Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 38
ÆVAR R. KVARAN:
ISLAND VAR ÓSKALANDIÐ
1 ritstjórarabbi siðasta tölublaðs Morguns komst ég svo að
orði meðal annars:
„Margt er ótrúlegra en það, að á Islandi séu góð skilyrði
fyrir jákvæð andleg öfl. Hér á landi hafa engar orustur verið
háðar öldum saman, og reyndar aldrei neinar stórorustur.
Andlegt andrúmsloft ætti því að vera tærara hér en víðast
hvar í heiminum annars staðar. Yfir löndum þar sem blóðugir
bardagar hafa geysað, hvíla árum saman andleg ský — hugs-
anagerfi — sem myndazt og magnazt hafa af þvi andrúmslofti
haturs og ótta sem styrjaldir skapa. Eins og púkinn í þjóðsög-
unni okkar, sem fitnaði af lygum manna, magnast þessi hættu-
legu hugsanagerfi við hatursþrunginn hugsunarhátt, og — það
sem verra er — þangað geta illir menn sótt kraft til ódáða.“
1 þessu ritstjórarabbi minu varpa ég fram þeirri spurningu,
hvort fsland kunni ekki að vera af framangreindum ástæðum
allmögnuð lífsafl-stöð. Ég hygg, að að minnsta kosti hefði dr.
Helgi Péturs orðið mér sammála um það.
Þetta minnir mig á fslandsvin einn, sem ævinlega mun
verða mér ógleymanlegur, þótt ég aðeins kynntist honum
gegn um bréf, sem hann skrifaði öðrum manni íslenzkum.
Hann hafði í hyggju að skrifa rit um ísland, sem átti að bera
nafnið Island hiS sálfrceSilega chakra veraldarinnar. Orðið
chakra er sanskrít og þýðir eiginlega hringur eða hjól, en mun
í þessu sambandi sennilega tákna eins konar miðstöð.
Ég ætla að verja þessari grein til þess að segja ykkur dálítið
frá þessum manni, ætt hans, uppruna, lífi og starfi, því hann
var tengdur íslandi með einkennilegum og ævintýralegum
hætti.