Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 193
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
187
langan tíma. Austfirðingar gátu ekki tekið þátt í keppninni, af því að
þeir voru svo fáir. Úrslit urðu þau, að Norðlendingar sigruðu með
86 stigum, Sunnlendingar hlutu 50 stig, en Vestlendingar 46. — Mál-
fundafélagið var sem heild í bindindissambandi í skólum og sendi
tvo fulltrúa á þing sambandsins.
Engin lengri ferð var farin í vetur. Ákveðið hafði verið að heim-
sækja Reykjaskóla í Hrútafirði, en sú ferð féll niður vegna ófærðar.
í Surtshelli gengu tíu piltar og alls gengu níu á Ok. Tókust báðar
þessar ferðir ágætlega, færi var gott og skyggni eins og bezt varð
kosið á.
Hvanneyrar'boð.
Nemendur og kennarar Hvanneyrarskólans komu hingað í boði
nemenda 4. marz. Piltar beggja skólanna þreyttu með sér knatt-
spyrnu og varð leikur jafn (1:1). Þá fór og fram kappskák, þar
sem 20 menn úr hvorum skóla áttust við. Jafntefli varð (10:10). —
Auk þessa var sýnd kvikmynd, ræður fluttar, sungið og dansað fram
eftir nóttu.
Nokkrir. gestir
heimsóttu skólann og skemmtu á einn eða annan hátt. Pétur Sig-
urðsson erindreki flutti tvö erindi, Daníel Ágústínusson kennari flutti
fyrirlestur um ungmennafélögin, Sigvaldi Indriðason kvæðamaður
skemmti með kveðskap og kýmnisögum, Þorsteinn Jósefsson rithöf-
undur sýndi skuggamyndir af Akranesi og Ólafur Ólafsson kristni-
boði sýndi kvikmynd frá Kína.
Heilsufar.
í byrjun nóvember gerði berklayfirlæknirinn, Sigurður Sigurðsson,
berklarannsókn og hafði röntgenskoðun á öllum nemendum og starfs-
fólki skólans. Reyndist ekkert athugavert.
Heilsufar var allgott. Þó fengu tveir nemar lungnabólgu, en þeir
náðu sér báðir aftur að fullu.
Fœði og hreinlcetisvörur
kostuðu á dag fyrir pilta kr. 1,47, en kr. 1,18 fyrir stúlkur. — Nemar
sáu sjálfir um þjónustubrögð og ræstingu eins og áður, en í fyrsta
skipti var nú ráðin kona til að aðstoða nemendur við hreinlætisstörf
og hafa umsjón með þeim (sbr. áður).
Key-ptir munir.
Skólinn keypti á þessum vetri kvikmyndavél. Ennfremur var keypt