Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 159
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
153
vörðunnar út úr henni. Upp úr vörðunni er svo
stöng úr palisanderviði. Hann vex í Vestur-Indíum
og Brasilíu. í toppinum er fílabeinshúnn. Fána-
stöngin er 77 sm. á hæð. Fylgdi henni íslandsfáni
úr silki. Þótt þetta sé ekki stór hlutur, er hann
einkar snotur og haglega gerður.
Þessar vísur hafa verið lagðar hjá beinakerlingu:
Þess ég óska þér í vil
þína um langa vöku,
að þú fáir af og til
ofurlitla stöku.
Þoka fólksins fornu gull
fyrir nýtízkunni,
þó má bjóða Bragafull
beinakerlingunni.
Varða Ríkarðs
Snorri Arinbjarnarson gaf skólanum málverk
(Fiskvinna í Reykjavík).
Sænskur maður, disponent N. Westerberg, sendi skólanum veg-
lega gjöf, öll ritverk Alberts Engström, í sérlega fögru og vönduðu
skinnbandi.
Beztu þakkir fyrir gjafirnar.
SkiptiJcennarar.
Til nýbreytni má það teljast, að tvö s. 1. skólaár ferðuðust danskir
kennarar milli nokkurra skóla hér á landi og dvöldust þar nokkra
daga. Fyrst Jens Möller, barnakennari frá Kaupmannahöfn, og í vetur
sem leið F. Braae Hansen, kennaraskólakennari frá Haderslev. Báðir
héldu fyrirlestra, en hinn síðarnefndi kenndi einnig bæði dönsku og
ensku. Var þetta næsta nýstárlegt fyrir nemendur og skemmtileg til-
breytni. í samskonar erindum fóru þeir til Danmerkur, fyrst Hall-
grímur Jónasson, kennari við Kennaraskólann, og Hervald Björnsson,
sem nú dvelst þar.
Félagslíf.
Formaður skólafélagsins var Stefán Þorleifsson, ritari Halldór Gunn-
arsson, gjaldkeri Valdimar Jónsson. Málfundir voru haldnir annan
hvorn föstudag. Mér finnst nemendum ganga heldur illa að ná tökum
á umræðuefnunum. Fremur fáir fást til að taka þátt í umræðum, og
ræður manna vilja beinast að einstökum atriðum málefna, en verr
gengur að finna ný sjónarmið. Stafar þetta vitanlega af vanþroska
og viðvaningshætti, svo sem eðlilegt er. Kennarar geta að sjálfsögðu
mikið hjálpað nemendum sínum á fundum, án þess þó að verða til
þess að draga úr þeim kjark. Áhrif kennaranna geta verið þannig, að
víðsýni glæðist og málin upplýsist, en síður lendi í stælum um vissar
skoðanir.