Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 44
38
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA?
[Viðar
okkur skynsamlegra líferni af því ástandi, sem hlýtur aS
skapast af styrjöldinni. Það væri mikill gróði fyrir íslenzku
þjóðina. Og í rauninni er líf hennar undir því komið, að
henni takist að læra þetta.
Óhóf og eyðslulif á að verða útlœgt af íslandi, ekki
aðeins í þrjú styrjaldarár heldur um alla framtíð. Þjóð-
holl störf og lífsvenjur er framtíðin. Gerizt málsvar-
ar þeirrar stefnu, héraðsskólanemendur. Gerið það með
því að rækta jörð feðra ykkar og sækja fiskinn í hafið.
Látið ekki blekkjast af eyðsluhneigð einstaka fáráðlings.
Minnizt þess, að hann er sníkjudýr þjóðfélagsins og á ekki
rétt á sér. Gerið það með því að afla ykkur menntunar og
verja henni síðan til giftu og blessunar fyrir sveit ykkar og
hérað í virkri baráttu fyrir framförum og menningu. Gerið
það með því að láta vöxt og gróanda leika um líf ykkar, en
grafið ykkur ekki lifandi bak við búðarborðið, við ritvélina
eða pakkhússtörfin. Gerið það með því að nema hið stóra og
góða land okkar, rækta og byggja, en gerist ekki setu-
gestir í reyksvælu kaffihúsanna. Gerið það með því að
afneita eiturnautnum og bindast samtökum um að fjar-
lægja þær veiklunduðum félögum ykkar. Gerið það með því
að skapa nýtt almenningsálit, sem fordæmir það, að menn,
sem þjóðin hefur trúað fyrir ábyrgðarstörfum haldist það
uppi, að gerast sekir um siðleysi og óreglu. Gerið það með
því að uppfylla skyldur ykkar við sjálf ykkur, foreldra
ykkar og fósturland. Gerið það með því að vera ljóssins
og sannleikans megin.
Góðir æskumenn. Er ekki vert að athuga þetta allt,
þegar þið standið á þeim alvarlegu tímamótum í lífi ykkar
að taka ákvörðun um það, hvar þið eigið að leita fyrir
ykkur um æfistarf. Það val má ekki vera háð hendingu. Sá,
sem byggir á hendingu, byggir á staðleysu. Valið verður að
fryggjast á rólegu mati á þörfum þjóðfélagsins. Hamingjan
er í því fólgin að starfa í samræmi við þarfir umhverfis-
ins. Óhamingjan liggur í því að verða utanveltu. Gerðu þér
ljóst, hvert straumurinn á að liggja, hvar þín er mest þörf.