Alþýðublaðið - 24.12.1943, Side 25
Jólablað Alþýðublaðsins W ® W & W W ® <9 W ® ^ ^® ^ ^ ® ^ ^ ^ S ^ 25
%
auðnuleysi Halls Magnússonar norðlenzka og vanheilsu
Þórðar á Strjúgi tilbúið hafi, það birtist, þá Kristur kem-
ur að opinbera það í myrkrunum er hulið.“ Það mun
rétt vera, að Þórður og Hallur hafi kveðizt á, enda getur
Jón Ólafsson frá Grunnavík þess, að þeir hafi sent hvor
öðrum ljóðabréf.
EFTIR FÁ SKÁLD frá þessum tíma lifa jafnmargar
lausavísur á vörum alþýðu og eftir Þórð. Að vísu er ekki
öruggt, að allt, sem honum er talið, sé eftir hann. Eitt
sinn mislíkaði Þórði við smalamann sinn og kvað:
Fáðu skömm fyrir fíflslegt hjal
fúll og leiður glanni.
Héðan af aldrei happ þér skal
hljótast af neinum manni.
En strákur var skjótur til svars:
Rækallinn, bið eg, reisi upp tögl,
rétt sem eg nú greini.
Hafi hann af þér hár og nögl,
hold og skinn með beini.
Mœðgnasenna heitir vísnaflokkur, sem talin er Þórði,
og er raunar engin ástæða til að bera brigður á það.
Fyrsta vísan er svo:
í myrkri sátu mæðgur þrjár,
' margt var gaman að heyra.
í ljóranum var lítill skjár;
lagði eg þar við eyra.
Tildrögin voru þau, að Þórður fór til tíða á jóla-
nótt og fór um á bænum Móbergi, riæsta bæ við Strjúg.
Heyrði hann þar inni hávaða mikinn og lagðist á skjá-
inn. Bjuggu þar þá mæðgur þrjár. Heyrði Þórður þar
óþvegna orðasennu milli móður og annarrar dótturinn-
ar, og báru þær hvor aðra brigzlyrðum fyrir lauslæti.
L*oks urðu þær hans varar, og lætur hann þá eina mæðgn-
anna segja:
Við skulum ekki hafa hátt;
hér er margt að ugga:
'í allt kvöld hefi eg andardrátt
. úti heyrt á glugga.
Brá kerling þá við og rak krumluna gegnum skjáinn,
greip í skegg Þórði og hélt honum föstum á skegginu,
en stelpurnar þutu út til að jafna um hann. En Þórði
varð ekki ráðafátt, tók upp hníf sinn og skar af sér skeggið
við hökuna fyrir framan hendur kerlingar og losnaði
þannig. Um það farast honum þannig orð:
Þusti eg ofan af þessum vegg,
þá var eg fótabráður.
]
GLEÐILEGRAJÓLA
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
EYJABÚÐ,
Bergstaðastræti 33.
GLEÐILEGJðL!
FARSÆLT NÝJÁR!
Þvottahúsið DRÍFA.
GLEÐILEGRAJÓLA
Óskum öllum viðskiptamönnum okkar
Kexverksmiðjan ESJA h.f.
GLEÐILEG JðL!
\ *
Vélsmiðjan Héðinn h.f.
GLEDILEGJÖL!
Heildverzlunin Edda h.f.
w#####sr########################w####################
HAFLIÐI BALDVINSSON
óskar sínum gömlu og góðu
viðskiptavinum
GLEÐILEGRAJÓLA
GLEÐILEGJÓL!
HÓTEL VÍK.