Tímarit lögfræðinga - 01.08.1980, Qupperneq 28
ákvæði í 115. gr. íslensku laganna um 1/5 hluta, og í rétti til að krefj-
ast skaðabóta vegna tjóns af völdum stjórnarmanna félagsins, endur-
skoðenda og framkvæmdastjóra, sbr. samsvarandi ákvæði í 133. gr.
2. mgr. íslensku laganna um 1/5 hluta.
Ársreikningar
Bæði í „aktieselskab“ og í „anpartsselskab“ er skylt að senda árs-
reikninga ásamt endurskoðunarskýrslu til þeirra yfirvalda, sem ann-
ast hlutafélagaskráninguna, sbr. samsvarandi ákvæði í 105. gr. íslensku
laganna. Sé hlutafé í „anpartsselskab" minna en 2.000.000.— dkr., er
þó ekki skylda að senda ársreikninga í heild, heldur aðeins aðalniður-
stöðurnar. Þess ber að geta, að eftir lögunum á almenningur rétt á að
kynna sér þessi gögn, eftir að þau hafa borist skrásetningaryfirvöldum.
III. ALMENNUR AÐGANGUR AÐ HLUTAFÉLAGASKRÁ.
FRIÐHELGI UM EINKAMÁLEFNI HLUTAFÉLAGA.
1 íslenskum lögum er mönnum mæltur viss réttur til þess að vera
sér um einkamál sín og refsing lögð við því að raska þeim friði. Það
er ekki einungis fólk, sem þessi réttindi á, heldur vei'ður og að gera
ráð fyrir því, að svipað geti átt við um stofnanir og fyrirtæki. Þannig
er unnt að líta svo á, að ýmislegt, er varðar fjármál fyrirtækis og
rekstur almennt, sé einkamál þess. Ymsir aðilar utan fyrirtækisins,
t.d. skattyfirvöld, eiga þó rétt á að kynna sér gögn um reksturinn.
Aðilar þessir eru yfirleitt bundnir þagnarskyldu um þau mál, sem þeir
komast að í sýslan sinni.
Samkvæmt eldri hlutafélagalögum (1. nr. 77/1921) bar lögreglu-
stjórum í hverju lögsagnarumdæmi landsins að halda hlutafélaga-
skrá. Er hlutafélag var skrásett, bar að afhenda hlutafélagaskránni
ýmis gögn með upplýsingum um félagið, t.d. stofnsamning þess og
samþykktir. Jafnan hefur hverjum og einum verið heimilt að kynna
sér gögn þessi hjá hlutafélagaskrá. Þá var og ákvæði um það í lög-
unum, að aðalniðurstöðu reikninga hlutafélaga skyldi tilkynna til
hlutafélagaskrár ár hvert. Ákvæði þessu virðist lítið eða ekkert hafa
verið framfylgt, en líta verður svo á, að öllum hefði verið frjálst að
kynna sér niðurstöðutölur þessar eins og önnur gögn hlutafélagaskrár-
innar. I 145. gr. hinna nýju hlutafélagalaga segir, að viðskiptaráð-
herra annist skráningu allra íslenskra hlutafélaga og útibúa erlendra
hlutafélaga og haldi hlutafélagaskrá. Við skráningu hlutafélags verð-
90