Tímarit lögfræðinga - 01.08.1980, Side 51
Dómþing í Haag í desember 1979, þegar fjallað var um mál Bandaríkjanna gegn íran.
ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN í HAAG
í Tímariti lögfræðinga hefur nokkrum sinnum verið sagt frá störfum Alþjóða-
dómstólsins í Haag, síðast var greint frá kosningu dómara í 1. hefti 1979. Frá
skrifstofu dómstólsins berast fréttatilkynningar til tímaritsins, og verður hér
sagt frá því, sem þar hefur nýlega komið fram og helst má teljast til tíðinda.
Aðalstörf dómstólsins undanfarið hafa varðað mál Bandaríkjanna gegn
'ran. Málsefnið var ástandið í sendiráði Bandaríkjanna í Teheran. Málsóknin
var hafin 29. nóvember 1979. Sama dag var sett fram krafa um, að dómstóll-
inn notaði heimild í 41. gr. samþykkta sinna um bráðabirgðaráðstafanir og
mælti fyrir um lausn bandarískra gisla, afhendingu sendiráðssvæðisins til
bandarískra yfirvalda, verndun starfsmanna sendiráðsins o.fl. Hinn 15. des-
ember 1979 mælti dómstóllinn fyrir um þau atriði, sem greind voru. Ágrein-
ingur var ekki meðal dómara um þetta atriði. Hinn 24. maí s.l. gekk síðan
dómur. Þar segir:
1) að íran hafi brotið skuldbindingar sínar gagnvart Bandaríkjunum (13 atkv.
gegn 2, Morozov frá Sovétríkjunum og Tarazi frá Sýrlandi á móti)
2) að íran sé ábyrgt vegna þessa (sömu úrslit)
3) að gislar af bandarísku þjóðerni skuli þegar í stað látnir lausir og sendi-
ráðssvæðið látið af hendi (ágreiningslaust)
4) að enginn í sendiráði eða ræðismannsstofu Bandaríkjanna skuli koma
fyrir rétt (ágreiningslaust)
5) að íran sé bótaskylt (12 atkvæði gegn 3, Lachs frá Póllandi, Morozov og
Tarazi á móti)
6) að bætur skuli síðar ákveðnar af dómstólnum, ef aðildarríkin nái ekki
samkomulagi (14 atkvæði gegn einu, Morozov á móti).
Alþjóðadómstóllinn kvað upþ dóm í máli Grikklands gegn Tyrklandi 9. des-
ember 1978, en málið var þingfest 1976 og varðaði landgrunn á Eyjahafi.
Dómstóllinn vísaði málinu frá. Nú er rekið fyrir dómnum mál samkvæmt sér-
stökum samningi frá 1977 milli Túnis og Líbíu um markalínu svæða þessara
ríkja á landgrunninu úti fyrir ströndum þeirra. Loks er þess að geta, að 28.
113