Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 95
Viðar]
VIGGBYHOLMSMÓTIÐ Á LAUGARVATNI
89
hafa viljað verða af þessari tignarlegu sjón, sem yrði þeim
ógleymanleg.
Þegar mótinu lauk á Laugarvatni, var farið í bílum
Grafningsveginn með Þingvallavatni að Þingvöllum. Orku-
verið við Sog var skoðað á leiðinni. Á Þingvöllum talaði
Pálmi Hannesson rektor um staðinn, bæði sögulega og
jarðfræðilega. Vatnsborunin á Reykjum og gróðurhúsin var
skoðað á leiðinni til Reykjavíkur. Daginn eftir að komið
var til Reykjavíkur, var bærinn og söfnin skoðuð og Guðl.
Rósinkranz talaði um sögu bæjarins og síðustu viðfangs-
efnin. Mótinu lauk með samsæti, sem Norræna félagið hélt.
Þar talaði Ivar Wennerström landshöfðingi um norræna
samvinnu. Loks bauð aðalræðismaður Svía, O. Johansson,
öllum þátttakendum heim til sín í kvöldboð.
Mótið var allt hið ánægjulegasta og til mikils fróðleiks.
Fyrirlestrarnir veittu þátttakendum alhliða fræðslu og
yfirlit um landið, atvinnuvegi, sögu, bókmenntir og menn-
ingu yfirleitt. Á ferðalögunum sáu þeir fegurð landsins í
sínum fegursta sumarskúða, baðandi í sólskini dag hvern,
og á mótinu, samkomum og ferðalögum, kynntust þeir fólk-
inu. Óhætt má því fullyrða, að mótið hafi tekizt mjög vel,
enda er Laugarvatn kjörinn staður til slíkra kynningar-
móta sökum náttúrufegurðar, þæginda allra, snyrti-
mennsku og lipurðar ráðamanna. Ágætur félagsandi og
gleði var ríkjandi á mótinu. Var sem allir hefðu þekkzt
mikinn hluta æfinnar, svo óþvinguð og eðlileg var um-
gengni öll. Hinir útlendu þátttakendur gerðu sér mjög
mikið far um að kynnast öllum háttum hér sem bezt og
skilja aðstæður okkar og viðfangsefni. Enda held ég, að
fullyrða megi, að þeim hafi tekizt það vel á svo skömmum
tíma. Ekki er því að efa, að við eigum góða kynnendur og
vini þar, sem þátttakendur Viggbyholmsmótsins eru, enda
kemur það greinilega fram í þeim blaðagreinum, sem þeir
hafa skrifað í heimalandi sínu um ísland og dvöl sína hér.
Slíkum gestum er ánægjulegt að taka á móti, enda eru þeir
jafnan velkomnir.