Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 34
28
HÉRAÐSSKÓLARNIR
[Viðar
samræmi og smekkvísi í háttum fólks í daglegu lífi.
Ég vona, að framtíðin sýni, að óþarft sé að draga
skarpari merkjalínur milli kynja í skólum en nú hefur
verið lýst, og þætti mér það vel farið. Það er mikils virði
að kenna fólki að umgangast hvað annað kurteislega í
skólum eins og systkini á heimili. Lífið krefst samvista,
ekki einungis í formi hjónabanda heldur einnig vegna allr-
ar samvinnu og verkaskiptingar. Reynt er að róa og stilla,
en banna sem fæst, brýna fyrir stúlkunum gætni og kven-
le.ga glaðværð sem undirstöðu hamingjusams lífs. Þetta
jafnhliða bóknámi, einkum móðurmálinu, sögu, náttúru-
fræði og félagsfræði, ásamt vinnu, sem stefnir að því að
gera sem flesta svo vel vinnandi, að þeir geti bjargað sér
sjálfir, byggt upp sitt eigið heimili sem mest af eigin ramm-
leik, bæði hið ytra og innra og þannig að ná því marki,
að unga fólkið geti bjargað sér sem mest sjálft, ekki hvað
sízt í því að eignast snoturt heimili með eigin handbragði,
teljum við grundvöll þess möguleika, að byggðin þéttist í
p sveitinni. Takist ekki að stöðva strauminn til sjávarins
og örva fólkið, sem þegar er horfið til bæjanna; að hverfa
aftur til sveitanna er margskonar hætta yfirvofandi, menn-
ingarlegs og fjárhagslegs eðlis. Við treystum því, að skól-
unum okkar í sveitunum takist, ásamt viturlegri löggjöf
um verndun verðs framleiðsluvaranna, að verða drýgsti
þátturinn í viðreisnarbaráttu sveitanna. Íþróttalífið er
mikilsverður þáttur í starfi skólanna og eru héraðs-
skólarnir brautryðjendur í íþróttaiðkunum í skólum. Eins
og við getum ekki hugsað okkur skóla án nokkurs bóknáms
og vinnukennslu, gerum við kröfu til að hver héraðsskóli
eigi fimleikahús, sundlaug, íþróttavöll og almikið af í-
þróttatækjum. Síðan fær hver nemandi daglega kennslu
í leikfimi og sundi, auk skíða- og skautaíþrótta og iðkun
íslenzkrar glímu. Við skiljum, að íþróttir eru vel fallnar
til að auka þor, drengskap og félagshyggju. Hver íslenzkur
þegn þarfnast svo mjög þessara eiginleika. Nú rísa upp
íþróttahús og sundlaugar um allt land. Er það að verulegu