Morgunblaðið - 21.03.1974, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974
Vestmannaeyjar
Vandað einbýlishús til sölu. Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „Gott hús — góð eign 61 9" fyrir 30. þ.m.
Miklar vonir bundnar
við Lagarfossvirkjun
En ekki réttlætanlegt að fórna verulegu nytjalandi
LogsuÖutæki
Óskum eftir logsuðutækjum. Upplýsingar í síma 3 7040.
Ví&idal
Munið aðalfundinn í kvöld kl. 20.30 í Félagsheimili Fáks.
Stjórnin.
STJÓRN Sambands sveitarfélaga
f Austurlandskjördæmi (SSA)
stóð fyrir fundi um fyrirhugaða
vatnsmiðlun í Lagarfljóti vegna
Lagarfossvirkjunar, fimmtudag-
inn 28. febrúar sl. á Egilsstöðum.
Var fundurinn haldinn að tilhlut-
an samstarfsnefndar þeirrar um
orkumál, sem Náttúruverndarráð
og iðnaðarráðuneytið standa sam-
eiginlega að. Framsögumenn voru
Hjörleifur Guttormsson líffræð-
ingur, Bjarni Bragi Jónsson hag-
fræðingur, stjórnarformaður
Rafmagnsveitna ríkisins, og Sig-
urður Þorðarson verkfræðingur á
Verkfræðiskrifstofu Sigurðar
Tþoroddsen. Jóhannes Stefáns-
son formaður SSA stýrði fundi,
en fundarritari var Björn Sveins-
sorvEgilsstöðum. Fundinn sóttu á
annað hundrað manns og fór
hann í alla staði hið bezta fram.
Tóku 14 heimamenn þátt í um-
ræðunum auk framsögumanna og
orkumálastjóra, Jakobs Björns-
sonar.
Tilgangur fundarins var að
leggja fram iiltæk gögn, sem
varpað gætu ijósi á væntanleg
áhrif vatnsmiðlunar á umhverfi
Lagarfljóts, en jafnframt að fá
fram þau sjónarmið, sem landeig-
endum og öðrum eru nú efst í
huga í tengslum við áætlanir um
slíkt mannvirki.
Eins og kunnugt er, hefur ráð-
herra þegar leyft fyrsta áfanga
virkjunar við Lagarfoss, sem hef-
ur aðeins í för með sér um hálfs
metra vatnsborðshækkun á
takmörkuðu svæði ofan við
virkjunina, og eru byggingar-
framkvæmdir nú á lokastigi. Hins
vegar hefur ráðherra enn ekki
heimilað annan áfanga.
Vegna verðhækkana á olíu og
með ört vaxandi orkunotkun á
Austurlandi, m.a. í tengslum við
rafmagnshitum húsa, hafa
Rafmagnsveitur ríkisins hug á að
hraða sem mest öðrum áfanga
virkjunarinnar. Hér er um að
ræða miðlun, sem hefði í för með
sér nokkra vatnsborðshækkun I
Leginum að vetrarlagi
(október—maí). Á fundinum
kynntu Rafmagnsveitur ríkisins
gögn, sem gera ráð fyrir
21,2—21,3 m vatnshæð yfir þau
svæði, sem likur benda til að fari
undir vatn við þessa vatnsborðs-
stöðu eða blotni upp vegna grunn-
vatnshækkunar. Til samanburðar
má geta þess, að mesta flóð, sem
mælzt hefur við Lagarfljótsbrú í
nóvember 1968, náði 22,43 m hæð
yfir sjávarmáli.
Annað vandamál er að finna
leið til að mæta skyndilegum
vatnavöxtum að vetrarlagi, svo
slík flóð valdi ekki skemmdum á
Óska að taka íbúð á leigu
til 2ja ára. 3 til 4 herb. Ársfyrirframgreiðsla.
Uppl. í síma 94-7348 eða 20108, Reykjavík.
HEIMDALLUR
SAMTÖK UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK
SKEMMTIKVOLD
verður haldið í Miðbæ, Háaleitisbraut, (norðurenda)
föstudaginn 22. marz kl. 20.30.
Yes
Ávarp
Emerson Lake and Palmer
Dans
Fjöldasöngur
Dans
Ókeypis aðgangur Aldurstakmark
HEIMDALLUR skemmtinefnd fædd1953
TILSÖLUÍ
KAUPMANIIAHðFN
BLAÐIÐ FÆST NÚ í LAUSA
SOLU I BLAÐASÖLUNNI í
FLUGAFGREIÐSLU SAS í
SAS-BYGGINGUNNI í MIÐ
BORGINNI
I
mannvirkjum. Voru leiddar líkur
að því, að unnt ætti að vera að
opna fyrir flóðgáttir nógu
snemma til að slfkra flóða gætti
ekki umfram náttúrulegar að-
stæður.
A fundinum kom fram nokkur
óvissa um það, hversu stórt land
hér væri um að ræða, og hver
áhrifin yrðu. Landeigendur hafa
flestir látið fyrsta áfanga virkjun-
arinnar ómótmælt, en aftur á
móti mótmælt og/eða gert fyrir-
vara um skaðabætur vegna ann-
ars áfanga. Þau sjónarmið komu
fram hjá flestum heimamönnum,
að ekki væri réttlætanlegt að
fórna verulegu nytjalandi á Hér-
aði vegna vatnsmiðlunarinnar.
Það kom einnig fram, að Austfirð-
ingar hefðu bundið miklar vonir
við Lagarfossvirkjun með tilliti
til orkuþarfar á svæðinu. Væri
æskilegt að leita að rekstrarhæf-
um grundvelli fyrir virkjunina og
sætta sjónarmiðin.
Á fundinum komu fram ábend-
ingar um það, að á næstunni
þyrfti að gera mælingar og kort-
leggja þau svæði í nágrenni Lag-
arins, sem hugsanlega færu undir
vatn eða blotnuðu upp. Ennfrem-
ur að gera rannsóknir á gróðri,
jarðvegi og vatnsborðssveiflum
við núverandi aðstæður og fram-
kvæma úttekt á núverandi og
mögulegum nytjum vatns og gróð-
urs. Þá kom það fram, að endan-
leg rekstrarhæð vatnsborðs yrði
ákveðin f samráði við Náttúru-
verndarráð og heimamenn, þegar
þar að kæmi. Hins vegar gerði
fundurinn engar formlegar sam-
þykktir, þar sem með honum var
einungis stefnt að kynningu mála.
Samstarfsnefnd Náttúruvernd-
arráðs og iðnaðarráðuneytisins
um orkumál er ein af mörgum
hliðstæðum samstarfsnefndum,
sem settar hafa verið á laggirnar
að frumkvæði Náttúruverndar-
ráðs, til að ræða og gera tillögur
um framkvæmd 29. gr. náttúru-
verndarlaganna, en þar segir
m.a.: „Virkjanir, verksmiðjur og
önnur stórmannvirki skulu hönn-
uð í samráði við Náttúruverndar-
ráð. Sama gildir um vegalagningu
til slíkra mannvirkja." Mun
nefndin á næstunni ræða þetta
mál i ljósi þeirra upplýsinga, sem
fram komu á fundinum.
Þagað um
fluglB
Stokkhólmi, 18. marz. NTB.
UTANRl KISNEFND sænska
þingsins var í dag skýrt frá sam-
bandi leyniþjónustunnar IB við
Finnland. Brýnt var fyrir
nefndarmönnum að segja ekkert
um málið og á þá lögð þagnar-
skylda.
Olof Palme forsætisráðherra
sagði eftir fundinn, að vissir
menn I tengslum við leyniþjónust-
una hefðu verið um borð í einka-
flugvélum, sem hefðu flogið yfir
Finnland, en f þessum ferðum
hefði ekkert ótilhlýðilegt átt sér
stað. - ( ( (
Fangelsis-
óeirðir
Brescia.ítalfu 18. marz.AP.
UM tvö hundruð fangar í fengelsi
i Brescia á Norður-Italíu létu
ófriðlega í dag, brutu og bröml-
uðu í klefum sínum, báru eld að
dýnum og höfðu í frammi hinn
mesta hávaða. Tuttugu fangar
klufruðu upp á fangelsisþakið og
sögðust gera kröfur um bættan
aðbúnað f fangelsinu. Lögreglan
segir, að um 150 aðrir fangar, sem
þarna sitja inni, hafi hvergi kom-
ið nærri. Fjöldi lögreglumanna
sló hring um fangelsið og eftir
nokkurt þóf ákváðu fangarnir að
hætta óspektum.