Morgunblaðið - 21.03.1974, Side 22

Morgunblaðið - 21.03.1974, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1974 Danssýning í Háskólabíói DANSKENNARASAMBAND íslands minnist 10 ára afmælis síns um þessar mundir og efnir í því tilefni til danssýningar í Háskólabfó á laugardaginn kemur kl. 2 síðdegis. Sérstaklega hefur verið til þessarar sýningar vandað, segir f fréttatilkynningu frá samtök- iinum Þar munu dansa ne'i'pdm og kennarar frá fjor- um skúium borgarinnar, ball- ett, djassdans, stepp, barna og samkvæmisdansa. Einnig mun íslenzki dansflokkurinn dansa frumsaminn ballett, er sérstak- lega var saminn fyrir þessa sýn- ingu af Alan Carter við tónlist eftir Brahms. Myndin var tekin á æfingu nú fyrir skömmu. — Kratar Eramhald af bls. 40 ild til niðurskurðar á fjárlögum og minni hækkun söluskatts. Þessar tillögur hefðu allar verið felldar og því væri ekki um annað að ræða en að greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Fluttu sjálf- stæðismenn 3 breytingartillögur við frumvarpið við umræðuna í neðri deild í gær, en þær voru allar felldar. í fyrsta lagi fluttu þeir tillögu um meiri lækkun tekjuskattsins. Var hún felld með 20 atkvæðum gegn 20, en Alþýðu- flokksmenn og Bjarni Guðnason greiddu breytingartillögu þessari atkvæði. I öðru lagi fluttu þeir breytingartillögu um að söluskatt- ur skyldi aðeins hækka um 3%. Sú tillaga var felld með 20 at- kvæðum gegn 16, en Alþýðu- flokksmenn sátu hjá. Loks var svo breytingartillaga frá sjálf- stæðismönnum um að launaskatt- ur yrði áfram 2'A% og rynnu 2% í Byggingarsjóð en 'A% í ríkissjóð. Aður runnu VA% i rikissjdð og 1% í Byggingarsjóð. í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyr- ir 1% í viðbót í Byggingarsjdð, en óskertu framlagi í ríkissjóð, svo að launaskattur hækkar um 1%. Þessi tillaga sjálfstæðismanna var felld með 21 atkvæði gegn 16. Bjarni Guðnason og tveir Alþýðu- flokksþingmenn sátu hjá, en Björn Pálsson studdi tillöguna. Nánari grein er gerð fyrir afstöðu Sjálfstæðisflokksins á þingsíðu blaðsins í dag, bls, 18. í upphafi fundar í neðri deild í gær gerði Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra grein fyrir breytingartillögu sinni um, að söluskattur hækkaði um 4% í stað 5%. Sagði hann að nauðsynlegt væri fyrir rikisstjórnina að gera þessa breytingu til að koma mál- inu fram, þar sem við meðferð málsins hefði komið fram, að ríkisstjórnin hefði ekki nægileg- an þingstyrk til að koma frum- varpinu fram óbreyttu. Ekki þýddi að deila um keisarans skegg, þar sem allir væru sam- máia um, að skattkerfisbreytingin væri æskileg. Ef frumvarpið næði ekki samþykki, myndi það reyn- ast þrándur í götu siðar, þegar ríkisstjórn þyrfti að semja við verkalýðshreyfinguna, þar sem hún myndi glata trausti á stjórn- völdum. Gylfi Þ. Gíslason sagði, að Al- þýðufiokkurinn myndi styðja frumvarpið með 4% söluskatts- hækkuninni, ef skýlaus yfirlýsing fengist um það frá ríkisstjórn- inni, að hætt yrði við að lækka niðurgreiðslur á landbúnaðaraf- urðum á árinu um 400 milljónir og annað hvort kæmi ákvæði í frumvarpið um, að útgjöld fjár- laga yrðu skorin niður eða yfirlýs- ing um að slikur niðurskurður yrði framkvæmdur. Ólafur Jóhannesson sagði, að ríkisstjórnin hefði samþykkt á fundi sínum, að niðurgreiðslurn- ar yrðu ekki lækkaðar frá því sem nú væri. Þá hefði ríkisstjórnin í undirbuningi tillögur, sem stuðla ættu að jafnvægi í efnahagsmál- um. Einn liður þeirra tillagna væri lækkun á útgjöldum rikis- sjóðs, hvort heldur væru útgjöld, sem eingöngu væru inni á fjárlög- um eða einnig bundin í Iögum. — Nixon Framhald af bls. 1 ins í dag sagði að samkomulag hefði náðst milli Bandaríkjanna og V-Þýzkalands um greiðslu á kostnaði við dvöl bandariska her- liðsins í V-Þýzkalandi. Ekki var skýrt frá efni samkomulagsins, en gert er ráð fyrir að það verði undirritað eftir viku eða svo. Heimildir herma að V-Þjóðverjar hafi fallist á að greiða 75% kostn- aðarins, en hann mun nema um 1 milljarð dollara á ári. Á fyrrnefndum blaðamanna- fundi var annars mest fjallað um Watergatemálið og endurtók Nix- on þar, að hann myndi ekki segja af sér embætti, en myndi eins og hann hefði lofað að- vinna með dómsmálanefnd þingsins í undir- búningi hennar að hugsanlegri málssókn og á hendur sér. --------------- Leita vit- stola manns á stolnum báti SLYSAVARNAFÉLAG Islands fékk kl. 14 í gær tilkynningu frá Björgunarmiðstöðinni í Þórshöfn i Færeyjum, að þar hefði 29 tonna bát — Röde kross að nafni — verið stolið í höfn af vitstola manni og siglt á haf út.Færeying- ar höfðu sjálfir hafið leit en án árangurs. Þeir höfðu gert ráðstaf- anir til að láta leita frá Noregi í átt að Færeyjum og eins frá Skot- landi norður eftir. Fóru þeir nú fram á, að íslendingar leituðu bátsins frá íslandi og vestur á bóginn í átt að Færeyjum. Að sögn Hannesar Hafstein, fram- kvæmdastjóra SVFÍ, hefur verið ákveðið að hef ja leit héðan í dag. • • Oldruð kona 1 bílslysi KONA hátt á áttræðisaldri varð fyrir bifreið á Hringbraut við Furumel um kl. 18:15 i gær. Var hún á leið suður yfirHringbraut á gangbraut, er hún varð fyrir fólksbifreið, sem var á leið vestur. Var konan flutt á slysadeild og í fyrstu skoðun var talið, að hún væri lærbrotin. — Bifreiðinni virðist hafa verið ekið allgreitt, þvi að hemlunarförin voru tæpir 23 metrar á þurru malbikinu. Bandarískur sendiherra Stokkhólmi, 20. marz NTB SÆNSKA sjónvarpið skýrði frá því i kvöld að leiðin væri nú opin fyrir Bandaríkin og Svíþjöð að skiptast á sendiherrum á ný. Sagði sjónvarpið að Wilhelm Wachtmeister, yfirmaður stjórn- máladeildar sænska utanríkis- ráðuneytisins, yrði sendiherra Svíþjóðar í Washington. Þá sagði sjónvarpið að Nixon hefði valið mann, sem nú er sendiherra i öðru Evrópulandi, til að vera sendiherra Bandaríkjanna f Svíþjóð. Tvö ár eru nú liðin frá því að Bandaríkjamenn kölluðu sendiherra sinn í Svíþjóð heim, eftir að Olof Palme forsætisráð- herra haf ði tekið þátt í mótmæla- göngu gegn Vietnamstríðinu í Stokkhólmi. Nýlagðar háspennulínur í FRÁSOGN Morgunblaðsins 19. marz. um nýútkomna skýrslu Raf- magnseftirlits ríkisins (Rafveitur áíslandi) brenglast frásögnin um nýlegar háspennulínur. Fer hér á eftir leiðrétt frásögn um þetta atr- iði: Veigamestu breytingar á aðal- flutningslínum (háspennulínum) hafa orðið þær, að ný 220 kV lína var lögð frá Búrfellsvirkjun til Reykjavíkur (spennistöð við Geit- háls), 60 kV lína var lögð frá Búr fellsvirkjun að Hvolsvelli, og 30 kV lfna var lögð frá Laxárvatns- virkjun i Húnavatnssýslu að nýjum greinivirkjum í Vatnsdal, og 19 kV línur lagðar þaðan um Austur- og Vestur-Húnavatnssýsl- ur. En meiri og minni breytingar hafa orðið á háspennudreifikerf- um ýmsra rafveitna. Nýstárlegur fyrirlestur um heilbrigðisþjónustuna NÝSTARLEGUR fyrirlestur verður fluttur í Norræna húsinu annað kvöld um tölvustýrða upp- lýsingamiðlun til heilbrigðis- þjónustunnar. Fyrirlesarinn er dr. Gunvor Svartz-Malmberg frá Karólínsku stofnuninni f Stokk- hólmi og f sambandi við fyrir- lesturinn verður komið á beinu sambandi við tölvu í Stokkhólmi, og geta fundarmenn lagt fyrir hana spurningar er varða heil- brigðisþjónustuna og fengið svör við. Um þennan fyrirlestur segir svo í fréttatilkynningu frá Nor- ræna húsinu: Breytingar og framfarir á sviði heilbrigðisvísinda eru mjög mikl- ar og örar. Stöðugt er verið að finna upp ný lyf, nýjar aðferðir og ný tæki til þess að auðvelda meðferð sjúkdóma, draga úr þján- ingum og flýta fyrir bata. Þessi aukna þekking gerir aftur á móti miklar kröfur til bættrar menntunar og simenntunar lækna og allra annarra starfs- manna heilbrigðisstétta. Um 19.000 tímarit koma nú út á sviði læknisfræði og skyldra greina, og getur hver og einn sagt sér sjálfur, hve erfitt er að fylgj- ast með og vinza úr þessu þekk- ingarflóði það, sem máli skiptir hverju sinni. Til þess að auðvelda mönnum þessa úrvinnslu hafa verið tekin í notkun í vaxandi mæli ýmiss kon- ar hjálpargögn, miklar bóka- og greinaskrár, sem raðað er eftir efni og getur leitandinn þannig auðveldlegar fylgzt með, hvað rit- að er um hans áhuga- og fræði- svið. Á siðustu árum hefur efni ým- issa þessara skráa verið sett í tölv- ur, sem geyma upplýsingarnar og skila þeim á mjög fljótvirkan hátt, þegar leitað er ákveðins efn- is. Þessi tölvustýrða upplýsinga- miðlun er í stöðugri framþróun, og nú þarf notandinn ekki lengur að bfða eftir svari í nokkra daga, heldur getur hann sjálfur fengið beint samband viðtölvuna og lagt inn sína upplýsingabeiðni og fengiðsvar samstundis. Næstkomandi föstudag og laug- ardag mun læknum, starfsfólki heilbrigðisþjónustu, bókavörðum, og öllum öðrum, sem áhuga hafa á þessum málum, gefast kostur á að hlusta á lýsingu á upplýsinga-1 — Gagnrýni Framhald af bls. 1 han fer til Bonn á morgun og ræðir við Walter Scheel utanríkis- ráðherra, en V-Þjóðverjar eru áhyggjufullir vegna ákvörðunar brezku stjórnarinnar um að endurskoða samninginn við EBE og eru hræddir um að það kunni að verða áfall fyrir evrópska ein- ingu. Mun Scheel reyna að fá það á hreint hvað Bretar vifja, en yfir- lýsingar þeirra um málið hingað til hafa veriðmjögóljósar. — Fjölmenni Framhald af bls. 2 kirkjunni önnuðust Lárus Sveinsson og Jón Sigurðsson. Kistu hins látna báru úr kirkju kennarar og nemendur guðfræði- deildar Háskóla íslands, en f kirkjugarðinum báru fyrst félagar úr Skálholtskórnum og síðasta spölinn aðstandendur og vinir hins látna. Söngsveitin Fíl- harmonía söng við gröfina „Allt eins og blómstrið eina“ i útsetn- ingu dr. Róberts undir stjórn Martins Hungers. Utvarpað var frá útförinni. — Golan Framhald af bls. 1 að hægt verði að tryggja öryggi landsins. ísraelar gera sér grein fyrir og óttast mjög hve mikinn stuðning þeir hafa misst víða um heim vegna áhrifa olíubanns Araba og eru hræddir við aukinn þrýsting um tilslakanir, sem þeir allsekki vilja gera álandamærum Sýrlands og Jórdaníu. þjónustu með aðstoð tölvu. Dr. Gunvor Svartz-Malmberg frá Karolinska Institutet í Stokk- hólmi mun halda fyrirlestra um slíka þjónustu, og þá aðallega MEDLINE-kerfið, sem reynzt hefur mjög vel og þykir afar handhægt. Á laugardagsmorgun er svo áætlað að koma á beinu sambandi milli Reykjavíkur og Stokkhólms, þannig að fundarmenn sjálfir geti lagt fram fyrirspurnir til tölvunnar í Stokkhólmi og fengið svör samstundis. Árið 1971 var svipuð tilraun gerð hér, þegar IBM kynnti kerfi með beinu sam- bandi við tölvumiðstöð f Kaup- mannahöfn. IBM mun nú einnig veita tæknilega aðstoð og leggja fram vélakost til þessarar kynn- ingar. Dr. Svartz-Malmberg kemur hingað á vegum Fræðslunefndar læknafélaganna, Félags bóka- safnsfræðinga, og Norræna húss- ins, en Heilbrigðismálaráðuneytið leggur einnig fram fjárstyrk til þessarar kynningar. Fyriríestrarnir munu fara fram á ensku. Þeir verða i Norræna húsinu, föstudagskvöld kl. 20.30 og laugardagsmorgun kl. 9.30. — Sundraðir Framhald af bls. 19 út um þúfur siðastliðið haust, hafa Austur-Evrópurikin hert mjög árásir sínar á Kína og einnig aukið stuðning sinn við hugmynd- ina um alheimsráðstefnu kommúnistaf lokka. Kommúnistaflokkarnir i Vest- ur-Evrópu, hafa hins vegar stung- ið við fótum og berjast nú hálfu harðar en áður gegn því að láta blanda sér í deiluna. Fremstur í flokki er ítalski kommúnista- flokkurinn, sem er þungur á vog- arskálunum utan Sovétrikjanna, ekki aðeins vegna þess, að hann er mjög sterkur á Italfu, heldur og vegna þess, að hann hafði for- ystu í harðri gagnrýni á Stalin allt frá þvf um 1950. Siðasta alheimsráðstefna kommúnista var haldin árið 1969 og þá reyndu Sovétrikin árang- urslaust að koma í gegn almennri fordæmingu á kínversku leiðtog- unum. Sovétrikjunum er nú mjög umhugað um að halda nýja ráð- stefnu og segja, að megintilgang- ur hennar verði að auka tengsl og samheldni flokkanna þannig að þeir standi sameinaðir í samning- um um bætta sambúð milli aust- urs og vesturs. Það er hins vegar almennt vit- að, að það er einnig tilgangur Sovétrikjanna að koma i gegn ein- hvers konar and-kinverskri sam- þykkt. En það er öruggt, að marg- ir flokkarnir munu neita að senda fulltrúa nema þeim verði Iofað að ekkert slíkt verði reynt. Þrátt fyrir þetta halda tals- memi kommúnistaf lokkanna í Austur-Evrópu áfram að reyna að æsa til andstöðu við Peking. Jan- os Kadar, leiðtogi ungverska kommúnistaflokksins, hélt mikla ræðu i siðasta mánuði og þar sak- aði hann meðal annars Kínverja um að reyna að spilla stefnu Sov- étríkjanna og bandamanna þeirra í öllum alþjóðamálum. Hann nefndi þar meðal annars tilraunir Sovétríkjanna tilbættrar sambúð- ar og meiri efnahagstengsla við Vesturlönd. — Myndlist Framhald af bls. 16 Eg er viss um, að Hafsteinn á eftir að gera ýmislegt, ef hann hefur tækifæri til í þessu tíma- skorts-þjóðfélagi, sem allt virðist vera að fótum troða, sem útheimt- ir natni og yfirvegun, tíma og aftur tíma. Hafsteinn Austmann er nonfígúratífur listamaður, sem unnið hefur að list sinni af alúð og umhyggju. Hann á það skilið, að verkum hans sé veitt eftirtekt, og ég vona, að svo verði. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.