Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 36
34
MORGUNN
við þetta, að hún snýr úr leið og stefnir til vesturs. Mamma
þykist horfa á eftir henni, þar sem hún fór vestur yfir vötnin
framan við Geldinga'holt, norðan við Reykjahól og vestur á
Stóra-Vatnsskarð. Þar hvarf hún. Mamma hafði orð á því um
morguninn hve þreytt hún væri eftir nóttina, og segir um leið:
„Það kæmi mér ekki á óvart, þó að bráðlega skipti um veður,
því að kerlingin var öll svo grá og hrímuð“. Þremur dögum
síðar þurfti faðir minn að fara í nauðsynlegum erindum út á
Sauðárkrók, og hjóst 'hann ekki við að geta komið heim sam-
dægurs. Mamma átti að hirða um skepnurnar á meðan, og fór
hún til gegninga í fjós og fjárhús morguninn eftir í sæmilegu
veðri, en loftið var grátt og þunghúið og illviðrahrannir á
efstu hnjúkum. En um tvöleytið skellur á iðulaus stóúhríð, með
svo miklum veðurgný, að nú, þegar ég hugsa um þennan at-
burð, finnst mér ég ennþá heyra hvininn og finna áhrifin, sem
fylgdu honum. Mamma var mjög áhyggjufull og fannst hún
ekki hafa gengið nógu vel frá fjárhúshurðinni, og tekur hún
nú það ráð að brjótast út í bylinn til þess að gæta að því.
Kemst hún við illan leik út að húsunum, en jafnóðum fennti í
slóð hennar, og er ekki að orðlengja það, að litlu munaði, að
hún yrði úti á heimleiðinni. Veðurofsinn var með eindæmum
og hríðin eins svört og verst getur orðið í norðlenzkum byl. En
lífslöngunin og ábyrgðartilfinningin gagnvart okkur bræðr-
unum, sem vorum einir heima, hefur trúlega gefið henni styrk
og kraft, og heim komst hún, þó að hún seinna gerði sér enga
grein fyrir hvernig hún komst þennan stutta spöl. 1 þessu veðri
varð kona úti milli fjárhúsa og bæjar í Skvttudal, sem er í
Laxárdal norðan og vestan Stóra-Vatnsskarðs, þar sem kerl-
ingin hvarf í draumnum. Var hún að reyna að koma fé í hús í
fjarveru bóndans þar. Þegar fréttin um það barst til okkar,
þótti móður minni sem draumur hennar væri ljóslega kominn
fram. Þess má geta hér, að þetta var sama veðrið og nefnt hefur
verið „Ha-laveðrið mikla“, þegar tveir togarar fórust hér við
land með allri áhöfn.
Síðan spíritisminn hóf göngu sína með atburðunum í Hy-