Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 121. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Námsbækur
undir kodda
Námsmenn sitja nú sveittir við
próflesturinn | Daglegt líf 24
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Djásnið prófað á kappakstursbraut Reynslu-
akstur á BMW 520d Íþróttir | Sverrir Björnsson til
Gummersbach Lebron James líktist Jordan
ALLS eru í dag um 1.500 manns að störf-
um við virkjunarframkvæmdirnar á vinnu-
svæði Kárahnjúkavirkjunar. Því til viðbót-
ar er talið að nálægt 200 manns séu við
störf utan virkjunarsvæðisins sem tengj-
ast framkvæmdunum, skv. upplýsingum
Sigurðar Arnalds, upplýsingafulltrúa
Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun.
Þá vinna í dag nálægt 1.600 manns við
byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyð-
arfirði.
Nálægt 600 starfsmenn hafa unnið að
stækkun Norðuráls á Grundartanga að
undanförnu. Alls eru því hátt í 4.000 manns
að störfum við stóriðju- og virkjanafram-
kvæmdir um þessar mundir.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hátt í fjögur
þúsund
við stórfram-
kvæmdir
ÁSTANDIÐ á vinnumarkaði hefur
ekki verið betra um langt skeið.
Starfandi fólki á vinnumarkaðin-
um fjölgaði alls um 7.700 á fyrsta
fjórðungi þessa árs miðað við sama
tímabil í fyrra, eða úr 155.800 í
163.500 starfandi einstaklinga.
Þessar upplýsingar koma fram í
Hagtíðindum Hagstofu Íslands.
Á vinnumarkaðinum voru
167.500 manns að meðaltali og
jafngildir það 81,1% atvinnuþátt-
töku, sem fer stöðugt vaxandi en
hún var 79,8% á sama tíma í fyrra.
janúar, febrúar og mars voru gefin
út 2.469 atvinnuleyfi handa útlend-
ingum.
Önnur skýring er sú að verulega
hefur dregið úr atvinnuleysi, sem
var 2,4% á fyrsta fjórðungi þessa
árs, samanborið við 3% í fyrra. Skv.
skrám vinnumiðlana var atvinnu-
leysi í marsmánuði 1,3% og hefur
ekki verið jafn lítið frá því um mitt
ár 2001.
,,Það er nánast hver hönd sem
getur unnið með starf,“ segir Giss-
ur og bendir á að fjölga muni um-
talsvert á vinnumarkaðinum í þess-
um mánuði og næsta þegar skóla-
nemar koma til sumarstarfa.
fyrstu mánuðum ársins miðað við
seinustu ár og ekki einhlítar skýr-
ingar á henni. Fjölgun útlendinga á
vinnumarkaði á Íslandi að undan-
förnu skýrir aðeins að hluta til
þessa aukningu en í mánuðunum
Þetta er að öllum líkindum meiri
fjölgun starfandi fólks á þessum
árstíma en dæmi eru um í seinni tíð.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segir hér um
óvenju mikla fjölgun að ræða á
LÖGREGLAN í Reykjavík heldur
á morgun, laugardag, uppboð á
hlutum sem endað hafa uppi í
óskilamunadeild lögreglunnar. Í
óskilamunageymslunni kennir
margra grasa og má þar meðal
annars finna um 240 reiðhjól, jóla-
svein með lausan haus, sófahorn,
boxpúða, golfsett, sjónvörp,
hljómflutningstæki, loftpressu,
verkfæri, dekk, skíði, tölvur og
margt fleira. Að sögn Steinþórs
Hilmarssonar, lögregluþjóns, er
meginþorri þessara hluta þýfi
sem gert hefur verið upptækt eða
hlutir sem fundist hafa á víða-
vangi. Má þykja líklegt að á boð-
stólum verði eitthvað við allra
hæfi. Uppboðið hefst kl. 13.30
stundvíslega og fer fram í portinu
á bakvið Borgartún 7. Morgunblaðið/Júlíus
Boxpúði og
jólasveinn með
lausan haus á
uppboði
Brussel. AFP. | Nú þegar sumarið er að
koma og sólin fer að hella geislum sínum
yfir fólk og fénað, fara margir að huga að
sólarolíunni. Hjá einni stofnun Evrópu-
sambandsins hefur verið vakin athygli á
því, að þær flokkunarreglur, sem nú eru
notaðar um sólarvörn olíunnar, séu vill-
andi og jafnvel beinlínis hættulegar.
Gregor Kreuzhuber, sem fer með ýmis
mál tengd iðnaðarframleiðslu, sagði, að á
sólarolíuflöskum væri gefinn upp styrk-
leiki sólarvarnarinnar en það, sem ekki
segði, væri, að hann gilti aðeins um UVB-
geisla, sem valda sólbruna, en ekki um
UVA-geisla, sem einnig geta haft áhrif á
ónæmiskerfið, skaðað húðina og valdið
húðkrabbameini. Auglýsingar um að ein-
hver olía byrgði alveg fyrir geisla sól-
arinnar væri út í hött. Kreuzhuber sagði,
að besta vörnin væri að vera ekki of mik-
ið í sól og sérstaklega skyldu foreldrar
ungra barna fara varlega og láta þau
ekki vera of ber í sterku sólskininu.
Villandi
sólarvörn
ÞEGAR Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, kom til fund-
ar við starfsmenn við vinnumiðl-
unina á Selfossi í gær, stóð svo á að
þar var aðeins einn karlmaður á
atvinnuleysisskrá. Gissur segir að
menn hafi keppst við að finna
manninum starf og var hann kom-
inn í vinnu örskömmu síðar. Þetta
er kannski lítið dæmi um hvað at-
vinnuástandið er ótrúlega gott,
segir Gissur.
Einn á skrá og fékk strax vinnu
Starfandi fólki fjölgaði
um 7.700 á milli ára
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
London. AP, AFP. | Fyrstu úrslit í sveitarstjórnar-
kosningunum í Bretlandi sýndu, að Verka-
mannaflokkurinn var að tapa fylgi og Íhalds-
flokkurinn að bæta við sig. Var það aðallega
miðað við niðurstöðu í fremur smáum kjördæm-
um en ekki var að vænta úrslita frá kjördæm-
unum á Lundúnasvæðinu fyrr en nokkuð væri
liðið á nótt. Allar spár hnigu þó að því, að Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Verka-
mannaflokkurinn hefðu fengið skell í sveitar-
stjórnarkosningunum í gær. Var kjörsóknin góð
eftir því sem gerist í Bretlandi, líklega um 40% á
móti 30% síðast, og var besta sumardeginum til
þessa þakkað það.
Kosið var í 176 sveitarstjórnum, um 4.361 sæti
af alls 19.579, og í öllum 32 sveitarfélögunum í
London. Blair og kona hans, Cherie, kusu
snemma og svo var líka um David Cameron,
leiðtoga Íhaldsflokksins, og konu hans, Sam-
önthu.
Talið var, að kjósendur myndu nota tækifærið
til að refsa Tony Blair og Verkamannaflokknum
fyrir ýmis hneykslismál, Íraksstríðið og fleira og
hafi það gengið eftir, til dæmis að hann hafi tapað
á bilinu 200 til 400 sætum eins og spáð var, er lík-
legt, að Blair neyðist til að ákveða hvenær hann
muni standa upp úr forsætisráðherrastólnum.
Mikið í húfi fyrir Cameron
Fyrir Cameron og Íhaldsflokkinn voru kosn-
ingarnar mjög mikilvægar. Mörg flokkssystkin
hans hafa verið dálítið efins um það hvert hann er
fara með flokkinn og því mun gengi hans í gær
gera annað tveggja, að treysta Cameron sem
leiðtoga eða auka enn á þann kurr, sem verið hef-
ur innan flokksins. Þá var þess beðið með eft-
irvæntingu hvernig Breska þjóðernissinna-
flokknum, sem amast við útlendingum, myndi
vegna. Kannanir hafa sýnt aukið fylgi við hann og
sérstaklega sums staðar í London.
Fyrstu úrslit bentu til fylgis-
taps Verkamannaflokksins
Reuters
Tony Blair og Cherie, eiginkona hans, er þau
komu á kjörstað í gærmorgun.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is