Morgunblaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 42
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Merkilegt hvað sum dægurtónlist heldur áfram að koma manni í opna skjöldu, já fær hárin hreinlega til að rísa þegar maður heyrir hana. Og skiptir þá engu þótt maður hafi heyrt hana hundrað sinnum áður. Þetta er víst það sem orðið „sígilt“ á að lýsa; það sem skapað var í fyrndinni nær enn að hafa sterk áhrif á samtímahlustendur og er enn jafn leitandi og áhrifaríkt og það var daginn sem það kom út. Þessar pælingar hafa verið í gangi að undanförnu hjá mér hvað þýsku sveitina Kraftwerk varðar en ég hef verið á bólakafi í verkum þeirr- ar eðlu sveitar síðustu vikur og á vart til orð til að lýsa snilldinni. Svona skeið hef ég tekið reglulega með þessari hljómsveit og alltaf er ég jafngapandi. Já lesandi góður … þetta bara varð að komast út! Gangskör Ég veit ekki alveg af hverju ég datt inn í þetta núna. Þetta gerist venjulega fremur tilviljanakennt þegar maður fer svona á bólakaf í ákveðin bönd. Ég hef samt haft hálfgert samviskubit í garð plöt- unnar Computer World (1981) en það er sú plata Kraftwerk sem ég hef hvað minnst hlustað á!? (ófyr- irgefanlegt, ég veit). Alltént, nú skyldi gangskör gerð. Á sínum tíma, þegar ég var að dýfa tám sem víðast – og af nokkru offorsi eiginlega – í allra handa dægurtónlist, las ég viðtal við Kraftwerk í Melody Maker. Þetta var í tengslum við endurhljóðblönd- unarplötuna The Mix sem kom út 1991. Ég hafði þá engan veginn gert mér grein fyrir því hversu ótrúlega áhrifarík þessi sveit hafði verið hvað samtímapopp áhrærði. Hlutverk hennar sem brautryðj- andi í tölvutónlist verður seint of- metið. Heilu tónlistarstefnunum var hrundið af stað fyrir tilstilli hennar – stundum fleiri en einni í einu og sama laginu. Hipphopp, teknó, hústónlist, „industrial“, ný- rómantík; öll þessi fyrirbæri eiga allt sitt meira og minna undir Kraftwerk. Biblían Eftir að hafa lesið þetta viðtal í Biblíunni minni pikkaði ég upp Trans-Europe Express og Man Machine fyrir slikk í plötubúðinni Þrumunni á Laugaveginum. Ég man þegar fyrstu tónarnir frá „Eu- rope Endless“ hófu að óma í litla herberginu mínu í Árbænum. Mér fannst þetta dálítið einkennilegt (ég var mestmegnis að hlusta á hávaða- nýbylgju og pönk á þessum tíma) en það var eitthvað þarna sem ég hreifst af. Ég og bróðir minn kær hlustuðum svo endalaust á þessar plötur og hann tók fljótlega fram úr mér í Kraftwerkáhuganum. Hann hefur mikið mært Computer World og nú er ég kominn á þá skoðun að hún sé hápunkturinn á ferli sveit- arinnar. Skoðum þetta aðeins: Autobahn (1974) bar með sér tíma- mót en platan sem heild er ójöfn. Sama má segja um Radio Activity (1975). Trans-Europe Express er fyrsta meistaraverkið en ég við- urkenni að lög eins og „The Hall of Mirrors“ eru í það tilgerðarlegasta. Man Machine er sannarlega mögn- uð en nánast of poppuð og dálítið hrá; það er enn verið að slípa dæm- ið til. En öllum vopnum er svo glæsilega safnað saman á Compu- ter World (1981). Bara upphafs- tónar titillagsins senda þægilega höggbylgju í magann á manni. Al- gerlega ótrúlegt! Eftir þessa plötu missti Kraftwerk svo eiginlega fót- anna, Techno-Pop, platan sem átti að koma í kjölfarið, tafðist óheyri- lega vegna sívaxandi fullkomn- unaráráttu, þekkt minni í sögu okk- ar helstu poppsnillinga (Brian Wilson t.d.). Það er eitthvað skringilegt við það að helstu arkitektar alls þess sem var nýtt í popptónlist lifi í dag á fornri frægð, hvort heldur sem er á tónleikum eða í hljóðversvinnu. Eigum við ekki bara að segja að Ralf, Florian og þeir allir hafi bara klárað kvótann hratt og vel og séu því skuldlausir að þessu leytinu til? Einskonar kraftaverk … »Heilu tónlistar-stefnunum var hrundið af stað fyrir til- stilli hennar – stundum fleiri en einni í einu og sama laginu. Framtíðarmenn Hin þýska Kraftwerk var óralangt á undan sinni samtíð.  Sum tónlist er sífersk og sígild, sama hversu mikið elli kelling ber á henni  Hin þýska Kraftwerk breytti þannig tónlistarsögunni á áttunda áratugnum  Einungis Bítlarnir hafa valdið jafnmiklum straumhvörfum 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012 Þeir Mike D og Ad-Rock í rapp- sveitinni Beastie Boys, auk dán- arbús Adams „MCA“ Yauch, þriðja liðsmanns sveitarinnar sem lést á árinu, hafa lögsótt framleiðanda orkudrykkjarins Monster, Monster Energy Corp., fyrir brot á höfund- arrétti. Rappararnir eru ósáttir við leyfislausa notkun fyrirtækisins á nokkrum laga þeirra í kynningar- myndbandi fyrir snjóbrettakeppn- ina Ruckus in the Rockies en fyr- irtækið styrkir þá keppni. Meðal þeirra laga sem notuð voru í mynd- bandinu eru „Sabotage“, „So What’cha Want“ og „Looking Down the Barrel of a Gun“. Adam Yauch lést í maí sl. eftir langa baráttu við krabbamein. Hann var einn stofnenda Beastie Boys. Harðir Beastie Boys árið 2006, þeir Mike, Adam Horowitz og Adam Yauch. Beastie Boys lög- sækja Monster TOTAL RECALL Sýnd kl. 8 - 10:20 BRAVE:HINHUGRAKKA 3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6 BRAVE:HINHUGRAKKA 2D Sýnd kl. 2 KILLER JOE Sýnd kl. 8 - 10:20 INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20 ÍSÖLD4HEIMSHÁLFUHOPP3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 43.000 MANNS! Frá höfundum Toy Story 3, Leitin að Nemó og UPP Stórkostleg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU ÍSL TEXTI ÍSL TAL 12 16 12 L L HHH HHHH VJV - SVARTHÖFÐI HHHHH-MIAMI HERALD HHHH- ROLLING STONES HHHH- GUARDIAN HHHH- TIME ENTERTAINMENT L MEÐ ÍSLENSKU TALI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS BRAVE:HINHUGRAKKA 2D KL. 1(TILB.) 3.30 - 5.45 L BRAVE:HINHUGRAKKA 3D KL. 1(TILB.) 3.30 - 5.45 L TOTAL RECALL KL. 6 - 8 - 9 - 10.35 12 TOTAL RECALL LÚXUS KL. 2.30 - 5.20 - 8 - 10.35 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.50 L ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 L TED KL. 8 - 10.20 12 SPIDER-MAN 3D KL. 8 - 10.50 10 - V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS - H.S.S., MBL BREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM! TO ROME WITH LOVE KL. 3 (TILB.) - 5.30 - 8 - 10.30 L TOTAL RECALL KL. 6 - 9 12 KILLER JOE KL. 8 - 10.20 16 ÍSÖLD 4 3D KL. 3 (TILB.) 2D KL. 3.40 (TILB.) - 5.50 L INTOUCHABLES KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L TOTAL RECALL KL. 8 - 10.15 12 TO ROME WITH LOVE KL. 5.50 - 8 L KILLER JOE KL. 10.15 16 INTOUCHABLES KL. 5.50 12 ÍSÖLD 4 3D KL. 4 (TILBOÐ) / 2D KL. 4 (TILBOÐ) L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.