Eimreiðin - 01.04.1942, Page 17
eimreiðin
Apríl—jún,- 1942 XLVIII. ár, 2. hefti
E9 kem til þín —.
Ég kcm til þín að kveldi dags
í kveðjuskuggum sólarlags
og dvel hjá þér, er daggartár
í dali falla, mild og hljóð.
Ég kem til þín, er röðull rís
og rétt mér þar til starfa kýs,
sem vordís greiðir geislahár
við gljúfrabúans vökuljóð.
Er kvöld og morgunn kinn við kinn
■ kveðju mætast, þig ég finn.
Ég lit á það, sem liðið er,
og lít á það, sem koma skal.
Við hafsbrún rennur sumarsól,
og setzt er hún í lágarskjól.
Við eyjar blár ég vor mitt ver
og vatnanið um fjall og dal.
Ég man það vel, að stund og stund
þú stefndir mér á annan fund.
Ég finn af hrauni fótasár,
af fjörum þungan bylgjunið.
En lengra skal um víðavang
það vor, er barstu mér í fang
við Ijósra morgna leiftrabrár
og Laxár mjúka strengjaklið.
7