Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 128
[Viöar
Páll ísólfsson:
Ljóð og lög.
100 söngvar handa samkórum. —
Þórffur Kristleifsson tók saman að
tilhlutun Félags héraðsskólakennara.
Þessi bók hefur aff geyma hundrað lög við alþýðu hæfi
eftir fjölda höfunda, bæði innlenda og útlenda. Útgefandi
bókarinnar, Þórður Kristleifsson, er meðal áhugamestu
manna, þeirra, er ég þekki, á sviði söngs og söngkennslu.
Hann á frumkvæðið að útgáfu þessa safns, og honum
var falin framkvæmd útgáfunnar. Hún var því í góðs manns
höndum, enda ber bókin þess ljósastan vottinn.
Enda þótt hér sé um hundrað lög að ræða, hlýtur marg-
ur að sakna margs, sé hann annars kunnugur á þessu sviði.
En samt tel ég, að val laganna hafi tekizt vel, og hef ég
ekkert út á það að setja. Aðeins væri æskilegt, að ekki
yrði langt að bíða þess, að önnur hundrað lög bættust við,
og þarf ekki að draga í efa, að slík útgáfa, þótt um mörg
hefti af sömu stærð væri að ræða, mundi borga sig með
tíð og tíma: Og eitt er víst: hún mundi fullnægja brýnni
þörf og lyfta undir skjótari framfarir og útbreiðslu bland-
aðs kórsöngs í landinu.
Þessi bók flytur söngelskum sálum mörg gömul og góð
lög, en hún flytur einnig mörg ný lög eftir íslenzka höf-
unda, og er að þeim mörgum stór fengur. Engum sam-
kóri ætti að vera ofvaxið að ráða við lögin, því að mjög
er stillt í hóf um val á erfiðum lögum. Mætti næsta hefti
t. d. flytja erfiðari lög með og án undirleiks, líkt og gert
er í samskonar útgáfum i öðrum löndum.
„Skortur á laga- og ljóðasafni þeirrar tegundar, sem
hér birtist, hefur um langt skeið verið mjög til baga, og
hefur hann bakað söngkennurum erfiðleika og átt sinn