Morgunblaðið - 21.03.1974, Page 12

Morgunblaðið - 21.03.1974, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974 LISTAHÁTÍÐ 1974 Skáld lesa í 5 tíma Ijóö sín á Kjarvalsstöðum Böð var G uðmundsson Baldur Óskarsson Dagur Sigurðarson A LISTAHATlÐ í sumar verður nýstárlegt form á Ijóðaflutningi. Ljóðskáld lesa úr verkum sfnum á Kjarvalsstöðum, þar sem verður uppi sýning á fslenzkri list frá upphafi. Lesa skáldin þar upp í fimm tfma samfleytt og geta áheyrendur komið og farið að vild, en tilkynnt verður fyrirfram hvenær hvert skáld byrjar. Þarna munu nær 20 Ijóðskáld lesa upp í 15 mfnútur hvert, frá kl. 2 e.h. sunnudaginn 9. júnf til kl. 7. Skáldunum eru sett þau skil yrði, að þau flytji verk sfn sjálf og ve'i; 'iöðin. Gtlur þetta orðið ókaf •_<« .'j íiirey‘tur Ijóðaflutn- ingur, þvf sumir munu ætla að nota segulhand og aðrir undir- leik, sumir syngja ljóðin og leika á gítar og aðrir sýna skuggamynd- irmeð verkunum. Sigurður A. Magnússon er einn af þremur f nefnd til undirbún- ings Ijóðaflutningnum. Hann sagði Mbl., að hann hefði hlustað á svona ljóðalestur í gamla þing- húsinu í Stokkhólmi. Þar lásu skáld úr verkum sínum í 8 tíma við gffurlegar vinsældir, voru all- an tímann á þriðja þúsund áheyr- endur. Þaðan er hugmyndin kom- in, sagði Sigurður. Hann skýrði stjórn Rithöfundasambands Is- lands frá hugmyndinni, sem var vel tekið og kosin þriggja manna undirbúningsnefnd. Auk Sigurð- ar skipa hana Asi í Bæ og Jónas Guðmundsson. Ljóðaflutningurinn á Kjarvals- stöðum mun gefa hugmynd um ljóðgerð skálda innan við sex tugt. Menn velja Ijóðin sjálfir og Kristinn Reyr flytja bæði gömul og ný ljóð eftir sig. Nær 20 skáld, sem öll hafa kom- ið fram eftir seinni heimsstyrjöld- ina, verða væntanlega með. Þau eru: Baldur Öskarsson, Böðvar Guðmundsson, Dagur Sigurðar- son, Einar Bragi, Gunnar Dal, Jó- hann Hjálmarsson, Jón Öskar, Jón úr Vör, Kristinn Einarsson, Kristinn Reyr, Matthías Johann- essen, Ölafur Haukur Símonar- son, Nína Björk Arnadóttir, Njörður P. Njarðvík, Sigurður A. Magnússon, Stefán Hörður Gríms- son, Steinunn Sigurðardóttir, Vil- borg Dagbjartsdóttirog Þorsteinn frá Hamri. Einar Bragi J ón úr V ör Njörður P. Njarðvfk Sigurður A. Magnússon sagði, að tvö ljóðskáldin, Nina Björk og Kristinn Einarsson, væru að vfsu erlendis (Kristinn er jarðeðlis- fræðingur og er þar við nám) en vonazt er til, að þau komi heim f tæka tið. Og í þrjá hefur ekki náðst endanlega. Aftur á móti færðust 5 undan að koma fram, Hannes Pétursson, Jakobína Sig- urðardóttir, Sigfús Daðason, Þor- steinn Valdimarsson og Þuríður Guðmundsdóttir, en sum þeirra kváðust aidrei lesa sjálf upp úr (funnar Dal Nfna Björk árnadóttir Ölafur Haukur Sfmonarson Stefán Hörður Grímsson Sigurður A. Magnússon Þorsteinn frá Hamri verkum sínum. Hannes Sigfússon er búsettur erlendis og getur því ekki tekið þátt í þessu. Ljóðskáldin eiga því ekki svo litinn hlut i listahátíð og verður fróðlegt að sjá hvort þessi aðferð til að flytja ljóð nær til ljóðaunn- enda. Væntanlega munu þeir þó a.m.k. sækjaþennan ljóðaupplest- ur, þegar hann er hafður uppi í fyrsta sinn og ganga úr skugga um hvort hann fellur þeim í geð. — E.Pá. Steinunn Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.