SunnudagsMogginn - 20.11.2011, Qupperneq 11
20. nóvember 2011 11
Óhemju áhugaverðir leikir eru á dagskrá hér og þar um Evrópu næstu daga.Hvað gerir Torres með Chelsea gegn gömlu félögunum í Liverpool? Heils-ar Zlatan hinn sænski fyrrverandi þjálfara sínum að sjómannasið, þegarBarcelona sækir Milan heim á Ítalíu í Meistaradeildinni? Og hvernig tekst
Sergio Agüero upp með Manchester City á móti Napolí á sama vettvangi? Þá spreytir
Argentínumaðurinn ungi sig þar sem landi hans og tengdafaðir, innanvallarséníið
Diego Maradona, sleit sínum fótboltaskóm þegar hann var á hátindi ferilsins.
Fótboltinn er nefnilega meira en bara leikur. Ekki bara spörk, svitalykt og skítugir
sokkar, heldur félagsfræði, landafræði, saga, heimspeki. Jafnvel smá stærðfræði.
Kempan Jamie Carragher hjá Liverpool
lýsti því yfir í vetur, að vísu kíminn, að ein
bestu viðskipti félagsins á leikmannamark-
aði undanfarin misseri væru salan á Torres til
Chelsea; vegna þess að þá gafst tækifæri til
þess að kaupa Luis Suárez frá Ajax. Torres
byrjaði afleitlega hjá Lundúnaliðinu en Suá-
rez sló hins vegar þegar í stað í gegn hjá Liv-
erpool og hefur verið frábær í haust. Nú hef-
ur hann verið kærður fyrir kynþáttaníð
innan vallar og fróðlegt að fylgjast með
framvindu mála.
Fótboltaleikur getur líka skipt þjóð sköp-
um, að minnsta kosti tímabundið. Ég hef
verið sannfærður um það.
„Hlustaðu! Hlustaðu!“ Mikil geðshræring
var í rödd mannsins í símanum. „Heyrirðu
þetta? Skynjarðu ekki stemninguna?“
Þetta var sunnudagskvöldið 12. júní 1988.
Rúm 23 ár eru síðan en ég man það eins og
gerst hafi í gær. Gott og vel; mig rámaði í at-
vikið í vikunni þegar Írar tryggðu sér sæti í
lokakeppni Evrópumótsins næsta sumar.
EM í fótbolta var byrjað í Vestur-
Þýskalandi. Írar voru með á stórmóti í fyrsta
skipti og um kvöldið náði ég í Bob vin minn
Hennessy eftir nokkra leit; írskan blaða-
mann sem var fréttaritari okkar á Englandi
en fylgdi írska liðinu á EM fyrir fjölmiðla
heima fyrir.
Margir lesendur Morgunblaðsins kannast
ugglaust við nafnið. Bob, sem var Íri en lengi
búsettur í grennd við London, var gríðarlega
áhugasamur og sendi ýmsa fréttapunkta flesta
daga, símleiðis til okkar í Aðalstrætinu. Þetta
var fyrir daga netsins og Bob því mikilvægur
brunnur sem við gátum ausið úr til lesenda.
Hann lést því miður langt um aldur fram fyrir
átta árum.
En Bob fylgdist sem sagt með sínum mönn-
um í leik og starfi. Þetta var sögulegur dagur.
Írar léku gegn Englendingum í Stuttgart og
unnu 1:0; það var fyrsti sigur Íra á enska ljóninu í 39 ár og rétt að benda á að á þessum
tíma var Írland í raun algjört smálið þótt á meðal leikmanna væru stórar stjörnur.
Ímyndaðu þér, lesandi góður, ef Ísland kæmist á lokakeppni EM og næði að sigri
Dani. Þá yrði líklega dansað á götum borga og bæja!
Sigrinum var fagnað formlega fyrr um kvöldið, en fagnaðarlætin í símanum voru
ætluð þjálfaranum og Liam Brady, frægasta leikmanni þjóðarinnar sem gat reyndar
ekki leikið á EM vegna meiðsla. Þeir voru nýstignir ofan af borði í matsalnum. Höfðu
tekið þekkt írsk lag og var vel fagnað. Allir voru skyldaðir til að syngja, sagði Bob og
brosið sást alla leið til Íslands.
„Hlustaðu,“ ítrekaði Bob. Það var engu líkara en maður heyrði í gæsahúðinni. Það
er líklega ómögulegt, bæði eðlisfræðilega og málfræðilega, eins og að sjá bros í gegnum
síma; en svona var það nú samt! Svo kom önnur rödd og miklu rámari í símann:
„Þetta var stórkoslegt!“ Það var Englendingurinn Jack Charlton, einn heimsmeist-
aranna frá 1966, nú þjálfari Írlands. Geðshræringin leyndi sér ekki. Charlton sagðist
þess fullviss að Írar myndu hvarvetna fagna fram á rauða nótt. „Ég er viss um að þeir
þurrka upp alla bari sem þeir finna! En þeir eiga þó ekki eftir að verða til vandræða,“
sagði hann, og átti við írsku stuðningsmennina.
Þar hafði hann á réttu að standa. Írar kunnu að njóta. Það var stór stund að komast á
EM en að vinna England var toppurinn.
Írar hafa átt erfitt síðustu ár eins og fleiri. Hægt er að gleðjast innilega með þessum
frændum okkar vegna árangurs landsliðsins og víst að írsk raddbönd verða þanin af
miklum móð í Póllandi og/eða Úkraínu næsta sumar.
Íslendingar þurfa ekki að apa allt eftir Írum, en ég gæti þegið nokkra sigra.
Að heyra gæsa-
húð á milli landa
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
’
Hlustaðu! Hlust-
aðu!“ Mikil geðs-
hræring var í rödd
mannsins í símanum.
„Heyrirðu þetta? Skynj-
arðu ekki stemn-
inguna?“
Góður díll? Spænski framherji Fernando
Torres sem fór frá Liverpool til Chelsea.
Jack Charlton náði betri árangri með Íra
en þá sjálfa hafði í rauninni dreymt um.
Reuters
Þegar Christina Onassis féll fráárið 1988 beindust allra augu aðeinkabarni hennar, Athinu litluOnassis Roussel. Hún var aðeins
þriggja ára en sennilega eitt ríkasta barn
heims – eini eftirlifandi afkomandi afa
síns, gríska skipakóngsins Aristotle
Onassis.
Athina flutti til Frakklands með föður
sínum, athafnamanninum Thierry Rous-
sel, og féll ýmsum Grikkjum það illa.
Fannst afleitt að einkaerfingi Onassis-
auðæfanna yxi ekki úr grasi við grísk gildi
og menningu. Roussel skellti skollaeyrum
við því og ól dóttur sína upp í heimalandi
sínu, fjarri kastljósi fjölmiðlanna.
Roussel var fjórði eiginmaður Christinu
Onassis og treysti hún honum ekki betur
en svo að sett var á laggirnar bústjórn við
fráfall hennar sem hafði umsjón með eign-
um Athinu, þangað til hún náði átján ára
aldri. Það þýddi að Roussel þurfti að bera
öll útgjöld dóttur sinnar undir bústjórn-
ina, sem skipuð var fjórum Grikkjum og
svo Roussel sjálfum.
Hélt við aðra konu
Svo virðist sem hjónaband Christinu
Onassis og Thierrys Roussels hafi verið
með frjálslegra móti en hann gat annarri
konu tvö börn meðan á því stóð, sænsku
sýningastúlkunni Gaby Landhage. Fædd-
ist annað þeirra sama ár og Athina, hitt
tveimur árum síðar. Eftir andlát Christinu
gekk Roussel að eiga Landhage og ól hún
honum þriðja barnið árið 1991. Athina ólst
upp með þessum þremur hálfsystkinum
sínum, tveimur stúlkum og einum dreng.
Liðlega tvítug hafði móðir hennar orðið
fyrir miklu áfalli, missti alla fjölskyldu sína
á þriggja ára tímabili. Fyrst fórst bróðir
Christinu, Alexander, í flugslysi, aðeins 24
ára; síðan lést móðirin, Athina Liverno,
vegna ofneyslu lyfja, 45 ára; loks missti
faðir hennar heilsuna og dó, 69 ára. Hermt
er að Christina hafi kennt stjúpu sinni,
Jacqueline Kennedy, að hluta um missinn.
Á henni hafi hvílt bölvun.
Christina náði sér aldrei að fullu eftir
þetta en hún rak fyrirtæki föður síns til
dauðadags. Hún lést af völdum lungnabil-
unar einungis 37 ára að aldri.
Athina fékk yfirráð yfir helmingi arfs
síns þegar hún varð átján ára og átti að fá
hinn helminginn þegar hún varð 21 árs,
árið 2006. Þá spyrnti stjórn Onassis-
stofnunarinnar, sem metin er á meira en
tvo milljarða Bandaríkjadala, við fótum og
kvaðst ekki setja eignir stofnunarinnar í
hendurnar á manneskju sem hefði engar
forsendur til að sýsla með þær. Auk-
inheldur viðurkennir Onassis-stofnunin
ekki að Athina eigi rétt á arfi eftir afa sinn,
aðeins móður sína. Athina fór með málið
fyrir dómstóla en laut í lægra haldi.
Hestakona af lífi og sál
Athina varð snemma hænd að hestum og
hefur keppt í hindrunarhlaupi frá ung-
lingsaldri. Það gerir maðurinn hennar
einnig. Hann heitir Alvaro de Miranda
Neto og hefur unnið til verðlauna á Ól-
ympíuleikum. Undanfarin átta ár hefur
parið verið búsett í São Paulo í Brasilíu.
Þegar þau gengu í heilagt hjónaband,
2005, tók Athina upp nafnið Athina de
Miranda. Athygli vakti að hvorki faðir
hennar né stjúpa voru viðstödd athöfnina.
Önnur systra hennar var hins vegar á
staðnum. Brúðhjónin afþökkuðu allar
gjafir en bentu gestum þess í stað á góð-
gerðarstofnanir.
Skömmu eftir brúðkaupið bætti Athina
Onassis-nafninu lögformlega inn, Athina
Onassis de Miranda, og mun það vera liður
í þeirri viðleitni hennar að sættast við
grískan uppruna sinn. Lengi vel vildi hún
ekkert við hann kannast en hefur nú hafið
grískunám og endurnýjað gríska vega-
bréfið sitt. Þá keppir Athina í dag fyrir
hönd Grikklands á hestamótum en ekki
Frakklands.
Hvort það hefur eitthvað með deiluna
við Onassis-stofnunina að gera skal ósagt
látið.
orri@mbl.is
Athina Onassis de Miranda ásamt eiginmanni sínum, Alvaro Alfonso de Miranda Neto.
Reuters
Athinu Onassis?
Hvað varð um …
Athina ásamt foreldrum sínum, Thierry Ro-
ussel og Christinu Onassis.