SunnudagsMogginn - 20.11.2011, Blaðsíða 10
10 20. nóvember 2011
Skar og skarkali | 15
Þorgrímur Kári Snævarr
06:30 Vekjaraklukkur glymja en
við hjónin „snúsum“ bæði því það
er starfsdagur í skóla dætranna og
nægur tími til stefnu. Vökunótt
kvöldinu áður því eiginkonan var að
skila ritgerð og ég að vinna í verk-
efnum tengdum framboði Bjarna
Benediktssonar.
08:10 Hrekk upp með andfæl-
um. Morgunkaffi Bjarna með stuðn-
ingsmönnum hans byrjaði fyrir 10
mínútum og öll dagskrá riðluð.
Hendist framúr, skutla All Bran og
Cheerios í skálar fyrir Karitas og
Helenu, kyssi allar bless og hleyp út.
08:30 Mættur á Amokka í Hlíð-
arsmára þar sem mikill fjöldi lands-
fundarfulltrúa sem styðja Bjarna er
saman kominn.
09:17 Síminn hringir og ég beð-
inn um að taka að mér akút al-
mannatengslaverkefni sem er að að-
stoða danska hugbúnaðarfyrirtækið
Evenex með kynningu á blaða-
mannafundi þeirra síðar um daginn. Ég
hendist heim í sturtu og til að gleypa í mig
smá-morgunmat og tala á meðan í símann
við blaðamann um formannskjörið í
flokknum, upplýsingafulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins og auglýsingahönnuð. Legg
símann reyndar á þegar í sturtuna er
komið.
10:03 Renn í hlaðið á Listhúsinu í
Laugardal þar sem Skýrslutæknifélagið er
til húsa sem er að skipuleggja ráðstefnu
með Evenex. Hitti fulltrúa þeirra og hann
útskýrir fyrir mér málið.
11:15 Renni í næsta hús þar sem ég
kemst í netsamband sem er Valhöll, stelst
þar inn í tómt herbergi til að hringja í fjöl-
miðlana fyrir Evenex og senda þeim upp-
lýsingar um blaðamannafundinn sem er
síðar um daginn. Svara líka nokkrum
póstum vegna knattspyrnufélagsins Vals.
12:15 Átta mig á því að ég er að renna
út á tíma til að sækja eiginkonu mína svo
hún komist í vinnu sína í Hjallastefnunni,
kreisti samt eitt símtal í viðbót.
12:35 Renni í hlaðið á Strandvegi,
dætur okkar eru að borða hádegismat,
spenntar yfir því að vera á leið til afa og
ömmu sem búa rétt hjá.
12:50 Rölti með stelpurnar yfir á
Norðurbrú þar sem dæturnar fagna ömmu
sinni og afa.
12:58 Lagt af stað til Reykjavíkur, Liz
þarf að komast í Öskju að kenna Hjalla-
stefnubörnum ensku og ég hringi í fjöl-
miðla á leiðinni til að reyna að draga þá á
blaðamannafund Evenex. Það er ekki
mikill áhugi fjölmiðla á rafrænum inn-
kaupum.
13:20 Kominn á Nordica til að kíkja á
undirbúning blaðamannafundarins. Held
áfram að hringja í fjölmiðla.
13:45 Blaðamaður frá Viðskipta-
blaðinu ásamt ljósmyndara röltir inn á
svæðið, spjalla við þá.
14:05 Fundurinn hefst, ég fylgist með
upphafinu og læt mig svo hverfa því verk-
efni mínu er að mestu lokið.
14:15 Kem mér fyrir á bílaplaninu
fyrir utan Nova, tek upp tölvuna og lít á
Dagur í lífi Friðjóns R. Friðjónssonar almannatengils
Friðjón er á fullu að vinna á landsfundi sjálfstæð-
ismanna meðfram almannatengsla-vinnu sinni.
Röltum heim
texta sem ég er að vinna fyrir kúnna.
14:25 Rölti inn í Nova því ég hafði
verið beðinn um að taka þátt í prófunum á
4g-neti og fæ lykil frá þeim.
14:35 Renni í hlaðið á Hjallastefnu-
skólanum Öskju og næ í Liz.
14:50 Liz skutlar mér í Laugardalinn
þar sem landsfundurinn er að hefjast, kíki
á aðstöðu stuðningsmanna Bjarna, kíki á
hvernig gengur að tala við landsfund-
arfulltrúa, byrja að vinna fréttatilkynn-
ingu fyrir easyJet, klára hana.
16:30 Landsfundur hefst, kem mér
fyrir í salnum, sendi tilkynningu easyJet á
meðan kórinn syngur. Ræða Bjarna byrj-
ar, feikilega góð ræða og flottur flutn-
ingur. Ótrúleg stund þegar Bjarni talar til
Geirs og klökknar.
17:50 Setningarathöfn er lokið, spjalla
við sjálfstæðismenn fyrir framan salinn.
Rölti svo með vini mínum, Eskfirðingnum
Jens Garðari yfir á Grand Hótel þaðan sem
við tökum leigubíl í bæinn.
18:30 Við Jens löbbum inn í jólabjórs-
smökkunarhóf fjármálafyrirtækisins
Gamma sem er pakkfullt af góðu fólki,
hitti gamla vini og nýja.
19:30 Fæ far í Garðabæinn og fer til
foreldra minna þar sem dæturnar eru enn,
Liz er farin á fund Women Understanding
Women sem er verkefni Jafnréttishúss
sem hún er að vinna að með nýjasta þing-
manni landsins.
20:30 Við feðginin röltum heim, alla
30 metrana.
21:00 Stelpurnar komnar í háttinn og
sofnaðar, ég sestur í sófann með tölvuna,
hringi nokkur símtöl vegna landsfund-
arins og tek á móti öðrum, því síðasta á
miðnætti. Horfi með öðru auganu á BBC
Entertainment þar sem uppistandsþættir
og spjallþættir ganga. Vinn tilboð til
væntanlegs viðskiptavinar Netspors.
01:00 Kominn í háttinn, degi er að
ljúka þar sem ég hringdi 50 símtöl, tók á
móti svipuðum fjölda. Á morgun er nýr
dagur þar sem starf landsfundar verður í
forgrunni og vinna við að tryggja endur-
kjör Bjarna Benediktssonar.