Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 51
Viðarí HVAÐ MÁ GJÖRA....■> 45
sjúklingurinn geti ekki beitt nema tánum, er hann fer að
ganga á ný. Til þess aS fyrirbyggja þetta, er gott, að hafa
svigagjörð undir sænginni eða teppunum til þess að halda
þeim uppi og létta á fótum sjúklingsins.
Sá, er hjúkrun hins sjúka hefur með höndum, þarf að
hafa nánar gætur á púlsi sjúklingsins. Púls á alltaf að
telja með vísifingri, en ekki með þumalfingri. Aðferðin er
í stuttu máli þessi: Maður styður vísifingri og löngutöng á
púlsæðina, en hana er auðveldast að finna á framhand-
leggnum lófamegin, rétt ofan við úlnliðinn. Heilbrigður,
fulltíða maður hefur 70—80 æðaslög á mínútu. Gamalt
fólk hefur hægari púls (um 60 slög á mínútu), en börn
hraðari, t. d. hafa börn innan 1 árs aldurs um 120 á mínútu,
þótt þau séu frísk. Púlsinn verður hraðari í hitasóttum, en
herðir einnig á sér við hreyfingu, áreynslu og kvíða.
Líkamshitinn er sem kunnugt er frá 36°—37,3° hjá heil-
brigðum. Morgunhitinn er venjulega 36,7, en kvöldhitinn
37—37,3°. Hitinn hækkar við ýmsa sjúkdóma, stundum yfir
41 stig. Hitann skal mæla tvisvar á dag, á morgnana, er
sjúklingurinn vaknar og á kvöldin um kl. 6. Venja er að
mæla hitann í endaþarminum, en stundum er það ekki
hægt vegna sjúkdóma þar, t. d. ef um gylliniæð er að
ræða. Má þá mæla hitann í handarkrikanum, en þá þarf
mælirinn að liggja þar í 10 mín. og síðan verður að bæta
hálfu stigi við það, sem mælirinn sýnir til þess að fá að vita
hinn raunverulega hita. Ætíð skal þvo hitamælinn, eftir
að hann hefur verið notaður, helzt úr einhverju sótt-
hreinsandi t. d. karbóli.
Þá þarf sá, er hjúkrar, að kunna fleira fyrir sér en þetta.
Ef sjúklingurinn kastar upp, skal reisa hann upp í rúminu
°g styðja við höfuð hans. Ef sjúklingurinn er meðvitund-
arlaus, verður að leggja höfuð hans á vangann og gjöra allt,
sem unnt er, til þess að hindra, að spýjan fari niður í barka
eða lungnapípur. Af því gæti hlotizt köfnun eða þá lungna-
bólga. Þegar á eftir skal hreinsa munn og kok sjúklingsins
svo vel sem framast er auðið. Má gjöra það með hreinni