Morgunblaðið - 21.03.1974, Side 21

Morgunblaðið - 21.03.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974 21 Giinter Grass: Það er ekki hægt að vinna með kommún- istum meðan skuggi Stalfns grúfir yf ir þeim. . .. stalínistar útrýmdu milljónum fólks f nafni réttlæt- isins, jafnréttisins og frelsisins og útrýmdu þar með vonum margra kynslóða um sósíalsima. .. . .. enginn hugsandi maður getur verið f vafa um fasismann. Menn þurfa ekki annað en að lesa Mein Kampf þar sem Hitler segir skýrt og greinilega að hann ætli að koma á glæpastjórn ... (Teikningar: David Levine). Statínismi fasismi „STALÍNISMI er verri en fasismi“ — þetta eru orð Giinters Grass. I mikl- um hringborðsumræðum rithöfunda og mennta- manna í París, þar sem skeggrætt var um frelsi og sósíalsima, lagði Giinter Grass á það áherzlu að meðan skuggi Stalins, og ekki aðeins hans heldur skuggi Lenins líka, grúfði yfir kommúnistum, gætu sósíalistar og sósíaldemó- kratar ekki starfað með þeim. Áheyrendur voru margir, og nokkrir fóru að ókyrrast og létu reiði sína í Ijós með ýmsu móti. En Gilnter Grass hélt áfram eins og ekkert hefði í skorizt þegar hann hafði vafið saman vindling — ,og á endanum komst hann að þeirri niðurstöðu að glæpir stalín- ismans væru verri en glæpir fas- ismans. Hvers vegna? spurði GUnter Grass þegar reiðin sljákkaði (og nokkrir útlægir menntamenn frá Austur-Evrópu hættu að klappa I hrifningu). Af því aðmerkisberar lenínisma og stalínisma hafa út- rýmt milljónum og aftur milljón- um fólks í nafni réttlætis, jafn- réttis og frelsis og hafa þar með útrýmt vonum margra kynsióða, en á fasismanum var ekki (og er ekki) hægt að villast. Menn geta bara lesið Mein Kampf, sagði GUnter Grass. Þar segir Hitler skýrt og greinilega að ef hann nái völdum muni hann koma á glæpastjórn. Enginn hugs- andi maður getur verið i vafa um fasismann, hann er glæpsamleg hugsjónafræði sem viðurkennir að hann er glæpsamlegur, en stal- ínisminn sáir fræjum efasemda í hjörtu góðra manna af því hann er glæpsamleg hugsjónafræði sem ber fyrir sig stórar, heilagar hugsjónir. UMMÆLI GUnters Grass komu af stað áköfum umræðum. Komm- únistamálgagnið l’Humanité hneykslaðist — hvernig dirfðist þýzkum rithöfundi að halda slíku fram (ekki stafur um áralöng reikningsskil GUnters Grass við nasismann), í kaffihúsum menn- ingarvita var Grass sakaður um að vera sósialfasisti, en hægri- sinnar gátu að sjálfsögðu (mis)- notað ummæli hans á sama hátt og þeir hafa (mis)notað Solzhen- itsyn. En hvað sem þessu líður hefur GUnter Grass sagt opinskátt það sem nokkrir franskir mennta- menn hafa gert ljóst í nokkurn tíma og fyrir áhrif frá máli Solzh- enitsyns: að nú hljóti að vera kominn timi til þess að fram fari gagngert uppgjör við stalínism- ann — i nafni sósíalismans. Það er ekki nóg að halda því úl streitu að líta á stalínismann sem „mis- tök“, ,jtarmleik“ — hann er brjál- æðisleg og glæpsamleg afskræm- ing á sósialismanum og afskræm- ingin hefst um leið og agnar lítið spurningarmerki er sett við það tjáningarfrelsi sem róttækum vinstrisinnum finnst oft góð lat- ina að afgreiða sem „borgara- lega“ (hvað sem það er nú, en í þess orðs beztu merkingu). GUnter Grass sagði það á sinn hátt: ég neita framvegis að skrifa undir mótmæli gegn giæpum gegn mannkyninu f fasistalönd- um á sama blaði og rithöfundar sem neita að láta til sín heyra þegar sömu glæpir eru drýgðir í sósialistalöndum. SAMA hefur Ionesco sagt i grein í le Point og Sartre, sem er of veikur um þessar mundir til þess að skrifa, hefur sem ritstjóri og ábyrgðarmaður dagblaðsins Liberation (skemmtilegasta og stundum eina raunverulega um- deilda dagblaðsins I Frakklandi) lagt blessun sina yfir grein, sem frá sjónarhóli róttækra vinstri- sinna er geysilega kröftugt upp- gjör við sérhverja úlraun til þess að kæfa frelsið í þágu ríkisvalds- ins — enda getur þetta ríkisvald býsna oft haldið því fram að það hvíli á marxistískum grunni. VIÐ HVAÐ erum við hrædd? spyr Liberation. Eiga hugmyndir okkar ekki að vera svo kröftugar að við getum mótmælt árásum gegn frelsinu — jafnvel þótt le Figaro mótmæli líka? Verðum við alltaf frekar að fara niðrandi orð- um um hægrisinnuðu blöðin en að fara jákvæðum orðum um hug- myndir okkar sjálfra um komm- únisma án einræðis? Liberation gengur svo langt að draga Kína inn I málið og líkja herferðinni gegn Solzhenitsyn við baráttuna gegn Lin Piao. Lin Piao kann að hafa gert viss mistök, en frá slíkum ásökunum og ásökun- um um glæpi alheimsins er óneit- anlega stórt stökk. Er vírus í marxistískum og lenfnistískum hugsunarhætú? spyr Liberation — og ennfremur: hvers vegna breytast svona marg- ir félagar í löggur i nafni Marx og Leníns? Þessi orð standa i dag- blaði, sem eitt allra blaða í Frakk- landi ver í alvöru rétt verka- manna gagnvart vinnuveitendum og flokksbroddunum. Það er ekk- ert skrýtið að Sartre er um þessar mundir í hópi þeirra menningar- frömuða Vestur-Evrópu sem mest eru ataðir auri i sovézkum blöð- um. Eins og rúmenskur skáld- sagnahöfundur, sem var viðstadd- ur áðurnefndar hringborðsum- ræður, sagði: Gjaldið fyrir frið- samlega sambúð austurs og vest- urs verður greitt af menningar- frömuðum ásamt verkamönnum: það verður í austantjaldslöndun- um þar sem kapítalistar geta fyrir alvöru fundið vel uppalda verka- mannastétt án verkfallsréttar. KANNSKI erum við á leið til ófreksjuríkisins. Kannski eru hugtök eins og frelsi einstaklings- ins, rétturinn til að segja það sem manni sýnist, að trúa því sem maður vill — kannski eru þetta allt dálítið gamaldags lummur frá öld upplýsingastefnunnar. Kannski verður kúgunarkerfi eins og nýstalínismi, sem senn nær til alls heimsins undir nafn- inu stalín-kapitalismi, varanlegt kerfi. Almáttugt skrifstofubákn mun tortíma öllum draumum um frelsi og hamingju. Það verður heimur Orwells, sem við munum lifa f, þar sem sá sem ræður yfir fortiðinni ræður yfir framtíðinni og þar sem sá, sem ræður yfir nútíðinni ræður yfirfortíðinni. En Voltaire lifir enn. Hann get- ur heiúð Solzhenitsyn, Satre eða Gúnter Grass. Hann virðist ekki lifa meðal danskra rithöfunda og menningarfrömuða, sem hafa brugðist við máli Solzhenitsyns annað hvort með eigingjörnu kæruleysi eða þögn hins róttæka manns, menningar sem roðnar ... Góða nótt, Grundtvig. Sofðu vel, Georg Brandes. Helgi Hálfdanarson: Orð á framabraut Vegna klausu minnar um skjáinn hér á dögunum hefur Helgi J. Halldórsson cand. mag. látið þess getið í útvarpi, að hann hafi í þáttum sínum um daglegt mál komið orði þessu á framfæri um sjónvarpsmynd- flöt samkvæmt tillögu annars manns. Einhvern veginn hafði það farið fram hjá mér. En þá get ég varla láð honum að taka upp vörn fyrir orðið. Sjálfur hafði ég fyrirlöngu gerzt sekur um þessa notkun þess, en auð- vitað í háðungar skyni. Annars langar mig til að flytja Helga J. Halldórssyni beztu þakkir fyrir þætti hans um daglegt mál; mér hafa þótt þeir afbragðs góðir, allir sem ég hef heyrt. Færi betur, að þeir gætu orðið tiðari framvegis en til þessa; og vel mætti Helgi láta til sín heyra daglega. En hvað um það, ég held að óhaggað standi það sem ég áður sagði, að margræð orð, eins og t.d. skeið, sem Helgi nefndi, séu allt annað en heppilegur leiðar- visir um sjálfráða málþróun, enda þarflaust að láta nýjar merkingar troða sér upp á orð, sem fyrir eru lifandi í málinu. Baginn af slíku úrræðaleysi hlýtur að liggja í augum uppi. Eg gat þess, að örðugt gæti orðið héðan af að snúa aftur með skjáinn. Það virðist ætla að reynast svo. Kannski fylgir sá böggull skammrifi, að þeir sem spóka sig f sjónvarpi verði framvegis kallaðir skjátur. En ef skjár á ekki tað teljast nfðr andi orð um sjónvarp, þá ætti skjáta vfst ekki að vera það heldur. Og kannski á hugkvæmni af þessu tagi eftir að leysa margan vanda. Nokkuð fram eftir þess- ari öld tíðkaðist orðið kamar i hverri sveit. En siðan þær stofnanir, sem svo nefndust, voru af lagðar, og aðrar full- komnari komu í þeirra stað, hefur þetta lipra orð horfið úr mæltu máli, og það svo gersam- lega, að lausaskýli, sem komið er upp til sömu nota á víða- vangi, skulu nú á tímum nefn- ast hreinlætisaðstaða. Og þá ber vel i veiði. Sam- kvæmt tilkomu sinni og skyld- leika við önnur orð, erlend og fín, biður orðið karnar verðugr- ar upphefðar. Margur hefur lát- ið sérleiðast klasturyrði eins og einkaskrifstofa, þrir stofnar njörvaðir saman, þar sem einn væri vitaskuld æskilegur. Hvernig væri að taka þarna upp orðið kamar? Fyrri merk- ing ætti varla að setja á það neinn niðrunarblæ fremur en á skjáinn góða. Þá kæmi maður og spyrði efúr forstjóranum, og ritarinn svaraði: „Forstjórinn er á kamrinum; gerið svo vel að hitta hann þar.“ Ég kastaði fram orðinu skimi til hugsanlegra nota í stað sjón- varpsskerms. Helgi finnur þvi það til foráttu, að það ætti fremur að merkja sjónvarps- áhorfandi. Nú fer því fjarri, að ég telji þetta orð girnilegra en allan þann sæg orða, sem til greina kæmi. En ekki fæ ég skilið, hvers vegna það ætti endilega að skipta um merk- ingu. Orðiðer gamaltí málinu og það merkir, eins og ég gat um, ljómi eða mild birta. Hér er ekki um það að ræða að breyta merkingu gamals orðs, heldur að setja hugtakið skimi i stað hugtaksins skermur; enda ætti það hér mun betur við. Svo ég vanmeti ekki bend- ingu Helga, vil ég minna á, að einnig er úl orðið skfmi i sömu eða líkri merkingu og skimi, og væri það e.t.v heppilegra. En sem fyrr segir, nothæf orð eru á hverju strái. Og þar sem nóg er til af diskum, er þarflaust að borða súpuna úr öskubakka. Ilelgi Ilálfdanarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.