hann við hana. Var
þeim sagt að fyrir það þyrfti að
greiða 4.400 kr. Ástæðan var sögð
„líffræðilegur ómöguleiki“.
Skúli Magnússon, skrifstofustjóri
Þjóðskrár, segir að fyrir mistök hafi
konur í þessari stöðu í tveimur til-
vikum verið látnar greiða gjald. | 4
Líffræðilegur ómöguleiki?
Lesbískir foreldrar sem fara í tæknifrjóvgun þurfa að skila
yfirlýsingu til Þjóðskrár vilji þeir kenna barnið við kjörmóður
Í HNOTSKURN
»Réttarstaða samkynhneigðrabreyttist á margan hátt í lög-
gjöf í fyrra.
»Meðal annars urðu þærbreytingar á lögum um
tæknifrjóvgun og barnalögum að
lesbísk pör geta nú farið í tækni-
frjóvgun hér á landi og að sú
þeirra sem ekki elur barnið er
kjörmóðir þess við fæðingu.
Morgunblaðið/Kristinn
Kraftaverk Sigþór Elías Smith kom
í heiminn síðsumars.
♦♦♦
♦♦♦
TÓNLISTARMAÐURINN Mugi-
son hélt útgáfutónleika vegna nýj-
ustu breiðskífu sinnar, Mugi-
boogie, með
hljómsveit í
Edinborgar-
húsinu á Ísafirði
í gærkvöld. Tón-
leikarnir voru
hljóðritaðir og
hófst sala á upp-
tökunni í morg-
un á vefsíðu
Mugison,
www.mugi-
son.com. Með
þessu brjóta Mugison og félagar
blað í íslenskri tónlistarsögu, því
enginn hefur komið tónleika-
upptöku jafnhratt í sölu. Við þetta
má bæta að þúsund eintök eru þeg-
ar seld af plötunni Mugiboogie, þar
af þriðjungur af vefsíðu Mugison.
Blaðamaður Morgunblaðsins,
Arnar Eggert Thoroddsen, fylgdist
með tónleikunum í gær og sagði að
þeim loknum að ótrúlegur kraftur
hefði verið í Mugison og hljómsveit
hans sem spilaði eins og einn mað-
ur, slík var samstillingin.
Tekið upp í
gær, selt í dag
Mugison á tónleik-
unum í gærkvöld.
KONUNGLEGA leikhúsið í Stokk-
hólmi frumsýnir á föstudaginn nýtt
verk eftir Gunnlaug Egilsson, dans-
ara og danshöfund við Konunglega
ballettinn þar í borg. Verkið ber
heitið Degenerator. Gunnlaugur
hannar einnig leikmynd fyrir verkið
og bloggar á vef óperunnar. | 15
Dansverk
fyrir Svía