Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
Ekkert er hættu-
legra en maður
sem er um það
bil að missa allt SÝND Í SAMBÍÓUNUM
KRINGLUNNI
ÞETTA VIRTIST VERA
HIÐ FULLKOMNA
BANKARÁN ÞAR TIL
ANNAÐ KOM Í LJÓS
Fjórði og síðasti kaflinn af þríleiknum
Það fyndnasta sem þú hefur nokkurn tímann sagað!
MYND SEM FÆR ÞIG TIL AÐ TRYLLAST AF HLÁTRI
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
Fjórði og síðasti kaflinn af þríleiknum
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN
AF MÖRGUM TALIN VERA
BESTA
MISSION IMPOSSIBLE
MYNDIN TIL ÞESSA.
MI : 3
kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.I. 14 ÁRA
SCARY MOVIE 4
kl. 6 - 8 - 10 B.I. 10 ÁRA
MI : 3
kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.I. 14 ÁRA
SCARY MOVIE 4
kl. 6 - 8 - 10 B.I. 10 ÁRA
MI:3 kl. 6 - 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SCARY MOVIE 4 kl. 6 - 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
FIREWALL kl. 5.45 - 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
V FOR VENDETTA kl. 6 og 8.30 B.I. 16 ÁRA
„...einn útsmognasti, frumlegasti
og vitrænasti spennutryllir ársins“
eeee- SV, MBL
„Pottþétt skemmtun“
eeee-LIB, Topp5.is
„...gleðitíðindi fyrir unnendur
góðra trylla.“ - FGG, Fréttablaðið
POWER SÝNING
KL. 10
Hin frábæra breska hljóm-sveit Supergrass hefurstaðfest komu sína á tón-
listarhátíðina Reykjavík Trópík
sem fram fer í byrjun júní. Miða-
sala hefst á þriðjudaginn og ein-
ungis 2.000 miðar eru í boði. Eins
og komið hefur fram mun tónlist-
arhátíðin fara fram í stærðarinnar
tjaldi sem komið verður fyrir í
Skeifunni fyrir framan Aðalbygg-
ingu Háskóla Íslands.
Nú hefur einnig verið staðfest að
Kimono og Bang Gang bætist við
þann hóp hljómsveita og tónlistar-
manna sem troða munu upp dag-
ana 2. til 4. júní en fyrir höfðu
þessar sveitir verið staðfestar:
Girls in Hawaii (Bretland), ESG
(Bandaríkin), Orgelkvartettinn
Apparat, Benni Hemm Hemm,
Cynic Guru, Daníel Ágúst, Dr.
Spock, Forgotten Lores, Ghost-
igital, Hairdoctor, Jeff Who? Leav-
es, Nortón, President Bongo (Gus
Gus DJ-sett), Skátar, Still-
uppsteypa og Úlpa.
Að sögn skipuleggjenda verða
kvöldin þrjú flokkuð eftir tónlistar-
áherslum. Á fyrsta deginum verður
boðið upp á blöndu rafrænnar tón-
listar og rokktónlistar, á öðrum
degi upp á rokktónlist og þá kemur
Supergrass fram, og síðasta daginn
verður boðið upp á rafræna tónlist.
Lagt er upp með að hvert tónlist-
aratriði fái góðan tíma og að öllum
tónlistarmönnum verði gert jafn
hátt undir höfði.
Þá eru einnig líkur á að breska
elektrósveitin Ladytron bætist við
áðurnefndan hóp tónlistarmanna en
það ætti að koma í ljós á næstu
dögum.
Tónlistarhátíðin Reykjavík Tróp-
ík er haldin í samráði við Stúd-
entaráð Háskóla Íslands og Rás 2.
Tónlist | Miðasala á Reykjavík Trópík hefst eftir helgi
Supergrass
sagði já, takk
Supergrass hefur lengi verið í hópi bestu hljómsveita Bretlands.
Miðasala fer fram á midi.is og
verðið verður tilkynnt eftir helgi.
Grandmothers Records býður tilföstudagsteitis á Grand Rokk í
kvöld þar sem fram koma hljóm-
sveitirnar Skátar, Mongoose og
Bobby Breiðholt en auk þess mun
Retron bjóða upp á gagnvirkt mynd-
bandsverk. Hljómsveitin Skátar hef-
ur hingað til verið þekkt fyrir hress-
andi sviðsframkomu en sveitin kvað
um þessar mundir vera að safna fyr-
ir framleiðslu á nýrri breiðskífu.
Einungis 500 króna aðgangseyrir er
á tónleikana í kvöld og hefjast her-
legheitin kl. 22.30. Nánari upplýs-
ingar og tóndæmi má finna á:
www.myspace.com/skatar,
www.myspace.com/mongoose,
www.myspace.com/retron
Fólk folk@mbl.is
TOM Cruise er kominn aftur í
hlutverki sérsveitarmannsins
Ethan Hunt sem þarf að glíma við
erfiðasta andstæðing sinn hingað
til, vopnasalann Owen Davian
(Philip Seymour Hoffman) sem
virðist vera algjörlega sam-
viskulaus.
Til þess að takast á við Davian
og bjarga ástinni sinni (Michelle
Monaghan) kallar Hunt gamla
gengið sitt saman aftur, en það
samanstendur af þeim Luther
Strickell (Ving Rhames), Declan
(Jonathan Rhys Meyers), Zhen
(Maggie Q) og nýliðanum Lindsey
(Keri Russell).
Leikstjóri myndarinnar er J.J.
Abrams sem er hvað þekktastur
sem maðurinn á bak við Lost og
Alias, en báðar þáttaraðirnar hafa
verið sýndar í Sjónvarpinu.
Frumsýning | Mission Impossible 3
Ethan Hunt á fótum sínum fjör að
launa í Mission Impossible 3.
Ómöguleg aðgerð
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 68/100
Empire 60/100
Variety 70/100
Hollywood Reporter 70/100
(allt skv. Metacritic)
MIÐASALA á tónleika danskaplötufyrirtækisins Crunchy
Frog á Nasa 26. maí hefst í dag. Það
eru hljómsveitirnar Heavy Trash,
Powersolo og The Tremelo Beer
Gut sem troða upp ásamt íslenskri
gestasveit sem verður valin á næstu
dögum. Aðalnúmerið á tónleikunum
er rokkabillýbandið Heavy Trash
sem Jon Spencer úr Jon Spencer
Blues Explosion og Pussy Galore
leiðir ásamt félaga sínum Matt
Verta Ray sem var áður í Madder
Rose og Speedball Baby.
Miðasala fer fram í verslunum
Skífunnar og á miði.is og miðaverð
er 1.800 krónur auk miðagjalds.
Fólk folk@mbl.is
Jazzakademían, djassklúbbur Há-skóla Íslands, stendur fyrir svo-
kölluðu föstudagsdjammi þriðju vik-
una í röð í Stúdentakjallaranum í dag.
Tónleikarnir fara fram kl. 16-18.
Eru þeir í boði HÍ og Stúdentakjall-
arans og er aðgangur ókeypis.
Að þessu sinni kemur Kvintett Eg-
ils Benedikts Hreinssonar fram. Eg-
ill Benedikt hefur lengi verið áber-
andi í íslensku djasslífi en á
háskólasvæðinu er hann þekktari
sem prófessor í rafmagns- og tölvu-
verkfræði. Auk Egils, sem leikur á pí-
anó, eru í kvintettinum þeir Stefán
Stefánsson á saxófón, Ari Bragi
Kárason á trompet, Högni Egilsson á
kontrabassa og Birgir Baldursson á
trommur. Líkt Agli hafa þeir Stefán
og Birgir verið framarlega í íslensk-
um djassi um langt skeið. Ari og
Högni eru ungir og efnilegir tónlist-
armenn og má segja að Högni feti í
fótspor föður síns, þó með annað
hljóðfæri, en hann er sonur Egils.