Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 54
52
MORGUNN
kvartaði ekki undan aðstæðunum. Hann veitti þvi þó eftirtekt,
að hann átti erfitt með að halda aðgreindmn þeim áhrifum,
sem hann varð fyrir frá hverjum einstökum fundarmanni.
Hann gat þess einnig, að hann hefði orðið fyrir endurteknum
áhrifum frá einhverjum framliðnum allan fundinn.
Þegar skyggnilýsingunum var lokið voru þær vélritaðar af
segulböndunum. Síðan voru fundarmenn kallaðir fyrir A.S.P.
R. einn af öðrum, og hverjum og einum voru afhentar allar tíu
skýrslurnar með lýsingunum og faafði þeim verið raðað af
handahófi. Hver fundarmaður var beðinn að segja til um
hvaða lýsing ætti helzt við um hann. Hann varð líka að rök-
styðja val sitt með þvi að útskýra hvaða atriði i skýrslunni
virtust rétt og hvemig hann væri skyldur eða hvernig hann
hefði þekkt þær persónur, sem hann kannaðist við af lýsingun-
um. Síðan var fundarmaður beðinn að raða hinum lýsingun-
um eftir þvi hvernig þær vörðuðu hann.
Eins og þegar hefur verið minnzt á, telur Hafsteinn sig oft
sjá látið fólk, sem er ekki náskylt fundarmanni en eru fjar-
skyldir ættingjar eða vinir foreldra hans. Flestir fundarmenn
voru ungir og kváðust lítið vita um látna, fjarskylda ættingja.
Því var ákveðið, að E.H. færi með lýsingarnar til foreldra
fundarmanna eða annarra náskyldra ættingja á íslandi til þess
að afla viðbótarupplýsinga. Ef E.H. taldi, að árangur þessara
athugana gæfi tilefni til þess að biðja fundarmann að endur-
skoða röðun sína á lýsingunum gerði hann það. Einn fundar-
manna ungfrú E., ákvað að breyta mati sinu. (Frásögn ungfrú
E. birtist í heild hér á eftir). Vitneskjan frá ættingjunum var
einnig ætluð til þess að hana mætti nota til að sannprófa á
sjálfstæðan hátt yfirlýsingar fundarmanna um skyldleika sinn
og þess fólks, sem þeir könnuðust við í skýrslunum, og draga
úr líkum á því, að þeir annaðhvort ýktu slíkan skyldleika eða
þeim sæist yfir mikilvæg atriði. öll þessi aukarannsókn og
endurksoðun fór fram áður en I.S. sagði E.H. frá raunverulegri
röð fundarmanna.
Flestir fundarmenn héldu því fram, að þeir gætu fundið eitt-
hvað, sem skipti máli fyrir þá, i aðeins einni lýsingu eða tveim-