Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Síða 20

Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Síða 20
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 201320 nám og námsUmhverfi 21. aldarinnar • yfirferð námsefnis • námsmat • sameiginleg viðfangsefni bekkja eða námshópa, til dæmis þemaverkefni. Svarmöguleikar voru: Oft á dag, daglega, þrisvar til fjórum sinnum í viku, einu sinni til tvisvar sinnum í viku, einu sinni til þrisvar sinnum í mánuði, sjaldnar en einu sinni í mánuði og aldrei. Mikill munur var á milli skóla hvað varðaði tíðni samstarfs kennara (sjá töflu 4). Samstarfið virtist vera hvað mest í Birkiskóla og Furuskóla um alla þætti sem spurt var um en minnst í Asparskóla (2,3). T-próf gefur til kynna að kennarar Furuskóla (t=2.5; p <.05) og Birkiskóla (t = 2.7; p <.01) skeri sig marktækt frá hinum 19 skólunum í úrtakinu, hvað varðar samstarf. Tafla 4. Samstarf kennara, tíðni og innihald Hversu oft eða sjaldan áttu samstarf við aðra kennara um eftirfarandi þætti? Aspar- skóli Birki- skóli Furu- skóli Greni- skóli Allir 20 skólar Undirbúningur kennslu 3,2 3,8 4,0 3,0 3,3 Val á námsefni 2,3 3,3 3,3 2,7 2,6 Kennsluaðferðir 1,8 3,0 3,1 2,8 2,5 Bekkjarstjórnun / agamál 2,7 3,4 3,7 2,7 3,1 Yfirferð námsefnis 2,2 3,2 3,0 2,6 2,5 Námsmat 1,9 2,7 2,6 2,3 2,1 Sameiginleg viðfangsefni 1,9 3,1 2,9 2,1 2,4 Samstarf, meðaltal 2,3 3,2 3,2 2,6 2,6 Kvarði frá 0–6, hærra gildi gefur til kynna meira samstarf Kennarar Furuskóla svöruðu því oftast til að þeir ættu daglega samstarf við sam- kennara sína um undirbúning kennslunnar, eða 58% þeirra, en einungis 25% kennara Asparskóla. Athygli vekur að um 53% kennara í Asparskóla sögðu að þeir ættu aldrei eða sjaldnar en einu sinni í mánuði samstarf við samkennara sína um kennsluaðferðir. Kennarar voru einnig spurðir að því hversu oft þeir kenndu með öðrum kennurum í sama kennslurými eða skólastofu (tafla 5). Mikill munur kom fram milli skólanna. Hlutfall kennara sem svöruðu því til að þeir kenndu daglega með öðrum kennara í sama kennslurými/skólastofu var áberandi hæst í Furuskóla (53%). Hlutfall þeirra kennara sem kenna nánast alltaf einir var áberandi hæst í Asparskóla (82%) og var þetta staðfest í vettvangsathugunum. Vettvangsathuganir voru gerðar í 19–23 kennslustundum í hverjum af skólunum fjórum. Það eru of fáar stundir til að hægt sé að draga ályktanir um kennsluhætti í hverjum skóla en geta þó varpað ljósi á aðstæður þegar gögnin eru skoðuð með öðrum gögnum rannsóknarinnar. Í klasaskólunum tveimur, Asparskóla og Birkiskóla, var undantekningarlaust stuðst við hefðbundið fyrirkomulag, það er einn kennari ber ábyrgð á einum bekk. Í engri kennslustund sem skoðuð var í þessum tveimur skólum hafði hefðbundið fyrirkomulag verið stokkað upp, þannig að teymi kennara bæri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.