Morgunblaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
✝ Emil Vil-hjálmur Vil-
hjálmsson var
fæddur í Rvk. 29.
des. 1944. Hann
lést 3. ágúst 2012.
Foreldrar: Vil-
hjálmur Eyjólfsson,
fæddur í Nesjum,
A-Skaft. 4. nóv.
1902, d. 25. júlí
1983. Jóhanna Ein-
arsdóttir, fædd í
Winnipeg, Kanada, 18. maí
1919, d. 2. jan. 1998. Maki: Sig-
ríður Þorbergsdóttir, f. 7.5.
1941. Þau hófu sambúð 1970 og
slitu samvistum 1984. Systkini:
Þórólfur Vilhjálmsson, fæddur í
Rvk 30. ágúst 1940. Bróðir and-
aðist í fæðingu í febrúar 1942.
Sigfríður Margrét
Vilhjálmsdóttir,
fædd í Hafnarfirði
1. júlí 1951. Maki
Krsta Kristin Sta-
nojev, f. 5.6. 1944,
d. 2.2. 2003. Börn:
Heiða Emilsdóttir,
f. 22.3. 1970. Maki.
Erlendur Þ. Sig-
urðsson, f. 6.1.
1970. Einar Vil-
hjálmur Emilsson,
f. 24.4. 1971. Helgi Emilsson, f.
30.8. 1973. Fósturbarn: Ástríður
Eyjólfsdóttir, f. 25.11. 1962.
Barnabörn eru 8.
Jarðarför Emils fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 11.
ágúst 2012, og hefst athöfnin kl.
11.
Elsku pabbi minn, þá er komið
að kveðjustund.
Ég sit hér við eldhúsborðið þitt
að reyna að skrifa nokkur orð
með tárin í augunum. Ég á svo
erfitt með að trúa því að þú sért
farinn, en ég trúi því að þér líði
vel þar sem þú ert. Ég á svo
margar góðar minningar um þig
sem ég mun geyma í hjarta mínu.
Ég er svo þakklát fyrir hvað við
áttum gott samband, það er mér
dýrmætt. Þín verður sárt saknað.
Þangað til við hittumst síðar.
Við kistu þína kveðjumst við í dag,
í kirkju hljómar ómþýtt sorgarlag.
Þú leggur upp í langa gönguför,
þín leið er greið að drottins fótaskör.
Við höfum ótal margt að þakka þér,
þakklátt auga minninganna sér
myndir koma minn á hugarskjá,
já, margt er gott sem hugarfylgsnið á.
Við lofgjörð syngjum lausnaranum
þeim,
sem leiðir okkur rétta götu heim.
Drottinn minn um blessun þína bið,
og börn þín öðlast ró og frið.
(Hörður Zóphaníasson.)
Guð veri með þér, sofðu vært,
pabbi minn.
Þín dóttir,
Heiða.
Elsku afi okkar.
Jesús er Guð þinn,
því aldrei skalt gleyma.
Hann gengur við hlið þér
og leiða þig vill.
Þú eilífa lífið,
átt honum að þakka,
hann sigraði dauðann
og lífið gaf þér.
Guðs son á himni
nú vakir þér yfir.
Hann gleymir ei bæn þinni
hver sem hún er.
Líf mitt sé falið þér,
eilífi faðir.
Faðminum þínum ég hvíla vil í.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Góða nótt, afi okkar.
Aron og Erna.
Mig langar að minnast Emils
bróður míns, rifja upp stöku
minningabrot honum tengd í
þessum fáu línum.
Já, blessuð! Með áherslu.
Þannig hljómaði byrjun símtala
okkar Emils. Fallegt að fá bless-
un í byrjun símtals.
Emil er sextán ára þegar ég
kynnist honum fyrst. Þar sem
aldursmunur okkar var sjö ár, er
augljóst að áhugmál okkar voru
ólík.
Það má segja að lífsmottó Em-
ils hafi verið að fara hratt yfir. Í
lífi sínu og starfi. Mestan sinn
starfsaldur vann Emil sem húsa-
smiður. Var hann afar vel liðinn.
Enda hörkuduglegur og ósérhlíf-
inn svo af bar. Ég kynntist náið
þeim dugnaði, þegar mig og eig-
inmann minn vantaði smið til að
innrétta atvinnuhúsnæði. Þar
sem áður voru skrifstofur þurfti
að endurhanna og endurbyggja
til leikfimiiðkunar. Og aðeins þrír
mánuðir til stefnu. Þegar Emil
hóf verkið var eins og hamhleypa
færi á stað. Veggir voru rifnir
niður, gólfefni rifin upp. Við hin í
fjölskyldunni reyndum að vera
ekki fyrir. Reyndum þó að hlýða
fyrirmælum verkstjórans eftir
bestu getu. Og áætlunin hafðist.
Það var smiðnum sannarlega til
sóma. Mikið þakklát er ég þér,
Emil minn.
Emil fluttist til Sauðárkróks
fyrir tvítugt. Þar settist hann að
til frambúðar. Ekki hittumst við
oft fyrstu árin, en fréttum þó allt-
af hvort af öðru.
Lífið gekk sinn gang, vinnan,
sambúð, húsbygging, börnin
hans fæddust og allt virtist í góð-
um farvegi. Þá kom hans gamli
félagi, Bakkus, og barátta Emils
við hann var löng og ströng.
Seinustu árin glímdi Emil við
mikið heilsuleysi og gat þess
vegna ekki unnið fulla vinnu.
Sætti hann sig illa við að geta
ekki unnið, eins duglegur og sam-
viskusamur og hann var.
Emil sankaði ekki að sér ver-
aldlegum eignum. Taldi slíkt
mikinn óþarfa. Nýtti vel það sem
til var. Kippti sér ekki upp við álit
annarra á því.
Emil hafði sterkar skoðanir á
þjóðmálunum. Elskaði landið sitt
fallega heitt og innilega. Hann
gat ekki skilið á hvaða leið Íslend-
ingar væru. Gat ekki skilið virð-
ingarleysið og léttúðina gagnvart
verðmætum lands og sjávar.
Emil var dulur. Talaði ekki
mikið um sín innri mál eða gild-
ismat. Veit ég þó að hann var
mjög trúaður, las sér til um dul-
spekileg efni, sem hann hafði
mikinn áhuga á. Einnig unni
hann fallegum kveðskap. Las
hann fyrir mig heilu ljóðin eftir
minni, þegar svo stóð á.
Þegar Emil kvaddi mig eftir
símtal, stuttu fyrir andlát sitt,
sagði hann eins og oft áður. Syst-
ir mín, viltu gera eitt fyrir mig?
Gakktu ævinlega á guðs vegum
og reyndu alltaf að vera góð
manneskja. Já, Emil minn. Ég vil
og mun reyna það, elsku bróðir
minn.
Ég vona og ég veit að þú ert á
upplýstum vegi guðs núna, Emil
minn.
Þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar, allan góða matinn,
yndislegu nærveruna þína, að þú
skyldir sofa í óþægilega sófan-
um, en lána mér rúmið þitt þegar
ég var í heimsókn hjá þér.
Ég græt saknaðar- og
þakklætistárum, elsku bróðir
minn.
Vil ég senda börnum þínum,
tengdabörnum, barnabörnum,
bróður og öllum vinum og ætt-
ingjum hugheilar samúðarkveðj-
ur.
Þín systir,
Sigfríður.
Nú er kær bróðir minn fallinn
frá og þess vegna vil ég minnast
hans sem á seinni árum varð mér
svo kærkominn. Fjölskylduað-
stæður okkar voru erfiðar í
bernsku og slitu foreldrar okkar
samvistir þegar við vorum börn.
Því varð það að við ólumst ekki
upp saman, heldur var langt á
milli okkar.
Lengst af var Emil í Skál-
holtsvík í Strandasýslu sem barn
og unglingur, en ég á Herjólfs-
stöðum í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Áður höfðum við, vegna
fjölskylduerfiðleika, verið ansi
víða.
Um tíma vorum við saman
þegar við vorum ungir, en það
var ekki langur tími og kynni
okkar urðu lítil á þessum árum,
enda nokkur aldursmunur, ég
var fjórum árum eldri. Alla tíð
vorum við hvor í sínum lands-
hluta, en þegar tímar liðu tókust
með okkur góð kynni sem entust
alla tíð. Eins og ávallt í mannlíf-
inu mótumst við mest í bernsku
og Emil var viðkvæmur og sumir
þættir bernskunnar voru honum
erfiðir. Hann var ákaflega skap-
mikill en jafnframt ljúfmenni og
þetta birtist í lífi hans og starfi.
Þar sem ég hafði alist upp við
svipaðar kringumstæður og hann
fannst mér ég skilja hann ákaf-
lega vel.
Alla tíð var Emil áhugasamur
um smíðar og vann við smíðar í
Strandasýslunni áður en hann
hóf smíðanám á Sauðárkróki, þar
sem hann lauk námi í trésmíði.
Hann vann við smíðar á Sauðár-
króki, en í nokkur ár var hann til
sjós á skipum gerðum út frá
Krókunum. Eftir það vann hann
alla tíð við smíðar, mest í Skaga-
firði, en einnig víðar. Emil var
gríðarlega atorkusamur verk-
maður og samviskusamur við öll
sín störf. Þetta hafði ég séð þegar
ég kom til hans í heimsókn og
þetta fékk ég að reyna í þau skipti
sem við fengumst við eitthvað
saman.
En erfiðleikar urðu sannarlega
á vegi hans í lífinu, sem hann
barðist við alla tíð. Ég fékk að
kynnast honum nánar á efri ár-
um. Bæði heimsótti ég hann oft
norður á Sauðárkrók og hann
kom til mín í heimsókn til Vest-
mannaeyja. Þá fékk ég að upplifa
ljúfleika hans og mannkosti sem
hann flíkaði ekki dags daglega.
Að fá að kynnast honum jafn vel
og raun varð á og upplifa návist
hans varð mér uppspretta vænt-
umþykju sem er og verður mér
ómetanleg. Ég var á leið til hans í
heimsókn eins og við höfðum ráð-
gert kvöldið fyrir andlát hans,
þegar mér bárust fregnir af því
að hann væri dáinn. Þá skildi ég
fyllilega hvað ég hafði misst mik-
ið. Þær tilfinningar er aðeins
hægt að upplifa, ekki útskýra.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég öllum aðstandendum.
Megi minning um góðan dreng
lifa.
Þórólfur Vilhjálmsson.
Emil V.
Vilhjálmsson
HINSTA KVEÐJA
Kæri Emil minn.
Ég bið Guð að gæta mín,
góða anda að hugga mig.
Sama ósk er eins til þín:
Almættið það sjái um þig.
(Leifur Eiríksson.)
Blessuð sé minning þín.
Þinn tengdasonur,
Erlendur Þ.
Sigurðsson.
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.
Sendum
frítt
hvert á land sem
er
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
áður til heimilis
í Nökkvavogi 42,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
mánudaginn 13. ágúst kl. 14.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Sauðárkróks fyrir natni og alúð við umönnun hennar
síðustu æviárin.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 08:00
að morgni útfarardags.
Páll K. Gunnarsson, Esther Þorgrímsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, Bjarma Didriksen,
Sigurður D. Gunnarsson, Anna S. Gunnarsdóttir,
Oddur Gunnarsson, Áslaug Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
BRAGA V. BJÖRNSSONAR
skipstjóra
frá Sjónarhóli,
Hafnarfirði,
til heimilis að Ásbúð 96,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar LHS fyrir þeirra
óeigingjarna starf.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Luckas,
Guðbjörg Birna Bragadóttir, Rolf Aage Larsen,
Harpa Bragadóttir,
Þóra Bragadóttir, Hafsteinn Ólafsson,
Geir Bragason,
Erna Dóra Bragadóttir, Arnfinn Johnsen,
Guðmundur Ýmir Bragason, Guðrún Hallgrímsdóttir,
Karl Udo Luckas, Rósa Linda Thorarensen,
Claudia M. Luckas, Þórður Bachmann,
Frank D. Luckas, Gígja Magnúsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og bróður,
RAGNARS S. GRÖNDAL.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Múlabæjar.
Ragnhildur Gröndal, Örn Berg Guðmundsson,
Jakobína Hjördís Gröndal, Eiríkur Ragnarsson,
Dagrún Gröndal, Magnús Gylfason,
Sigurður Gröndal, Íris Jakobsdóttir,
Sigurberg Gröndal, Sólborg Lárusdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHILDUR J. PÁLSDÓTTIR,
Fróðengi 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Hjörtur Ingi Vilhelmsson, Vilborg Sigrún Ingvarsdóttir,
Jóhanna Elísabet Vilhelmsdóttir, Sigurjón B. Sigurjónsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
RAGNARS MICHELSEN
blómaskreytingamanns.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga
Karitas, starfsfólks krabbameinsdeildar
11 E á Landspítalanum og líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og nærgætni
í veikindum hans.
Guð veri með ykkur öllum.
Aðstandendur og vinir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DROPLAUG HELLAND,
Vogatungu 13,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 6. ágúst, verður
jarðsungin í Digraneskirkju mánudaginn
13. ágúst kl. 15.00.
Birgit Helland, Hreinn Frímannsson,
Arndís Inga Helland, Óskar Þormóðsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Okkar ástkæri fósturfaðir, afi og langafi,
SIGURÞÓR MAGNÚSSON,
Hrafnistu,
Kópavogi,
áður til heimilis að Vesturbergi 89,
lést á Landspítalanum Fossvogi
fimmtudaginn 9. ágúst.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 16. ágúst
kl. 13.00.
Svana Guðlaugsdóttir, Andrés Elisson,
Sunna Guðlaugsdóttir, Snorri Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.