Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 19
Viðar]
BJARNI Á LAUGARVATNI FIMMTUGUR
15
og yngri, verður ekki veginn á vog né stikaður alinmáli.
Og til einskis manns munu þeir frekar leita ráða heldur
en hans, sé þess kostur. Og það eru fleiri en nemendur
hans, sem þykir Bjarni vera ráðhollur og hljóta frá honum
styrk og bjartsýni.
En Bjarni er ekki aðeins góður ráðgjafi, hann kann líka
að framkvæma. Erlendur kennari, sem dvaldist nokkra daga
á Laugarvatni til þess að kynnast skólanum, lét í ljósi
undrun sína yfir því, hversu skólalífið þar væri frjálslegt
og gott og laust við alla þvingun. Honum þótti merkilegt,
hversu nemendurnir voru reglusamir við störf sín og unnu
þau vel. Svo virðist sem þetta komi allt af sjálfu sér, sagði
hann. Þetta er að vísu allt rétt, en hinn erlendi kennari
hefur sennilega ekki haft hugboð um hina miklu vinnu
skólastjórans, sem á bak við lá og hafði orkað því, þegar í
byrjun skólaársins, að svo góðum árangri var náð. Hann
hefur ekki skilið nema að litlu leyti hin sterku tök Bjarna
á fólkinu, og að það var hans vilji og hans smekkur, sem
var orðinn nemendunum eiginlegur og hafði mótandi áhrif
á framkomu þeirra, jafnvel áður en þeir- vissu af. Þessum
skjóta árangri nær Bjarni með nákvæmu eftirliti, allt verð-
ur að vera í röð og reglu, smátt og stórt. En mestu orkar þó
persónuleiki hans og hin magnandi áhrif frá honum. Þenn-
an hæfileika kann hann að nota til hins ítrasta. Hann
eyðir miklum tíma í viðtöl við nemendurna, ýmist einn og
einn í senn eða fleiri saman, og stundum talar hann til
þeirra allra sameiginlega. Hafa þessar viðræður geysilega
mikla þýðingu fyrir allt uppeldi unglinganna og fyrir sjálft
skólalífið.
Oft hefur verið um það rætt, að ríkið hafi verið óvenju-