Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 52
50
MORGUNN
undir manna sótt fundi hans fyrr eða síðar og þar sem íbúatala
Islands er aðeins rúmlega 200.000 er þetta fólk orðið allstór
hluti þjóðarinnar. Enginn fundarmanna var hins vegar per-
sónulega kunnugur Hafsteini og hann þekkti engan þeirra. Að
undanteknum tveim persónum þekktu þeir, sem sáu um til-
raunina ekki fundarmenn áður en þeir tóku þátt í tilrauninni.
Við völdum fyrstu tíu Islendingana, sem buðu sig fram sem
sjálfboðaliða i tilrauninni. Við fengum nöfn þeirra hjá íslenzk-
um fyrirtækjum í New York eða hjá íslendingum, sem hjá
þeim starfa.
Síðdegis þann dag, sem tilraunin var gerð, söfnuðust fundar-
menn fyrst saman í bókasafni A.S.P.R. þar sem við hittum þá
báðir og skýrðum út fyrir þeim hvernig tilrauninni væri hátt-
að. Síðan kom Hafsteinn frá íbúð sinni á fimmtu hæð bygging-
arinnar og hann og Erlendur Haraldsson (E.H.) settust saman
í tilraunaherberginu (á ‘hæðinni fyrir ofan bókasafnið) bak við
ógagnsætt tjald. Þetta tjald skildi miðilinn og E.H. frá um það
bil helmingi tilraunaherbergisins, þar á meðal dyrunum. Þann-
ig gátu hvorki Hafsteinn né E.H. séð þá, sem inn komu eða
fóru frá ytra helmingi herbergisins. Samkvæmt ósk Hafsteins
var herbergið hálfmyrkvað.
Ian Stevenson (I.S.) var í bókasafninu og skrifaði hjá sér
nöfn og heimilisföng fundargesta og ákvað af handahófi í hvaða
röð þeir kæmu inn í tilraunaherbergið. (Hafsteinn og E.H.
fengu ekki að vita um þessa röð fyrr en seinna). Síðan fór I.S.
með fundargestina, einn og einn í einu inn í tilraunaherbergið
þar sem þeir settust nálægt dyrunum, þannig að áðurnefnt
tjald, sem náði yfir þvert herbergið og niður i gólf, skildi þá frá
miðlinum og E.H. Með því móti sáu miðillinn (og E.H.) og
fundarmenn ekki hverjir aðra.
Áður en I.S. fór með fundarmann inn í herbergið brýndi
hann fyrir honum að tala ekki á fundinum og lét hann fá tvo
eyrnatappa til þess að stinga í eyrun. Þegar hann var setztur
hjálpaði IS. honum að setja á sig stereo-heymartæki. Þegar
Hafsteinn talaði hlustaði fundarmaðurinn á Klarinettukonsert
eftir Mozart, sem \ar leikinn frekar hátt. Áður höfðum við