Alþýðublaðið - 24.12.1943, Síða 52
‘S’ ^ W % ^ Jólablað Alþyðublaðsíns
grenninu hefi ég hvergi komið sem er eins fallegt
og á Lágafelli á sólbjörtum sumardegi. Tel ég vafa-
mál, að fal'legra sé í Jerúsalem.
Gat það verið, að ennþá ætti eftir að bætast
við draumráðninguna? Ég var staddur í Ilafnar-
firði sunnudaginn 10. október. Klukkan 5 átti að
messa í þjóðkirkjunni.
Ég fór í kirkju, því að mér þykir alltaf skemmti-
legt að heyra séra Garðar tóna. Kírkjan var nærri
því fullskipuð af fólki, enda stóð nokkuð sérstakt til.
Þessa messu átti að helga hafnfirzkum sjómanni,
Þorvaldi Magnússyni stýrimanni, sem hafði nýlega
fallið út af togara og drukknað. Það var mjög há-
tíðlegur blær yfir þessari minningarathöfn. Tveir fé-
lagsfánar tilheyrandi sjómannastéttinni í Hafnarfirði
voru bornir í kirkju og stóðu fánaberarnir með þá
sinn hvorum megin í kórdyrum meðan á kirkjuat-
höfninni stóð.
Þarna sátu næst mér á bekk, systir mín, sú, sem
mig dreymdi, og maður hennar, en þau búa í Hafn-
arfirði. Hafði ég ekki til þessa fundið neina lausn á
því, hvað þau áttu að tákna í draumnum. Og þarna
blasti við okkur upprisumyndin yfir altarinu, þótt
hún vwri ekki alveg jafn dýrleg og sú, sem ég sá í
draumnum um páskana.
Þetta samræmist víst ekki skoðunum þeirra, sem
halda að draumar manna séu atriði, sem þá stund-
ina séu að gerast einhvers staðar langt í burtu, jafn-
vel á öðrum hnöttum. Þessi draumur var samkvæmt
eldri skoðunum, fyrir daglátum og óorðnum hlutum.
C <t»0<><>000000<í>V 0-X>0<í>e <HXX>0<>00000000000COOOO 0<í>000000< OOO •>C<-0000<>OCO<'0000
%
til jólagjafa
Góð bók er skemmtileg vinargjöf og varanleg eign. Eft-
ir taldar bækur uppfylla þessi skilyrði:
1. Ferðabók Eggerts Ólafssonar. Þessi bók hefir nú hátt
á aðra öld verið eitt allva merkasta heimildarritið um ísland.
Hún er bæði skemmtileg og fróðleg.
2. Gamlar glæður. Þjóðlífslýsingar og endurminningar
Guðbjargar Jónsdóttur húsfreyju á Broddanesi. Helgi
Hjörvar hefir búið undir prentun.
3. Friðþjófssaga Nansens, eftir Jón Sörensen, í þýðingu
frú Kristínar Ólafsdóttir læknis. Mikið og fróðlegt rit, prýtt
miklum fjöld mynda frá ferðum hans og úr einkalífi.
4. Barðstrendingabók. Frásagnir og lýsing á einni af feg-
urstu og sérkennilegustu sýslu landsins, prýdd miklum
fjölda mynda af stöðum, sem lítið eða ekki hafa verið mynd-
aðir áður ..............; .
5. Huganir. Síðasta bók próf. Guðm. Finnbogasonar. Bók-
in hefir fengið einróma lof allra þeirra sem hafa á hana
minnzt. .................
6. Ljóðabækur Kolbeins í Kollafivði: Kræklur, Olnboga-
börn og Hnoðriagíar. Lesið þessar bækur. Þær mæla með sér
sjálfar. ..............
7. Ljóðasafn Guðmundar Guðmuridssonar. Ljóðasafnið hef-
hefir lengi verið ófáanlegt, en er nú til í góðu bandi.
8. Enndurminningar urn Eiuar Ziene > .;sson, cf'.ir frú
Valgerði Benediktsson.
9. Myndir Jóns Þorleifssonar listmálar:'. Fallegar myndir
af 32 listaverkum hans.
10. íslenzk úrvalsljóð. Allir, sem ljóóum unna og hafa
gaman af fallegum bókum, vilja eiga þá útgáfu.
11. Ljóð Guðfinnu frá Hömrum. Kertalj.d Jakobínu
Johnson, Ljóð Höllu frá Laugabóli, Skóladagar, saga °ftir
Stefán Jónsson, Sumardagar og Um loftin blá, eftir Sigurö
Thorlacius, Ströndin, ljóðabók Kolka læknis. Undir sól að
sjá, eftir Jakob Jóh. Smára.
i
ÞESSAB BÆKUR FÁST HJÁ BÓKSÖLUM
Bókaverzlun Isafoldarprentsmiðju h.f.
C<>CC<><-'<Xf'<><,<><><x>C><><><>< C<><><><><XX><>t<>C<><KC<><X>C'<><><><><><A><í>s. <><><><><><><><><><><><>CACC'<>CC<:-C><>C<><'C<>i><><><><><><><>vC><;<><>