SunnudagsMogginn - 20.11.2011, Síða 29
20. nóvember 2011 29
6. - 12. nóvember
2011
1. Einvígið –
Arnaldur
Indriðason
/ Vaka-
Helgafell
2. Gamling-
inn sem
skreið út
um gluggann – Jonas Jonas-
son / JPV útgáfa
3. Stóra Disney köku- & brauðb.
– Walt Disney / Edda
4. Ný náttúra – Ýmsir höfundar /
Crymogea
5. Húshjálpin – Kathryn Stockett
/ JPV útgáfa
6. Hollráð Hugos – Hugo Þóris-
son / Salka
7. Uppeldi er ævintýri – Margrét
Pála Ólafsdóttir / Bókafélagið
8. Eldum íslenskt með kokka-
landsliðinu – Ýmsir höfundar
/ Sögur
9. Málverkið – Ólafur Jóhann
Ólafsson / Vaka-Helgafell
10. Hjarta mannsins – Jón Kal-
man Stefánsson / Bjartur
Frá áramótum
1. Gamlinginn sem skreið út um
gluggann –
Jonas Jo-
nasson /
JPV útgáfa
2. Ég man þig
– Yrsa Sig-
urðardóttir
/ Veröld
3. Stóra Disney köku- & brauðb.
– Walt Disney / Edda
4. 10 árum yngri á 10 vikum –
Þorbjörg Hafsteinsdóttir /
Salka
5. Einn dagur – David Nicholls /
Bjartur
6. Bollakökur Rikku – Friðrika
Hjördís Geirsdóttir / Vaka-
Helgafell
7. Djöflastjarnan – Jo Nesbø /
Undirheimar
8. Betri næring – betra líf – Kol-
brún Björnsdóttir / Veröld
9. Frelsarinn – Jo Nesbø / Upp-
heimar
10. Ljósa – Kristín Steinsdóttir /
Vaka-Helgafell
Bóksölulisti
Listinn er byggður á upplýsingum frá
Bókabúð Máls og menningar, Bóka-
búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamra-
borg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni
við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu-
stúdenta, Bónus, Hagkaupum,
Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-
Eymundssyni og Samkaupum. Rann-
sóknasetur verslunarinnar annast
söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags
íslenskra bókaútgefenda.
Skannaðu
kóðann til að
lesa
Í veiði gengur maður ekki aðneinu vísu og ekki síst þessvegna er maður tilbúinn aðláta sig hafa það að standa
tímunum saman í vatni eða á og
bíða eftir því að eitthvað óvænt
gerist. Það er líklega það óvænta
sem heillar mig mest við veiðina
– og það, að maður getur svindl-
að á tímanum; hann stendur í
stað á meðan maður er í veiði.
Maður eldist ekki á meðan! Þegar
þú hættir að veiða fer lífsklukkan
aftur í gang,“ segir Bubbi Mort-
hens. Út er komin bókin Veiði-
sögur eftir hann. Fjöldi mynda
Einars Fals Ingólfssonar prýðir
bókina.
Varðandi sögurnar í bókinni
segist Bubbi hafa valið nokkrar ár
og ákveðið að segja sögur af ein-
um eða tveimur löxum sem hann
veiddi í hverri. „Þetta er falleg
bók og vönduð, eins og mér
finnst veiðibækur eiga að vera.
Það var nostrað við hana og mik-
ið lagt í útlit og hönnun. Veiði-
bækur eiga að vera þannig að þær
stytti veturinn. Ef veiðibók nær
að stytta manni stundir á milli
veiðitímabila er tilganginum
náð,“ segir tónlistarmaðurinn og
rithöfundurinn við Sunnudags-
moggann.
Bubbi nefnir í bókinni að það
hafi tekið svolítinn tíma að átta
sig á því, að ekki væri málið að
veiða sem mest.
„Sjáðu til, þegar menn veiddu í
gamla daga á Íslandi voru þeir að
draga björg í bú. Menn veiddu
ekki lax sér til skemmtunar eða
litu á laxveiði sem sport, eins og
t.d. Bretar, sem kenndu okkur að
veiða á flugu, höfðu gert öldum
saman. Á ákveðnum tíma varð
lax dýrari en nautakjöt og menn
veiddu hratt og mikið, seldu í
búðir og höfðu vel upp úr því. Ég
ólst upp við þann hugsunarhátt
að enginn væri veiðimaður nema
hann kæmi með drápsklyfjar til
baka. Hér átti að drepa eins mik-
ið og hægt var á stuttum tíma.
Þegar ég var lítill strákur sagði
pabbi minn mér hins vegar frá
því að ég yrði að sýna bráðinni
virðingu og vera hófsamur.“
Faðir Bubba veiddi til að drýgja
tekjurnar en hafði þetta samt í
sér, segir sonurinn.
„Þegar ég fór að veiða fyrir al-
vöru sem ungur maður birtust
myndir í blöðunum af mönnum
eins og Tóta tönn, með 150 laxa
eftir tveggja daga veiðiferð; þetta
var takmarkið.
Síðan síaðist það inn í mig,
ekki síst vegna skrifa Víglundar
Möller, ritstjóra Veiðimannsins,
eins besta penna sem skrifað hef-
ur um veiði hér á landi, og Björns
Blöndal, bónda í Stafholtsey og
veiðimanns, að veiði snerist um
meira en bara að drepa.“
Bubbi bendir á að lax-
veiðimenn glími við stofn sem
sannarlega sé í útrýmingarhættu.
„Þegar ég veiði hirði ég líklega
einn lax af hverjum 10. Ég var
ekki einu sinni svo „grimmur“ í
sumar – ætli ég hafi ekki hirt
fimm laxa. Ég fæ meiri gleði út úr
því að vera á bakkanum og renna
saman við umhverfið. Þetta er
orðið lífsstíll og snýst ekki bara
um veiðina sjálfa.“
Jólabækurnar
Bubbi Morthens að veiðum á Nessvæðinu í í Laxá í Aðaldal.
Einar Falur Ingólfsson
Tíminn stöðvast í veiði
Bubbi Morthens er veiðimaður af lífi og sál og í nýrri bók
segir hann veðisögur. Fjöldi mynda Einars Fals Ingólfs-
sonar prýðir bókina.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Bubbi með góðan feng.
Einar Falur Ingólfsson