Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 201
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
195
4. Benedikt R. Benediktsson, Neðri-Brunná Dal.
5. Benedikt Gíslason, Stórholti Dal.
6. Björgmundur Guðmundsson, Bæ Árneshreppi Str.
7. Böðvar Guðmundsson, Ófeigsfirði Str.
8. Daði Daníelsson, Syðri-Ey A.-Hún.
9. Guðmundur Kr. Axelsson, Valdarási V.-Hún.
10. Guðrún Jónsdóttir, Tannstaðabakka V.-Hún.
11. Guðrún Valdimarsdóttir, Ægissíðu V.-Hún.
12. Gunnlaugur Björnsson, Litla-Ósi V.-Hún.
13. Halldór Sigurðsson
14. Ingunn Runólfsdóttir, Kornsá A.-Hún.
15. Jóna Guðný Jónsdóttir, Skálholtsvík Str.
16. Jóhann E. Sigurðsson, Höfn Siglufirði.
17. Jónas Finnbogason, Harðbak N.-Þing.
18. Matthildur Jónsdóttir, Skálholtsvík Str.
19. Njáll Guðmundsson, Stóru-Borg V.-Hún.
20. Ragna Erlendsdóttir, Hvammstanga V.-Hún.
21. Rögnvaldur Rögnvaldsson, Syðri-Reykjum V.-Hún.
22. Skarphéðinn Jóhannsson, Hlíðarenda Dal.
23. Sæmundur Þorsteinsson, Hvítadal Dal.
24. Torfi Magnússon, Fremri-Brekku Dal.
25. Torfi Þ. Torfason, Ófeigsfirði.
26. Þorgerður Jónsdóttir,. Svertingsstöðum V.-Hún.
27. Þorvaldur Þorvaldsson, Þóroddsstöðum V.-Hún.
28. Örn Gunnarsson, Þverárdal A.-Hún.
29. Jóhann Runólfsson, Kornsá A.-Hún.
30. Olga Magnúsdóttir, Flögu A.-Hún.
31. Vilhjálmur Þorsteinsson, Hlaðhamri Str.
Heilsufar var afbragðsgott í skólanum allan veturinn, félagslíf og
heimilishættir mjög góðir. í vetur eignaðist skólinn kvikmyndavél og
voru kvikmyndir alloft sýndar á skemmtikvöldum og oftar.
Fjölmenn vökumannadeild var starfandi í skólanum.
Próf byrjuðu upp úr páskum og var skólanum slitið á sumardaginn
fyrsta.
Dagfæði pilta var kr. 1.37 og stúlkna kr. 1.23. Ráðskona var Guð-
rún Steinsdóttir frá Hrauni á Skaga. Þess má geta í þessu sambandi,
að um það leyti, sem skólinn byrjaði, voru hér að veiðum í firðinum
danskir ,„kolaveiðarar“. Þeir hirða, sem kunnugt er, aðeins rauð-
sprettuna. Af henni veiðist mikið hér. Öllum þorski og kola er hent.
Þennan „úrgang" fékk skólinn að hirða og unnu piltarnir að því
sjálfir. Fiskurinn var síðan sendur í frystihúsið á Borðeyri. Á þennan
13*