Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 176
170
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
[Viðar
tveggja lásu málfræðiágripið í I. Heimastíll einu sinni í viku, hjá
byrjendum þó aðeins frá nýári.
Enska. 3 st. Enska I eftir Eirík Benedikz, að Lesson 42. Síðara hluta
vetrar þýðingar úr íslenzku á ensku vikulega.
íslandssaga. 4 st. íslendingasaga eftir Arnór Sigurjónsson, lesin öll
bókin.
Þjóðskipulagsfrœði. 1 st. Þjóðskipulag íslendinga eftir Benedikt
Björnsson, 2. útg. lesið um 100 bls. framan af bókinni.
Landafrœöi. 2 st. Kennslubók í landafræði eftir Bjarna Sæmunds-
son, lesið um ísland og Norðurlönd.
Náttúrufrœði. 2 st. Kennslubók í dýrafræði eftir Bjarna Sæmundsson,
að bls. 125.
Heilsufrœði. 2 st. Nokkuð stuðzt við bækur, s. s. Kennslubók í dýra-
fræði eftir Bjarna Sæmundsson (kaflann um manninn), en mest
lesið fyrir af kennaranum. Ýtarleg fræðsla veitt um áhrif áfengis og
tóbaks. Einnig var kennd hjálp í viðlögum. Oft gefnar spurningar til
heimaúrlausnar.
Söngfrœði. 1 st. Notuð Almenn söngfræði handa byrjendum í og utan
skóla eftir Sigfús Einarsson.
Reikningur. 4 st. Reikningsbók eftir Ólaf Daníelsson, aftur að jöfnur.
Bókmenntir. 2 st. Lesin Egils saga Skalla-Grímssonar, útgáfa Sigurðar
Nordals, óbundið mál allt og nokkuð af bundnu máli lesið og lært
með skýringum. — Lærð og í aukatímum lesin og rædd fáein kvæði
frá síðari timum.
Teikning. 2 st. Fríhendisteikning.
Smíðar. 4 flokkar, 4 st. hálfsmánaðarlega hjá hverjum. Sjá síðar.
Saumar og hannyrðir. 4 st. Sjá síðar.
Leikfimi. Piltar 6 st., stúlkur, saman úr b. d., 4 st.
Sund. 4 st. hjá hvorum, piltum og stúlkum. Kennt fyrst og fremst
bringusund og baksund, en einnig nokkuð björgun og skriðsund.
Söngur. Piltar 2 st., stúlkur 2 st., blandaður söngur 2 st., saman úr
b. d.
Eldri deild.
íslenzka. Réttritun 1. st., stuðzt við Réttritunaræfingar eftir Frið-
rik Hjartar. — Málfræði 2 st. Notuð íslenzk málfræði eftir Björn
Guðfinnsson, farið yfir meginhluta bókarinnar. Kennd voru og helztu
atriði setningafræðinnar, en námið ekki einskorðað við ákveðna bók.
Mikiö af skriflegum greiningum. — Ritgerð 1 st. sem í y. d.
Danska. 4 st. Danskir leskaflar. Valið hefur Ágúst Sigurðsson, lesið
bls. 1—175. Lesin málfræðin í 1 hefti kennslubókar Jóns og Jóhann-
esar. Heimastíll einu sinni í viku.