SunnudagsMogginn - 20.11.2011, Side 36
36 20. nóvember 2011
Ég verð að skrifa tónlist. Það erlíkt og hún togi í mig. Þegar églendi í aðstæðum þar sem ég getekki sinnt tónsmíðunum sem
skyldi þá líður mér hreinlega ekki vel. Ég
verð eirðarlaus og ég þarf að draga mig í
hlé til að geta farið að skrifa,“ segir Anna
Þorvaldsdóttir tónskáld sem sinnt hefur
sköpunargáfu sinni af krafti síðustu ár í
doktorsnámi sínu í tónsmíðum við Kali-
forníuháskóla í San Diego (UCSD).
Í síðasta mánuði varði hún doktors-
verkefni sitt, en það fólst m.a. í því að
skrifa hljómsveitarverkið Aeriality sem
Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur á
tónleikum sínum fimmtudaginn 24.
nóvember kl. 19.30 undir stjórn Ilans
Volkovs. Tónleikarnir verða sendir út
beint á Rás 1 og jafnframt teknir upp, en
þeim verður útvarpað á samnorrænni
tónleikaröð á vegum evrópskra útvarps-
stöðva (EBU) síðar í vetur. Meðal áheyr-
enda á tónleikunum verður Rand Stei-
ger, tónskáld, hljómsveitarstjórnandi og
prófessor við USCD, sem kemur sér-
staklega til landsins til að heyra frum-
flutninginn á verki Önnu. „Ég hlakka
mikið til enda er Sinfóníuhljómsveitin
svo frábær og samstarf okkar Volkovs
gott,“ segir Anna og tekur fram að hún
hlakki til að heyra túlkun hljómsveitar-
innar á verki sínu. „Ég skrifa músíkina
eins og ég heyri hana, en síðan koma
hljóðfæraleikararnir og gefa verkinu líf
og það er svo spennandi.“
Aðspurð segist Anna nánast ekki muna
eftir sér öðruvísi en semjandi tónlist.
„Þegar ég var lítil var ég alltaf að leika
mér og búa til einhver lög án þess að
skrifa þau niður,“ segir Anna sem hlaut
tónlistarlegt uppeldi frá blautu barns-
beini enda mamma hennar, Birna Þor-
steinsdóttir, kórstjóri og píanókennari
við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Anna
lærði á ýmis hljóðfæri í æsku s.s. píanó,
flautu og fiðlu áður en hún svo kolféll
fyrir sellóinu þegar hún var fjórtán ára
og ætlaði sér að verða einleikari. Eftir
nokkurra ára sellónám, fyrst hjá Ewu
Tosik í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Sig-
urði Halldórssyni í Tónskóla Sigursveins
og loks Gunnari Kvaran í Tónlistarskóla
Reykjavíkur, tóku tónsmíðarnar hins
vegar yfir. „Um tvítugt gerði ég mér
grein fyrir því að ég gæti vel lifað án þess
að spila á selló, en það væri mér lífs-
Tónlistin togar
stöðugt í mig
Anna Þorvaldsdóttir tónskáld er höfundur
Aeriality sem Sinfóníuhljómsveit Íslands
frumflytur nk. fimmtudag. Anna lauk nýverið
doktorsnámi sínu í tónsmíðum. Hún segir
heilu og hálfu vinnubækurnar með hugmynd-
um bíða úrvinnslu og vonast til að geta einbeitt
sér að tónsmíðunum af krafti á næstu árum.
Texti: Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Mynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
„Sem tónskáld er maður auðvitað alltaf að reyna að þenja mörkin og finna nýjar leiðir í tónsmíðum sínum og að því leyti er tónlistin tilraunakennd,“ segir Anna Þorvaldsdóttir.