Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 192
186
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
[Viðar
eða þýzku. Margir nemar fengu að lesa tvö mál, ef þeir voru byrj-
endur aðeins í öðru.
Danska. — I. flokkur (byrjendur): Lesin kennslubók Jóns Ófeigs-
sonar og Jóh. Sigfússonar, 1. heftið og nokkuð af 2. hefti. — II. flokkur
las síðari hluta 2. heftis og 3. heftið. — III. flokkur: Danskir les-
kaflar eftir Ágúst Sigurðsson, bls. 1—158; Ágrip af danskri málfræði
eftir Jón Ófeigsson, bls. 33—111. — Málfræðitilsögn og stílaæfingar í
öllum flokkum.
Enska. — I. flokkur: Kennslubók í ensku eftir Boga Ólafsson, bls.
64—159. Málfræðitilsögn, stílaæfingar. — II. flokkur: Sama bók, frá
bls. 171 út bókina. Ensk lestrarbók eftir Boga Ólafsson og Árna
Guðnason, bls. 1—104. Málfræðitilsögn, stílaæfingar. — III. flokkur:
Lestrarbók Boga og Árna, bls. 173—215. Lesin málfræðin í kennslu-
bók Boga Ólafssonar. Stílar vikulega, bæði í timum og utan tíma.
Þýzka. — Kennslubók í þýzku eftir Jón Ófeigsson, lesið aftur að
Anhang. Málfræðitilsögn; gerðir nokkrir stílar.
Próf.
Kennarar höfðu skrifleg skyndipróf, hver í sinni grein, tvisvar til
þrisvar á vetri. — Vorpróf hófst 3. apríl og lauk 18. apríl.
Skólaslit fóru fram 19. apríl.
Stjórnskipaðir dómendur við prófin voru þeir séra Björn Magnús-
son, dr. theol. Eiríkur Albertsson og Friðrik Þorvaldsson. Prófið var
allt skriflegt nema í erlendum málum, þar var einnig kannaður
framburður.
Félagslíf.
Málfundafélag skólans hélt venjulega tvo fundi á mánuði
og var Mímir, blað félagsins, að jafnaði lesið á hverjum fundi.
— Taflfélagið starfaði í vetur og var meiri og almennari áhugi fyrir
skák en áður hefur verið. Keypt voru níu töfl. — Þá starfaði og félag
Vökumanna í skólanum og var um þriðjungur nemenda í því. Félagið
hélt nokkra fundi og eina kvöldskemmtun fyrir heimamenn. — Ein
opinber samkoma var haldin síðari hluta vetrar til ágóða fyrir sjóði
skólans. 1. des. var, eins og að undanförnu, minnzt með fjölbreyttri
samkomu fyrir heimafólk, og sömuleiðis 1. febr., baráttudags S. B. S.
Var þá flutt erindi og lesið upp, hvorttveggja í tilefni af deginum,
en kennsla féll niður í skólanum frá hádegi. Auk þessa var að jafn-
aði einhver gleðskapur um helgar, einkum dans. — Málfundafélagið
gekkst fyrir keppni í frjálsum íþróttum, hlaupum, stökkum, köstum
og ennfremur knattspyrnu, milli nemenda úr hinum ýmsu lands-
fjórðungum. Fór keppni þessi fram seint á skólaárinu og tók nokkuð