Morgunn


Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 14

Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 14
12 MORGUNN vorir hafa í þessu efni haft einhverja reynslu, þó að þeir hafi að einhverju leyti misskilið hana. Þá eru þau fyrirbrigði, sem vér getum ef til vill nefnt einu nafni eldraunir. Um þau þótti svo mikils vert, að þau voru tek- in til greina í löggjöfinni! I Noregi tíðkaðist járnburður mikið á 11. og 12. öldinni. Menn báru glóandi járn með berum hönd- um eða gengu á þvi berum fótum til þess að sanna sýknu sína eða til þess að sanna það, að þeir færu með rétt mál að öðru leyti, þegar vitnum varð ekki við komið. Eftir því sem stendur í Goðrúnarkviðu III. í Sæmundareddu hefur líka verið til önn- ur aðferð. Goðrún Gjúkadóttir er borin þeim sökum af ambátt manns síns, að hún hafi átt vingott við annan karlmann en manninn sinn. Hún sannar sakleysi sitt með þvi að bregða hend- inni ofan í sjóðandi vatn, og taka upp gimsteina, sem liggja á ketilbotninum. Höndin er heil eftir þetta, og með því er sýkna Goðrúnar sönnuð. Þá er ambáttin látin gera þetta sama, en hönd hennar sviðnar, og af því þykir auðsætt, að hún hafi far- ið með róg. En eldraunirnar voru stundum með öðrum hætti. Berserk- imir óðu logandi eld með berum fótum. Frásagnirnar um ber- serkina eru í mínum augum mjög merkilegar. Þeir komust i eitthvert það ástand, er nefnt var berserksgangur, og meðal annars olli því, að beir urðu miklu sterkari, meðan þeir voru í því, en þeir áttu að sér. Eftir á urðu þeir máttfamir. Vér höf- um nokkuð samstæða frásögn, áreiðanlega, úr sálarrannsókn- arritum nútímans. Maður hét (eða heitir) Skilton, átti heima i Jacksonville i Florida i Bandaríkjunum og var járnbrautar- lestarstjóri. Sjálfsagt hefur hann verið mjög sálrænn, þvi að hann dreymdi merkilega drauma og varð fyrir dularfullum áhrifum, sem stundum forðuðu honum sjálfum og jámbrautar- lest hans frá voða. Einu sinni er hann að fást við það um miðj- an dag, með mönnum sinum, að ná hlutum út úr járnbrautar- vagni til þess að koma þar öðrum hlutum fyrir, jafnframt þeim, sem fyrir voru. Þá missir hann allt í einu meðvitundina inn i þennan heim. Honum finnst farið burt með sig, og það, sem fyrir hann bar, finnst honum svo dásamlegt, að það sé full
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.