Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 147
ÆSKUMINNINGAR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI
samanburð við ráðhúsið á Sauðárkrók i,
en Guðjón var þá forseti bæjarstjórnar.
Já, kímnin var ávallt til staðar hjá Val
gard. Jóhanna, kona hans, var mjög
glæsileg. Hún tók einnig mikinn þátt
í leikstarfsemi. Þá tóku þau virkan
þátt í félagslífinu á Sauðárkróki. Þau
áttu fimm börn.
Elstur þeirra var Kristján eða Kiddi
Blöndal eins og hann var ávallt kall
aður. Hann var myndarlegur strákur
en byrjaði snemma að reykja og
drekk a. Hann var mjög góður bridds
spilari. Þá var hann talsvert til sjós.
Hann var á vertíð í Sandgerði en datt
þar í stiga og leiddi það hann til
dauða, tæplega þrítugan að aldri.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Næstur honum í aldursröð var Árni
eða Addi Blöndal. Þeir voru ákaflega
ólíkir bræðurnir. Hann tók við rekstri
bókabúðarinnar af föður sínum og
umboði fyrir Flugfélagið. Kona hans
er María Gísladóttir frá Eyhildarholti.
Þau ólu upp son Auðuns, bróður Árna,
sem heitir Kristján, en sonur hans er
hinn þekkti gamanleikari Auðunn
Blöndal. Árna og Maríu hefur farnast
vel í lífinu.
Þá kom Hildur Blöndal. Það var afar
geðug stúlka. Hafði hún mjög gaman
af að syngja og söng prýðilega vel.
Hún flutti til Hveragerðis, veiktist af
krabbameini á fimmtugsaldri og
leidd i það hana til dauða. Maður
henn ar var Stefán Magnússon frá
Herjólfs stöðum, framkvæmdastjóri í
Hveragerði.
Næst var Álfheiður eða Heiða
Blöndal. Hún var hnellin og skemmti
leg stúlka, síhlæjandi og félagslynd.
Hún stóð fyrir því eitt gamlaárskvöld
að bjóða milli 10 og 20 unglingum til
veislu heima hjá mömmu sinni og
pabba. Var farið í ýmsa leiki og endaði
kvöldið með því að Valgard skaut upp
tólf flugeldum klukkan tólf og í hvert
skipti sem hann skaut upp flugeldi
bað hann fyrir velferð á komandi ári
og þakkaði fyrir liðið ár. Þessi stund er
ógleymanleg. Heiða fluttist ung til
Ameríku, giftist og hefur átt þar
heim a síðan. Hún á víst fjölda af
börnu m.
Yngstur var svo Auðunn Blöndal.
Hann var skemmtilegur strákur, afar
músíkalskur og hafði gaman af að
syngj a. Hann lék sér mikið með okkur
strákunum. Hann var mikið kvenna
gull og gat vafið stúlkunum um fing
ur sér ef svo lá á honum. Hann fór til
Reykjavíkur og lærði flugvirkjun, var
talsvert óreglusamur og átti í erfiðleik
um með Bakkus árum saman. Hann
giftist ágætri konu en ég held að þau
hafi slitið samvistum sökum óreglu
hans. Hann gekk í hvítasunnuflokk
inn og var þar talsvert virkur í nokkur
ár. Af Auðuni vini mínum hef ég
ekkert heyrt í mörg ár.
Mamma sagði mér að þegar við
börnin hennar vorum lítil hefðum við
sjaldan orðið veik eða fengið kvef, en
krakkarnir í Villunni hefðu alltaf verið
meira og minna lasnir þó að þeir væru
í miklu betra húsnæði og ættu miklu
meira af skjólfatnaði en við. Það sann
aðist kannski þarna að á misjöfnu þríf
ast börnin best.
Fjölskyldan í bakaríinu
Í bakaríinu fyrir norðan Höepfner áttu
þau heima Guðjón Sigurðsson bakara
meistari og Ólína Björnsdóttir kona
hans. Um Guðjón mætti mikið skrifa.
147