Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENDIR blaðamenn, fatahönnuðir og stílistar frá París, London
og New York verða meðal þeirra sem verða viðstaddir tískusýningu
útskriftarnema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Sýningin fer
fram í Hafnarhúsinu í kvöld. Fulltrúar tímarita á borð við V , i-D,
Harper’s Bazaar og bandaríska Elle koma til landsins af þessu tilefni
og sækja þeir einnig opnun sýningar útskriftarnema allra deilda LHÍ
á morgun.
Alls tíu fatahönnuðir útskrifast frá skólanum að þessu sinni og verð-
ur hver þeirra með sex til átta alklæðnaði á sýningunni. Guðjón Sig-
urður Tryggvason er einn þeirra. Sjálfur sýnir hann átta alklæðnaði
og segir að vinna við útskriftarfatalínuna hafi staðið yfir síðastliðna
önn. Hann segir að sýningin eigi eftir að vera fjölbreytt. „Hún verður
mjög fjölbreytt, eins fjölbreytt og við erum mörg. Það eru allir með
sína rödd.“
Að vonum er ánægja með að geta sýnt hönnun sína fyrir svo marga.
„Svona sýning er nauðsynleg til að sýna fram á að þetta sé alvöru nám
og alvöru fag, að þetta standist samanburð við sýningar erlendis.“
Guðjón ætlar líka eins og aðrir að reyna að nota tækifærið til að
mynda sambönd við erlendu gestina . „Það er alltaf maður sem þekkir
mann, sem þekkir mann....“
Vinnan hefur verið mikil við sýninguna. „Vinnan er alltaf fram á
seinustu mínútu, það er alltaf verið að betrumbæta.“
Hann segist hafa lært mikið á skólanum og hann hafi tvímælalaust
þroskast á veru sinni þar. Hann hefur þegar vakið athygli fyrir hönn-
un sína og verður gaman að sjá hvað Guðjón og útskriftarárgangur
hans hafa uppá að bjóða í kvöld.
Brot af því má sjá á meðfylgjandi myndum en ljósmyndari Morg-
unblaðsins leit við í húsnæði Listaháskólans við Skipholt þegar loka-
undirbúningurinn var í fullum gangi.
Tíska | Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun við LHÍ
Allir með sína rödd
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Tískusýningin verður í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, kl. 20 í
kvöld.
Morgunblaðið/Ómar
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó
MI : 3 kl. 3.20, 6, 9 og 11.40 B.i. 14 ára
MI : 3 LÚXUS kl. 3.20, 6, 9 og 11.40
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 4 og 6
Prime kl. 8 og 10.30
The Hills have Eyes kl. 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m. ensku tali kl. 8
Ísöld 2 m. ísl. tali kl. 4 og 6
Hvað sem þú gerir EKKI
svara í símann
AF MÖRGUM TALIN VERA
BESTA MISSION IMPOSSIBLE
MYNDIN TIL ÞESSA.
SUMARSINS ER KOMIN
FYRSTA
STÓRMYND
Inside Man kl. 8 og 10.25 B.i. 16 ára
Rauðhetta m/íslensku tali kl. 6
Lucky Number Slevin kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6
Eins og þú
hefur aldrei séð hana áður
Birgitta Haukdal fer á kostum sem Rauðhetta í íslensku talsetningunni.
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
HROTTALEGASTA
MYND ÁRSINS
Stranglega bönnuð
innan 16 ára - dyraverðir við salinn!
POWER SÝNING
Í SMÁRABÍÓ KL.23.40
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS