Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 32
26
HÉRAÐSSKÓLARNIR
[Viöar
víst, að fái hið innra líf hvers eins ekki þær réttu móttökur
og meðferð í skólunum, tæmast þeir, hversu auðvelt, sem
reynist að greiða kostn'að skólavistarinnar. Fyrst er þá að
skapa frið og ánægju í sambúðina, vináttu og sanna gleði
með hóflegri alvöru. Takist þetta, og aðeins þá, fá sérein-
kenni, gáfur, námshæfileikar, vinnulagni og prúðmennska
notið sín. Þetta mark næst aldrei fullkomlega, sé þeim ytri
ráðstöfunum beitt, að aðskilja kynin. Það, sem meðal ann-
ars dregur fólkið að þessum skólum er einmitt það, að
stúlkur eru jafnvelkomnar eins og piltar. Það er fyllilega
heilbrigt, að ungu fólki falli þetta vel og einnig í beinu
sambandi við hugsun manna og líf.
Ætti slík firra, að vinna að aðskilnaði pilta og stúlkna,
sízt að vera á stefnuskrá skólanna, jafn fjarri sem þetta
er hinu raunverulega lífi. Frá bændaskólunum hef ég frétt
það, að piltarnir séu miklu grófari í orðbragði en piltar í
samskólum gerast og er því kennt um, að þeir fari á mis
við þann yndisþokka, sem siðleg sambúð við stúlkur veitir.
Hinsvegar má ekki leyna því, að stjórnsemi öll er miklu
erfiðari og vandasamari í samskóla, en einmitt þess vegna
sinna kennarar nemendum meira og betur. Af þessu leiðir
líka það, að slíkir skólar þroska betur, ef það tekst að
vekja og rækta fagran hugsunarhátt í sambúð og starfi.
Ríki ófriðlegur hugsunarháttur, verður dagfarið eftir því.
Takist að beina hinum mikla krafti unga fólksins í réttan
farveg, eru heimavistarskólarnir einhver hinn bezti jarð-
vegur fyrir félagslega þroskun og farsæla kyningu unga
fólksins í landinu. Mér er það fullljóst, að heimavistar-
skólarnir í þessu sniði eru beggja banda járn. En jafn-
framt er ég sannfærður um, að hægt er að beina skóla-
lifinu í farsæla átt, en til þess þarf árvekni, þolinmæði og
ekki sízt að litiö sé með sanngirni á framkomu hinna ungu.
Uppeldisstarfið ber ekki að framkvæma á þann hátt að
skipa æskunni niður í skólana eftir kynjum. Það er ekki
hægt á þann hátt að ná fullkomnu marki. Allt á að vera
sameiginlegt í skólanum nema íbúðarherbergin. Þau skulu