Tímarit lögfræðinga - 01.11.1985, Blaðsíða 13
tilkomu þessarar lagasetningar varð löng bið á því að höfundar stofn-
uðu með sér samtök til eftirlits og gæslu með þeim réttindum sem alda-
mótalöggjöfin veitti þeim.
Fyrstu höfundasamtökin sem stofnuð voru hér á landi munu vera
Bandalag íslenskra listamanna árið 1928, töluvert síðar Rithöfunda-
félag íslands eða árið 1943, þá Félag íslenskra rithöfunda árið 1945 og
enn síðar eða árið 1946 Tónskáldafélag Islands. Þessi félög öll og fleiri
slík verða tæpast talin hrein höfundaréttarfélög, heldur var tilgangur
þeirra öllu heldur af menningarpólitískum toga spunninn auk almennrar
hagsmunagæslu fyrir meðlimi sína.
Hrein höfundaréttarfélög komu fyrst til sögunnar með STEFi, Sam-
bandi tónskálda og eigenda flutningsréttar á árinu 1948, Rithöfunda-
sambandi Islands árið 1957 og Sambandi flytjenda og hlj ómplötufram-
leiðenda á árinu 1973. í framhaldi af og í samræmi við breytingar sem
gerðar voru á höfundalögum með 1. nr. 78/1984, m.a. um gjaldtöku af
auðum hljóð- og myndböndum og upptökutækjum, var á síðasta ári
komið á fót Innheimtumiðstöð skv. 11. gr. höfundalaga til innheimtu
og ráðstöfunar þessara tekna og einnig samtökum til réttargæslu vegna
fjölföldunarréttar, einkum vegna fjölföldunar í skólum, svonefndu
FJÖLlS. Loks var á árinu 1983 stofnað félag „handhafa höfundaréttar
að fræðiritum og kennslugögnum“, m.a. til gæslu þessara réttinda,
Hagþenkir.
2.
I framhaldi af hinu örstutta og ófullkomna sögulega yfirliti hér að
framan skal nú vikið nánar að þeim félögum sem eingöngu eða að meg-
instefnu til hafa með höndum höfundai'éttarlega umsýslu fyrir um-
bjóðendur sína.
a) STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar.
STEF er „hreint“ höfundaréttarfélag fyrir umbjóðendur sína en
gætir ekki hagsmuna þeirra að öðru leyti. önnur réttargæsla en sú
höfundai'éttarlega er í höndum annarra félaga tónhöfunda, og þá eink-
um Tónskáldafélags Islands og Félags tónskálda og textahöfunda. Fyrr-
nefnda félagið hefur einkum innan sinna vébanda tónskáld sem teljast
sinna tónverkum „alvarlegri gerðar“, en hið síðarnefnda tónsmíðum
léttrar tónlistar. Bæði tilnefna félögin fulltrúa í stjórn STEFs og er
jafnræði með þeim innan STEFs á öllum sviðum.
STEFi er ætlað að sinna öllum þáttum réttarvörslunnar. Því ber
samkvæmt samþykktum sínum að berjast fyrir eflingu og v.arðveislu
151