Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 27
Viðar]
BJÖRN Á NÚPI SEXTUGUR
21
gott er og fagurt, og er einkar lagið að laða fram sömu
geðhrif með öðrum. Hefur hann í félagsskap komið þannig
mörgu góðu til leiðar. Mælskur er Björn og er ræða hans
borin uppi af miklu fjöri og tilfinningu. Flutningurinn er
ágætur. Hann er einn af stofnendum ungmennafélags sveit-
ar sinar. Var hann formaður þess um nær þrjá áratugi.
Hann er formaður U. M. F. V. Var hann ritstjóri Skinfaxa
um nokkurt skeið. Oft hefur hann verið forseti sambands-
þinga U. M. F. í. Björn er ágætur fulltrúi frumherja ung-
mennafélagsskaparins. Hann er á bekk með þeim Guðmundi
Hjaltasyni og Lárusi Rist og öðrum þeim „vormönnum ís-
lands“, er okkur, sem ungir erum nú, hitnar um hjarta-
rætur að hugsa til. Enginn amast við ungmennafélagi þar,
sem Björn Guðmundsson er skólastjóri. Það væri hnefa-
högg í andlit honum.
Björn skólastjóri hefur nú gegnt kennslustörfum um
liðlega 30 ára skeið. Gat hann sér þegar í upphafi ágætt
orð á því sviði. Hefur sá, er þetta ritar, hitt gamla nem-
endur hans, og telja þeir Björn hjartfólgnastan sér allra
vandalausra. Þekki ég aðeins einn annan kennara, er fær
slíkan dóm, og er sá Dýrfirðingur sem Björn og nemandi
hans gamall. Mun hann um margt hafa tekið hann sér til
fyrirmyndar og svo mun um mjög marga aðra. Ágætum
Björns í kennarastarfi valda fyrrgreindir eiginleikar til
forystu æskulýðs og bætist við mikil alúð að fullnægja
kröfum stöðunnar um lærdóm.
Skólastjóri hefur Björn verið nú um tíu ára skeið. Ávallt
hljóta að verða skiptar skoðanir um, hversu slíkt ábyrgðar-
starf er rækt og ekkert hóf í að hlaða þar alhliða hrósyrðum
á neinn. Ég veit þess dæmi, að nemendur meta skólastjórn
Björns þeim mun meir, sem þeim vex lífsreynsla. Sjá þeir
þá, að hann hefur naft rétt að mæla og viljað þeim vel.
Björn var ungur á bjartsýnistímum. Enn er það í trausti
til hins góða með nemendum sínum, sem hann starfar.
Ákaflega væri honum óljúft að víkja nemanda úr skóla.
..Gaman væri að geta hjálpað honum,“ er viðkvæði hans,