Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 190
184
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
[Viðar
43. Sigurbjörg Einarsdóttir, Hlíð Gullbr.s.
44. Sigurður Sigurðsson, Syðri-Reykjum Hún.
45. Sigvaldi Hjálmarsson, Skeggstöðum Hún.
46. Sigvaldi Þorsteinsson, Breiðabólsstöðum Dal.
47. Sturla Jóhannesson, Sturlu-Reykjum Borg.
48. Sveinn Jónsson, Deildartungu Borg.
49. Valgarður Magnússon, Grímsstöðum Borg.
50. Vilhjálmur Sveinsson, Góustöðum N.-ís.
51. Þorsteinn Guðbjörnsson, Rauðsgili Borg.
52. Þorsteinn Pálsson, Steindórsstöðum Borg.
53. Þórunn Magnúsdóttir, Reykjavík.
54. Þuríður Guðbrandsdóttir, Stóru-Drageyri Borg.
Látinn nemandi.
Helgi Lárusson frá Grímstungu í Vatnsdal lézt á Landsspítalanum
13. apríl í vor. Var hann í skóla þangaö til 7. febr., er hann fór til
Reykjavíkur til læknisrannsóknar vegna meinsemdar í læri. — Helgi
var drengur góður og mannsefni.
Starfslið skólans.
Kennarar skólans voru: Kristinn Stefánsson skólastjóri, Anna
Bjarnadóttir, Bjarni Árnason, Bjarni Bjarnason, síra Einar Guðnason,
Halldóra Sigurðardóttir, Magnús Jakobsson, Þorgils Guðmundsson og
Þórir Steinþórsson. — Matthildur Hannesdóttir hafði umsjón með
hreinlæti í skólanum og vann með nemendum að ræstingu skólahúss-
ins og þvottum. Ennfremur annaðist hún sjúklinga. — Þórunn Einars-
dóttir var ráðskona mötuneytisins, en ráðsmenn, kosnir af nemendum,
voru þeir Baldvin Bjarnason og Þorsteinn Eiríksson. Þeir höfðu og á
hendi reikningshald fyrir mötuneytið.
Námsgreinar og námshœkur.
fslenzka. — Yngri deild. — Lestrarbók Nordals lesin frá bls. 141 og
til enda, mörgum köflum sleppt. Talað um höfundana og verk þeirra.
íslenzk málfræði eftir Björn Guðfinnsson, bls. 1—121 tvílesið að
mestu. Tímastíll, réttritunaræfingar og endursagnir vikulega, og auk
þess tvær heimaritgerðir á mánuði. Nemendur fluttu nokkur erindi
bókmenntalegs eðlis.
Eldri deild. — Lestrarbók Guðna Jónssonar notuð. Lesið Goða-
sögur og fornaldarsögur, Hrafnkelssaga, Hávamál, Þrymskviða, Úr
Helgakviðu hundingsbana II, Höfuðlausn og Sonatorrek. — Setninga-
og greinarmerkjafræði eftir Freystein Gunnarsson lesin mest öll.
Málfræði Björns Guðfinnssonar lærð öll að fráteknum örfáum grein-