Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 57
Viðar]
HVAÐ MÁ GJÖRA
?
51
Við andarteppu á háu stigi skal láta sjúkling hafa hátt
undir höfði eða sitja uppi við dogg, gefa honum svart
kaffi, kamfóru í stórum skömmtum, t. d. 50 kamfóru-
dropa í einu með stuttum millibilum, opna glugga eða
bera sjúklinginn undir bert loft. Komið getur til mála að
gjöra öndunaræfingar á sjúklingnum á sama hátt og gjört
er, þegar reynt er að lífga menn frá drukknun.
Gæta skal þess, að föt þrengi hvergi að. Annað en þetta
er ekki hægt að ráðleggja leikmanni að gjöra, þar eð ekki
mun almennt völ annarra tækja eða lyfja á heimilum en
þeirra, er greind hafa verið.
Þegar menn fá snögglega alvarleg einkenni frá hjarta,
lýsir það sér hvað mest með andarteppu, köfnunartil-
finningu og angist. Ráð þau, sem almenningur hefur yfir
að ráða til þess að draga úr slíkum einkennum eru einungis
þau, sem talin voru upp, og leggja verður áherzlu á það
eins og endranær, að hinn sjúki verði sem minnst var við
það felmtur og úrræðaleysi, sem jafnan grípur áhorfendur,
er maður veikist snögglega og hastarlega.
Tak er algengt einkenni frá brjósti og fylgir jafnan
lungnabólgu og brjósthimnubólgu, þótt til sé taklaus
lungnabólga og sársaukalítil brjósthimnubólga, sem þá
oftast er „vot“ sem kallað er, þ. e. vökvi safnast þá í
brjóstholið milli lungans og brjósthylkisins.
Lungnabólgu fylgir oft skjálfti, og skal þá, sem og í
öðrum tilfellum er skjálfti fylgir, leggja heitar flöskur í
kring um hinn sjúka, dúða hann vel og gefa honum heitan
drykk. Skjálfti kemur þá jafnan, er líkamshitinn er óðfluga
að stíga, en sviti þá jafnan, er líkamshitinn er að falla.
Við takinu má gefa aspírín eða önnur meðul, sem not-
uð eru við gigt. Við hósta eru sjaldan til á heimilinu nein
lyf, er verulega verkun hafa, en séu til ópíumsdropar, má
gefa 15 dropa, allt að 3svar á dag, og sameina þannig meðal
við takinu og hóstanum. Oft er gott að nota heita bakstra,
þurra eða vota, við verk og taki. En gæta skal þess vel ,að
eigi slái að sjúklingnum, þegar bökstrunum er skipt, ef
4*