Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Síða 108
DOKTORSRITGERÐ í GRASAFRÆÐI.
Sjálfsagt hafa margir lesendur Flóru heyrt getið um íslenzkan grasafræðing,
Sigurð Jónsson, sem lengi hefur dvalizt í París og getið sér þar frægðarorð fyrir
rannsóknir sínar á þörungum.
Fyrir skömmu barst mér í hendur ritgerð hans til doktorsgráðu við Sorbonne-
háskólann. Birtist liún í doktorsritgerðaseríu háskólans, Theses, Serie A, no 3849,
Paris 1962. Titill ritverksins er þessi: Recherches sur des Cladophoracées marines,
sem myndi útleggjast: Rannsóknir á sæþörungum af ættinni Cladophoraceae.
Það er ekki ætlun mín að rekja efni þessarar bókar, sem skýrir ýtarlega frá
rannsóknum höfundar, og virðist í alla staði prýðilega unnin, aðeins langar mig til
að benda á niðurstöður hans, þar sem þær varða að nokkru íslenzka grasafræði.
Grænþörungaættin Cladophoraceae er víst ekki mikið kunn í íslenzkum bók-
menntum, enda á hún sér ekkert íslenzkt nafn. Þó eru tegundir af þessari ætt algeng-
ar hér, bæði í fersku vatni og í sjó (fjörum). Ganga þær, ásamt mörgum öðrum græn-
þörungum, undir hinu almenna nafni slý eða slavak.
Ættkvíslin Cladophora, sem ættin er kennd við, einkennist af smásæjum þör-
ungajrráðum, sem greinast á vissan hátt, og hefur mér því dottið í hug að nefna
hana greinþörunga, og mætti þá kalla Cladophoraceae, greinjrörungaætt.
Áður en lengra er haldið verður að gera stutta grein fyrir ættliðaskiptum plantn-
anna. Það er fyrirbæri, sem verður vart við, meira eða minna, hjá öllum plöntum,
sem hafa kjarna í líkamsfrumum sínum, þ. e. öllum plöntum nema bakteríum og
blágrænuþörungum. Ættliðaskiptin eru í einfaldasta tilfelli regluleg skipti á plöntu-
einstakling með tvílitna frumum, sem æxlast með gróum og er því oft kallaður gró-
liður (sporophyt) og einstakling með einlitna frumum, sem framleiðir æxlunarfrum-
ur (gametae), sem geta sameinast í frjóvgun, og myndað Jrannig aftur tvílitna ein-
stakling eða grólið. Stundum eru einlitna og tvílitna einstaklingarnir eins að vaxt-
arlagi, en hitt er Jx> algengara að ]>eir séu mismunandi, jafnvel svo að um mismun-
andi, og kannske allsendis óskyldar tegundir, virðist vera að ræða. Sambandið milli
hinna ólíku einstaklinga verður J>á aðeins sannað með beinni athugun í náttúr-
unni, eða með ]>ví að taka viðkomandi plöntur til ræktunar, og er það raunar örugg-
asta aðferðin.
Dr. Sigurður hefur beitt báðum ]>essum aðferðum í rannsóknum sínum á grein-
þörungaættinni, og komizt að þeirri niðurstöðu, að þrjár tegundir einfrumu-græn-
þörunga, sem taldar hafa verið til ættarinnar Protococcaceae (frumstæðir, kúlulaga
grænþörungar) séu raunar aðeins gróliðir (gróstig) annarra þriggja tegunda af grein-
þörungaættinni. Tegundirnar eru þessar:
1. Chlorochytrium inclusum Kjellrn. reyndist vera gróstig þörungsins Spongo-
morpha lanosa (Rotli.) Kiitz.
2. Codiolum petrocelidis Kuck., gróstig af Acrosiphonia spinescens (Kútz)
Kjellm.
3. Codiolum gregarium Al. Braun., gróstig af Urospora mirahilis Ares.
Allar þrjár tegundirnar (gróstigin) hafa fundizt hér við land, sarnkv. Flelga
Jónssyni, og er sú fyrstnefnda líklega algeng. Hins vegar getur Helgi ekki um grein-
þörunga J>á sem samsvara J>essum gróstigum, nenta þann síðastnefnda, Urospora
100 Flúra - TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI